Sjöundi kafli
Takmark sköpunarinnar
Íslensk útgáfa frá 2016.
Fyrir nokkrum mánuðum síðan lá ég einn í herbergi mínu og leið miklar þjáningar af bólgu í auga. Ég tók svo mikið út, að ég gat ekkert gert, svo ég eyddi tímanum í bæn og fyrirbæn. Dag einn hafði ég legið þannig um stund, er ég tók eftir því að andlegi heimurinn opnaðist og ég var umkringdur fjölda engla. Af því að eftirtekt mín beindist öll að þeim, gleymdi ég strax þjáningum mínum. Nú mun ég segja frá nokkrum atriðum, sem við töluðum um.
Himnesk nöfn
Ég spurði þá um, hvort þeir gætu sagt mér hvað þeir hétu á himnum. Einn af englunum svaraði mér: „Við fáum allir nýtt nafn, sem enginn veit um nema Frelsarinn og sá sem nafnið er gefið. (Opinberunarb. 2,17). Við sem hér erum, höfum allir þjónað Frelsaranum í ýmsum löndum og á ýmsum öldum, en það er engin þörf á að nokkur annar viti nöfn okkar. Það er líka ástæðulaust að segja frá okkar fyrri jarðnesku nöfnum. Það gæti ef til vill verið gaman að vita þau, en að hvaða gagni kæmi það? Þar að auki óskum við ekki að menn þekki nöfn okkar, til þess að þeir fari ekki að fá of mikið álit á okkur og tigna okkur í stað Frelsarans, sem hefur elskað okkur svo, að hann hefur reist okkur við, sem vorum fallnir í synd og gefið okkur eilífðar heimkynni, þar sem við að eilífu munum lofa hann fyrir kærleikssamfélagið við hann. Til þess skapaði Guð okkur“.
Þeir munu Guð sjá
Þá spurði ég aftur: „Sjá hinir heilögu sem lifa í hæstu himnunum alltaf auglit Guðs? Ef svo er, í hvaða mynd birtist hann þá?“ Einn af hinum heilögu svaraði: „Eins og hafið er fullt af vatni, eins er alheimurinn fylltur af Guði og allir íbúar himinsins finna alls staðar nálægð Guðs. Og eins og hafið er fullt af óteljandi dýrum, þannig lifir hið skapaða í óendanlegri veru Guðs. Af því að hann sjálfur er ótakmarkaður, en börn hans takmörkuð, geta þau aðeins séð hann í mynd Krists, eins og hann hefur sjálfur sagt „sá sem hefur séð mig, hefur séð föðurinn“.“ (Jóh. 14,9).
Í hinum andlega heimi eru andlegar framfarir metnar eftir því, að hve miklu leyti hver einstakur getur skynjað og fundið Guð, og Kristur opinberar líka dýrð sína í samræmi við andlega upplýsingu og þroska hvers og eins“. Annar af hinum heilögu bætti við: „Það er hægt að finna og njóta nálægðar Guðs, en það er ekki hægt að lýsa henni með orðum. Með bragðskyni finnur maður sætt bragð, en það fá engin orð lýst því, hvernig sem reynt er, hvernig sætt bragð er. Eins getur hver og einn á himnum vitað, að þekking hans á Guði er veruleiki og hann þarfnast þess ekki, að nokkur hjálpi honum með munnlegri skýringu á því“.
Fjarlægðir á himnum
Þá spurði ég: „Hvað er langt frá einu tilverusviðinu til annars? Þótt maður megi ekki búa á öðru sviði en því, sem manni er skipað, er ekki hægt að fá leyfi til að koma í heimsóknir á æðri svið?“ Þessu svaraði einn af hinum heilögu: „Það er rétt, að hverri sál er vísað þar til vistar, sem andlegur þroski hennar gerir hana hæfa til, en um skemmri tíma er hægt að fá leyfi til að heimsækja önnur svið. Þegar þeir, sem búa á æðri sviðum, koma niður til lægri og myrkari sviðanna, fá þeir eins konar andlegan hjúp til þess, að ljóminn frá þeim skuli ekki rugla og blinda þá, sem búa þar niðri. Sömuleiðis fá þeir á lægri sviðunum andlegan hjúp, ef þeir fá að fara upp á æðri sviðin, svo þeir þoli ljósið og dýrðina þar“.
„Á himnum finnur maður ekki fyrir fjarlægðunum, því um leið og einhver af íbúunum óskar sér að vera einhvers staðar, þá er hann þar. Það er aðeins í efnisheiminum, að fjarlægðin finnst. Óski einhver eftir að finna einhvern hinna heilögu á öðru sviði, er hann annað hvort jafnskjótt kominn þangað, eða hinn aðilinn er kominn til hans“.
Fíkjutréð sem visnaði
Þá spurði ég enn: „Allir hlutir eru skapaðir með ákveðinn tilgang fyrir augum. Stundum virðist eins og þessum tilgangi Guðs verði ekki náð, t.d. fíkjutréð, sem var formælt og visnaði. Tilgangur fíkjutrésins er að það beri ávöxt. En þegar Frelsarinn sá að það bar ekki ávöxt, þá formælti hann því og það visnaði. Getið þið nú sagt mér, fullnægði fíkjutréð tilgangi sínum eða ekki?“ Þá svaraði einn af hinum heilögu: „Það er enginn efi á því, að tilganginum með fíkjutréð var náð og meira en það. Herra lífsins gefur öllu sem er lifandi, líf í ákveðnum tilgangi, en náist þessi tilgangur ekki, hefur hann vald til að taka líf aftur, til þess að hærra markmiði verði náð. Þannig hafa t.d. þúsundir af þjónum Guðs fórnað lífi sínu til þess að fræða og hjálpa öðrum. Með því að fórna lífi sínu fyrir aðra, hafa þeir hjálpað þeim og á þann hátt stuðlað að uppfyllingu þess markmiðs, sem Guð hafði með lífi þeirra. Ef það er rétt og göfug þjónusta fyrir einstakling, sem er miklu æðri sköpun en fíkjutréð, að fórna lífi sínu fyrir aðra, hvernig getur þá verið rangt að lítilfjörlegt tré hafi orðið að láta lífið til þess að fræða og aðvara þjóð sem fór villur vegar? Með fíkjutrénu gaf Jesús Gyðingum og öllum heiminum þá fræðslu, að hvert það líf, sem ófrjósamt og ber ekki ávöxt, það fullnægir ekki tilgangi Guðs, heldur visnar og eyðileggst“.
Vitnisburður sögunnar sýnir okkur, að hið kreddukennda og takmarkaða trúarlíf Gyðingaþjóðarinnar á þeim tíma visnaði eins og fíkjutréð, af því það var ófrjótt. Á sama hátt mun ávaxtalaust andlegt líf hvers og eins, hvernig sem það lítur út í hinu ytra, aðeins verða öðrum til táls og mun því verða til bölvunar og visna. Ef einhver kann að hafa það á móti þessu, að það hafi ekki verið ávaxtatími, þegar Jesús formælti trénu, og hann hafi þess vegna ekki getað vænst þess, að það bæri ávexti, þá er þess að gæta, að í andlegu lífi mannsins er enginn sá tími, sem ekki á að vera ávaxtasamur. Maðurinn á alltaf að sýna andlega frjósemi í lífi sínu og á þann hátt uppfylla köllun sína“.
Hefur maðurinn frjálsan vilja?
Og enn spurði ég: „Hefði ekki verið betra að Guð hefði skapað manninn og allt hið jarðneska fullkomið? Þá hefði maðurinn ekki getað syndgað og þá hefði heldur ekki verið sorg og þjáning í heiminum, vegna syndarinnar. Nú þurfum við, af því að sköpunin er undir ánauð forgengileikans, að ganga í gegnum alls konar þjáningar“.
Einn af englunum frá hinum hæstu sviðum himinsins svaraði mér: „Guð hefur ekki skapað manninn eins og sjálfvirka vél. Hann hefur heldur ekki ákveðið honum örlög eins og stjörnunum, sem alltaf ganga sína föstu braut. Hann skapaði manninn í sinni mynd, sem veru er hefur frjálsan vilja, skilning, hæfileika til ákvörðunar og athafnafrelsi. Þess vegna er maðurinn æðri öllum öðrum sköpuðum verum á jörðinni. Ef maðurinn væri ekki skapaður með frjálsan vilja, gæti hann ekki glaðst yfir samfélaginu við Guð eða notið sælu himnaríkis. Hann væri þá eins og vél, sem gengur sjálfkrafa, eða eins og stjörnurnar, sem án meðvitundar þjóta gegnum himingeiminn. En maður með frjálsan vilja er ímynd Guðs og andstæða vélrænnar og sálarlausrar fullkomnunar sem í sjálfu sér er ófullkomin, því slíkur maður væri aðeins vélgengur þræll. Hin sálarlausa fullkomnun hefði neytt hann til ákveðinna verka, sem ekki hefðu veitt honum neina gleði, því hann gerði þau ekki af eigin hvötum. Fyrir slíkan einstakling, væri Guð ekki meira virði en steinninn“.
Maðurinn, já allt hið skapaða, er undirgefið forgengileikanum, en ekki um alla eilífð. Með óhlýðni sinni, hefur maðurinn komið sjálfum sér og öllu sköpuðu undir vald hins illa og þjáninganna sem eru afleiðing þess. En það er aðeins í þessari andlegu baráttu, að andlegir eiginleikar mannsins þroskast til fulls. Það er aðeins í gegnum baráttuna, sem maðurinn getur lært það sem er honum nauðsynlegt til fullþroska. Þegar maðurinn að síðustu gengur inn til hinnar fullkomnu tilveru á himni, mun hann þakka Guði fyrir baráttu og þjáningar þessa lífs. Þá mun hann skilja til hlítar, að þeim sem elska Guð, samverkar allt til góðs“. (Rómverjabr. 8,28).
Guð er kærleikur
Annar hinna heilögu bætti við: „Allir á himnum vita að Guð er kærleikur, en frá upphafi hafði það verið dulið að kærleikur hans væri svo ótakmarkaður, að hann gerðist maður til þess að frelsa syndarana og lét líf sitt á krossi, til þess að gera þá hreina af synd. Hann tók á sig þessar þjáningar til þess að frelsa mennina og allt hið skapaða, sem var undirorpið fallvaltleikanum. Þannig hefur Guð með því að verða maður, opinberað börnum sínum, sitt innsta eðli. En hefði hann notað einhverja aðra leið, hefði kærleikur hans verið dulinn mönnunum um alla eilífð.“
„Nú bíður allt hið skapaða með djúpri þrá eftir að synir Guðs opinberist og sköpunin verði endurreist og gerð dýrðleg á ný. En þangað til sú endurfæðing fer fram, mun öll sköpunin stynja og þeir sem eru endurfæddir, stynja og bíða eftir að líkaminn verði endurleystur“. (Sjá Rómverjabr. 8, 18-23).
Tíminn nálgast, þegar allt hið skapaða hlýðnast Guði í öllu og endurleysist að eilífu frá syndinni, fallvaltleikanum og forgengileikanum. Þá mun allt hið skapaða að eilífu verða sælt í Guði og mun af sjálfu sér fylla það takmark, sem það var skapað til. Þá mun Guð verða allt í öllu. (Sbr. 1. Korintubr. 15,28).