← BækurVitranir frá öðrum heimi

Fyrsti kafli

Lífið og dauðinn

um 2 mín. lestur

Íslensk útgáfa frá 2016.

Lífið

Það er aðeins ein lífsuppspretta ― Takmarkalaust og Almáttugt Líf ― og skapandi máttur þess gefur öllu lifandi lífið. Allt hið skapaða fær líf sitt frá þessari uppsprettu, Guði, og í honum verður það um alla eilífð. Þessi lífsuppspretta hefur skapað óteljandi önnur form af lífi í mismunandi myndum og misjafnlega fullkomin og er maðurinn eitt af þeim, skapaður í Guðs eigin mynd, svo hann mætti ávallt vera hamingjusamur í hinni heilögu nærveru Guðs.

Dauðinn

Þetta líf getur tekið breytingum, en það er aldrei hægt að eyða því og þótt það eigi sér stað umbreyting frá einu stigi tilverunnar yfir á annað sem kallast Dauði, þá þýðir það aldrei að dauðinn sé endalok lífsins, né heldur að hann bæti neinu við lífið eða taki nokkuð frá því. Dauðinn flytur einfaldlega lífið frá einu stigi tilverunnar yfir á annað. Hlutur sem hverfur sjónum okkar, hættir ekki endilega að vera til. Hann hefur aðeins færst yfir í annað ástand.

Maðurinn getur ekki hætt að vera til

Það er ekki hægt að eyða neinu í alheiminum, vegna þess að Skaparinn hefur ekki skapað neitt til eyðingar. Ef hann vildi eyða því, hefði hann aldrei skapað það. Ef það er ekki hægt að eyða endanlega neinu í sköpuninni, hvernig gæti verið hægt að eyða manninum, sem er kóróna sköpunarverksins og ímynd skaparans? Getur Guð eytt sinni eigin ímynd eða getur einhver önnur vera gert það? Aldrei! Ef maðurinn eyðist ekki við dauðann, þá kemur strax upp spurningin: „Hvar verður maðurinn eftir dauðann, og í hvaða ástandi?“

Ég ætla að gefa stutta skýringu á þessu út frá sýnum mínum, þó að ómögulegt sé að lýsa öllu því, sem ég hef séð í sýnum í hinum andlega heimi. Því mælt mál eða líkingatal nær skammt þegar þarf að lýsa staðháttum andlega heimsins og mjög er hætt við að tilraunir til að lýsa þeirri dýrð með orðum, sem ég hef séð, verði misskilningur einn.

Ég verð því að sleppa lýsingum á hinum dýpri vitrunum, sem erfitt er að lýsa í orðum án andlegrar upplifunar, en taka aðeins fáein einföld og upplýsandi dæmi sem geta gagnast öllum.

Vegna þess að allir munu fyrr eða síðar koma til hins ósýnilega heims, er það mikilsvert að kynna sér hann eftir föngum.

Um þessa útgáfu

Vitranir frá öðrum heimi (á ensku: Visions of the Spiritual World). Sadhu Sundar Singh.

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

1. kafli af 8 · 2 mín. eftirLífið og dauðinn