← BækurVitranir frá öðrum heimi

Áttundi kafli

Niðurlagsorð

um 1 mín. lestur

Íslensk útgáfa frá 2016.

Englarnir sögðu mér margt fleira. En það er ekki mögulegt að segja frá því, vegna þess að hér í heimi er ekki það tungumál til, sem á orð eða líkingar sem geta náð hinum djúpa andlega sannleika, sem mér var sagður. Þeir óskuðu þess ekki heldur að ég reyndi það, því þeir sem ekki hefðu næga andlega reynslu, gætu ekki skilið það. Og þá væri hætta á, að í stað þess að hjálpa, gæti þetta orðið mönnum tilefni til misskilnings og villu. Ég hef þess vegna aðeins sagt frá nokkru af því einfaldasta, í þeirri von, að það geti orðið mörgum til viðvörunar, lærdóms og huggunar.

Sá tími er heldur ekki svo langt undan, að lesendur mínir koma sjálfir yfir í andaheiminn og þá sjá þeir allt þetta með eigin augum. En áður en við förum héðan fyrir fullt og allt, yfir í heimkynni eilífðarinnar, verðum við með hjálp náðar Guðs og anda bænarinnar, að uppfylla köllun okkar með trúmennsku. Á þann hátt náum við takmarki lífs vors og fáum inngöngu í eilífa gleði himnaríkis án nokkurs skugga af eftirsjá.

Um þessa útgáfu

Vitranir frá öðrum heimi (á ensku: Visions of the Spiritual World). Sadhu Sundar Singh.

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

8. kafli af 8 · 1 mín. eftirNiðurlagsorð