Fjórði kafli
Hjálpin sem mönnum veitist hér og síðar
Íslensk útgáfa frá 2016.
Ósýnileg hjálp
Látnir ættingjar og ástvinir og stundum hinir heilögu, koma oft til okkar frá ósýnilegum heimi til þess að hjálpa okkur og vernda. En englarnir eru alltaf með okkur. Hinir andlegu gestir fá þó ekki leyfi til þess að birtast okkur, nema örsjaldan, þegar sérstök þörf krefur. Þeir hafa áhrif á okkur til þess að helga hugsanir okkar og blása okkur í brjóst löngun til þess að þjóna Guði og gera það sem gott er. Þetta gera þeir eftir leiðum sem við hvorki þekkjum eða sjáum, en andi Guðs í okkar eigin hjarta lýkur því verki sem þeir hafa ekki náð að framkvæma ― að fullkomna okkar andlega líf.
Hver er mestur?
Enginn verður mikill af þekkingu sinni eða þeirri lífsstöðu, sem hann þjónar. Hvorki þekking né staða í lífinu skapar manninn. Manngildið á að metast eftir því hvað maðurinn getur orðið öðrum til hjálpar og það gagn sem líf hans veitir öðrum. Líf mannsins verður metið eftir því hvernig hann liðsinnir öðrum. Þess vegna er mikilleiki mannsins metinn eftir því, að hve miklu leyti hann fær þjónað öðrum, eins og Drottinn sagði: „Sá er vill verða mikill yðar á meðal, hann skal vera þjónn yðar“. (Matt. 20,26). Gleði himinbúa er fólgin í því að þjóna öðrum í kærleika, og með því að uppfylla þannig takmark lífs síns, lifa þeir í eilífu sambandi við Guð.
Leiðbeining frá villu
Þegar maðurinn af öllu hjarta óskar að lifa Guði þóknanlegu lífi, byrjar aðlögunarferli sem endurnýjar viðhorf hans og lífsmáta í þessum heimi. Þeir eru ekki aðeins leiddir af anda Guðs, heldur er þeim einnig hjálpað í djúpi hjartans og sálarinnar gegnum samfélag heilagra, þannig að hinir heilögu eru þeim alltaf nálægir til þess, ― þó þeir sjái þá ekki, ― að hjálpa þeim áleiðis til betrunar.
Margir trúaðir kristnir menn deyja þó í ýmsum misskilningi, með ranga eða skekkta opinberun á sannleikanum, engu að síður en margur ókristinn sannleiksleitandi. Slíkar skoðanir eru leiðréttar í andaheiminum. Þó verður vitanlega að gera ráð fyrir að slíkir menn haldi ekki með sauðþráa við skoðanir sínar, en séu viljugir að taka fræðslu, því hvorki hér eða annars heims er nokkur maður neyddur til trúar. Viljinn er alltaf frjáls.
Kristur birtist
Ég sá í sýn einni skurðgoðadýrkanda, sem strax fór að spyrja eftir þeim Guði, sem hann hafði tilbeðið á jörðu, þegar hann kom til andaheimsins. Hinir heilögu svöruðu honum: „Hér er enginn annar Guð en hinn eini sanni Guð, og sá sem hefur opinberað hann, Jesús Kristur“. Maðurinn varð mjög undrandi yfir þessu, en af því hann var hreinskilinn leitandi sannleikans, gekkst hann strax við, að hann mundi hafa haft rangt fyrir sér. Hann leitaðist ákafur við að læra hið rétta og spurði hvort hann gæti fengið að sjá Krist.
Skömmu síðar birtist Kristur honum og nokkrum öðrum, sem nýkomnir voru til andaheimsins. Birtist hann í daufu ljósi, því á því þroskastigi sem þeir voru, hefðu þeir ekki þolað fulla opinberun dýrðar hans, því hún er svo gagntakandi, að jafnvel englarnir eiga bágt með að horfa á hann og hylja ásjónur sínar með vængjunum (Jesaja 6,2).
Þegar Kristur birtist sálunum, tekur hann tillit til þess þroskastigs sem þær eru á. Hann birtis í daufari eða skærari dýrðarljóma eftir því sem sálirnar þola.
Þegar þessar sálir sáu Krist í hinu daufa en laðandi ljósi, fylltust þær þeim friði og gleði, sem ekki verður lýst. Baðaðar í geislum hins lífgefandi ljóss og þeim öldum kærleikans sem sífellt streymdu frá honum yfir þær, lauguðust þær hreinar af allri villu. Af allri sálu sinni viðurkenndu þær hann sem sannleikann og beygðu sig í lotningu fyrir honum með þakklæti og lofgjörð. Og hinir heilögu sem höfðu frætt þær og leiðbeint þeim, glöddust vegna þeirra.
Maður erfiðis og maður efasemda
Í einni sýninni sá ég erfiðismann koma til andaheimsins. Honum leið afar illa, því í jarðlífi sínu hafði hann aldrei hugsað um annað en að hafa í sig og á. Hann hafði alltaf verið of önnum kafinn til þess að hugsa um Guð og andleg efni. Samtímis honum hafði dáið annar maður, sem var mjög þrálátur efasemdamaður. Báðum þessum sálum var skipað til vistar á myrkum stað neðarlega í andaheiminum. Brátt fóru þeir í neyð sinni að hrópa á hjálp þaðan. Nokkrir englar og nokkrir af hinum heilögu fylltust þá meðaumkun og kærleika og fóru til þeirra til þess að fræða þá um hvað þeir þyrftu að skilja, svo þeir kæmust inn í ríki ljóssins og dýrðarinnar. En þrátt fyrir bágindi sín kusu þeir heldur að dvelja áfram þar sem þeir voru í myrkrinu, því syndin var búin að skaðskemma svo eðli þeirra, eins og margra annarra, að þeir tortryggðu allt og jafnvel sjálfa engla Guðs. Meðan ég var að horfa á þá, datt mér í hug að spyrja hvernig fyrir þeim mundi fara að lokum og þegar ég spurði að því svaraði einn af hinum heilögu: „Við skulum fela þá náð Guðs“.
Hættulegt sálarástand
Eitt algengt dæmi sýnir vel hvað gjörspillt eðli mannsins getur orðið. Ef borinn er út óhróður um einhvern, þá er þeim óhróðri strax trúað af þeim sem sjálfir eru siðferðilega vanheilir, enda þótt óhróðurinn sé tóm lygi. Ef aftur á móti eitthvað gott er borið út um einhvern, svo sem t.d. að sagt er: „Þessi eða þessi er góður drengur og gegn og vinnur fyrir Guð og náungann“, þá eru strax ýmsir misindismenn sem segja: „Þetta er allt lygi. Hann gerir þetta með einhvern hag fyrir augum“. Ef við nú spyrjum hvernig misindismaðurinn viti að fyrra dæmið sé sannleikur en hitt lygi, þá getur hann ekki komið með neinar sannanir. En slíkt sálarástand sýnir, að sá sem trúir því illa og gerir það af því að það er skyldast hans eigin sálarlífi og í samræmi við það, en hann trúir ekki því góða af því að það snertir hvergi skylda strengi í sál hans. Eðli góðs manns er þessu alveg gagnstætt. Honum er eiginlegt að efast um hið illa en trúa því góða, af því það fellur best við hans eigin hugsanir og sálarlíf.
Þeir, sem hér á jörðu lifa í andstöðu við vilja Guðs, finna engan frið í sálu sinni, hvorki hér né annars heims. Þegar þeir koma til andaheimsins verða þeir ruglaðir og hræddir. En þeir sem lifa hér í samræmi við vilja Guðs, finna strax fyrir öryggi og friði þegar þeir koma til annars heims, því þar er eilífðarheimkynni þeirra og ríki föður þeirra.