← BækurVitranir frá öðrum heimi

Sjötti kafli

Hlutskipti réttlátra

um 10 mín. lestur

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ríki Guðs eða himnaríki byrjar strax í hinu jarðneska lífi hjá öllum sanntrúuðum mönnum. Hjörtu þeirra eru alltaf full friðar og gleði, hvaða þjáningum eða ofsóknum sem þeir sæta, því Guð sem sjálfur er uppspretta friðarins og gleðinnar, hefur tekið sér bústað hjá þeim. Fyrir þá er dauðinn ekki dauði, heldur dyrnar sem opnast þeim til heimkynna eilífðarinnar. Við getum líka sagt, að þó þeir á jörðu séu komnir í ríki Guðs, með endurfæðingunni, þá er dagur sá, sem þeir yfirgefa líkamann, ekki dauðadagur, heldur fæðingardagur þeirra inn í hina andlegu tilveru. Þess vegna er dauðastundin þeim sérstök gleðistund, eins og eftirfarandi atvik sýna.

Viðskilnaður sannkristins manns

Engill einn sagði mér frá því, að trúaður kristinn maður lægi á banabeði. Maður þessi hafði af heilum hug þjónað Guði og Frelsaranum í 30 ár. Nokkrum mínútum fyrir dauða hans opnaði Guð augu hans, svo hann meðan hann var ennþá í líkamanum, gæti séð inn í andaheiminn og sagt þeim sem viðstaddir voru, hvað hann sæi. Hann sá himininn opinn og fjölda engla og heilaga menn koma til að taka á móti sér. Við hlið himinsins sá hann Frelsarann standa og breiða faðminn móti sér. Við þessa sjón hóf hann upp fagnaðaróp, svo að þeir, sem viðstaddir voru, hrukku við. „Hvílík gleðistund“, hrópaði hann, „lengi hef ég beðið þess að sjá Drottin minn og koma til hans. Sjáið þið vinir, hve ásjóna hans ljómar af kærleika og englafjöldann, sem er með honum. Hvað himininn er dýrðlegur. Nú fer ég heim, vinir mínir. Grátið ekki, heldur gleðjist yfir því, að ég skil við ykkur“.

Viðstaddur maður mælti þá, að hann mundi vera með óráði, en þegar hinn deyjandi maður heyrði það, sagði hann: „Ég er ekki með óráði, en hef fulla meðvitund. Ég vildi bara óska, að þið gætuð séð þessa dýrðlegu sjón. Það hryggir mig að þið skuluð ekki geta það. Verið þið sæl, við sjáumst í öðrum heimi“. Svo lokaði hann augunum og sagði: „Drottinn minn, ég fel sál mína í þínar hendur“. Svo dó hann.

Jafnskjótt og hann var dáinn, tóku englarnir hann í faðm sinn og ætluðu með hann til himins, en hann bað þá bíða ögn við. Hann leit á hinn látna líkama sinn og ættingja sína og sagði svo við englana: „Ég vissi ekki að sálin gæti séð líkama sinn látinn og vini sína eftir dauðann. Ég vildi óska að ástvinir mínir gætu séð mig eins og ég sé þá. Þá mundu þeir ekki gráta mig dáinn eins og þeir gera nú“. Hann skoðaði nú sinn andlega líkama og virtist hann mjög léttur og fíngerður og allur annar en hinn þungi og grófgerði jarðneski líkami. Reyndi hann nú að hugga konu sína og börn, sem grátandi létu ekki af að kyssa lík hans. Hann rétti út hendur sínar og reyndi bæði að skýra þeim frá ástandi sínu og draga þau burt frá líkinu, en þau hvorki sáu hann eða heyrðu. Þegar hann reyndi að ná börnunum burt frá líkinu, var eins og hendur hans færu í gegnum líkami þeirra, en þau tóku ekkert eftir því. Þá sagði einn af englunum við hann: „Lofaðu okkur nú að fylgja þér til eilífðarheimkynnis þíns. Vertu ekki að mæða þig vegna þeirra. Frelsarinn og við munum hugga þau. Skilnaðurinn varir aðeins í nokkra daga“.

Ásamt englunum, hélt hann nú til himins. Þegar þeir voru komnir nokkuð áleiðis mætti þeim annar englahópur til að fagna honum. Meðal þeirra voru margir látnir ættingjar og vinir og hann gladdist mjög við að sjá þá. Þegar þeir komu að hliðum himinsins, staðnæmdust englarnir og hinir heilögu þegjandi á báðar hliðar hans. Hann gekk inn, en í hliðinu mætti Kristur honum. Þá féll maðurinn honum til fóta og tilbað hann, en Kristur reisti hann upp og sagði: „Þú góði og trúi þjónn, gakk inn í fögnuð herra þíns“. Gleðitár streymdu úr augum mannsins, en Kristur þerraði þau með mikilli blíðu og sagði við englana: „Flytjið hann til þess dýrðarbústaðar, sem honum var fyrirbúinn frá eilífð“.

Í huga þessa Guðsbarns, lifði ennþá sú jarðneska skoðun, að það væri Drottni lítilsvirðing að snúa við honum bakinu, þegar hann gengi burt með englunum. Hikandi snéri hann sér því í áttina til bústaðar síns. En hann varð undrandi, þegar hann tók eftir því, að hvert sem hann snéri sér, gat hann alltaf séð Drottinn. Því Kristur er alls staðar nálægur. Bæði englar og hinir heilögu sjá hann alltaf. Hann gat þó ekki aðeins séð Frelsarann alls staðar, heldur sá hann allt það sem helst fyllti hann gleði, hvert sem hann snéri sér. Þar að auki tók hann eftir því að sálir þeirra manna sem lægra voru settir umgengust þá sem voru á hærri sviðunum án allrar öfundar og hinir æðstu andar skoðuðu það sem hina mestu náð og hamingju að geta þjónað þeim sem enn voru á lægri sviðunum, því þarna var ríki Guðs og kærleikans.

Bústaðir himinsins

Á himnum eru alls staðar yndislegir garðar fullir af girnilegum og gómsætum ávöxtum og angandi blómum sem aldrei visna. Í þessum görðum eru margvísleg dýr, sem lofa Guð án afláts. Fuglar, klæddir dýrðlegu litskrúði, syngja lofsöngva, og söngur englanna og hinna heilögu er svo yndislegur og gagntakandi, að maður fyllist óðar óþekktri hrifningu. Hvert sem litið er, er ekkert annað en fögnuður. Þannig er í sannleika sú Paradís sem Guð hefur fyrirbúið þeim sem elska hann; þar er enginn skuggi frá dauðanum, engin afvegaleiðsla, engin synd eða þjáning, en eilífur friður og fögnuður.

Síðan sá ég þetta Guðsbarn skoða þann stað sem honum var ætlaður. Var það úr mikilli fjarlægð, því á himni er allt andlegt og hið andlega auga sér í gegnum allt. Kærleikur Guðs er sjáanlegur um alla hina miklu víðáttu himinsins og í þessari víðáttu getur maður séð að allar verur lofa Guð og þakka honum.

Þegar Guðsbarnið kom til þess bústaðar sem honum var fyrirbúinn, sá hann að orðið „VELKOMINN“ var skrifað þar með eldlegum stöfum. Og stafirnir sjálfir endurómuðu hvað eftir annað orðið „VELKOMINN“. Þegar hann kom inn, sá hann sér til mikillar undrunar, að Frelsarinn var líka þar. Ég get ekki lýst þeirri gleði, sem það var honum. Hann hrópaði: „Ég hélt, að ég skildi við Frelsarann, þegar ég eftir boði hans fór hingað, en nú sé ég, að hann er hér til þess að vera hjá mér“. Í bústaðnum fann hann allt sem hann gat óskað eftir og allir voru reiðubúnir til að hjálpa honum. Í nærliggjandi bústöðum bjuggu hinir heilögu á sama stigi og hann og þeir bjuggu saman í innilegum félagsskap. Þessi himneski staður, er það ríki sem var fyrirbúið hinum heilögu frá grundvöllun heims (Matt. 25,34) og þetta er hin dýrðlega framtíð sem bíður allra sanntrúaðra eftirbreytenda Krists.

Dramblátur klerkur og auðmjúkur erfiðismaður

Prestur nokkur sem áleit sjálfan sig bæði lærðan og guðhræddan, dó á gamalsaldri. Hann var vafalaust líka ágætur maður. Þegar englarnir komu til þess að flytja til þess staðar í andaheiminum, sem honum var ákvarðaður af Drottni, fóru þeir með hann inn á millisviðið og skildu hann þar eftir, ásamt öðrum góðum öndum, sem voru nýkomnir, hjá englum þeim, sem eiga að fræða og kenna góðum sálum. Sjálfir fóru þeir að sækja aðra réttláta sál.

Á millisviðinu eru mörg stig, allt upp að hinum hæsta himni. Hverri sál er skipað til vistar og fær fræðslu og hjálp á því stigi sem þroski hennar úr jarðlífinu gerir hana hæfa til. Englarnir höfðu flutt prestinn á það stig, sem honum bar eftir andlegum þroska hans. En nú komu þeir með sálina, sem þeir fóru að sækja og fluttu hana upp á hærra stig en það, sem presturinn var á. Þegar presturinn sá það, kallaði hann með mikilmennsku: „Hver leyfir ykkur að skilja mig hér eftir á miðri leið upp í dýrðina, en fara með þessa sál hér um bil alla leið? Ég stend hvorki henni né ykkur að baki í heilagleika eða neinu öðru“. Þá svöruðu englarnir: „Hér er ekki um það að ræða að vera hár eða lágur, meiri maður eða minni, en hver maður er hér settur á það stig, sem hann hefur gert sig hæfan til með lífi sínu og trú. Þú ert ekki ennþá orðinn hæfur til hærri stiganna, svo þú verður að dvelja hér um stund og læra það, sem samþjónar okkar eiga að kenna þér. Þegar Drottinn skipar, munum við með gleði flytja þig upp á hærri stigin“. Þá svaraði presturinn: „Ég hef varið ævi minni til að leiðbeina mönnum til Guðsríkis. Hvað getið þið frætt mig? Ég kann þetta allt saman“. Þá sögðu englarnir sem áttu að fræða hann: „Þessir þurfa að fara núna, við megum ekki tefja þá. En við skulum svara spurningu þinni og þú mátt ekki þykkjast við vinur, þótt við tölum við þig í hreinskilni, því það er þér fyrir bestu. Þú heldur að þú sért einn hér, en svo er ekki. Frelsarinn er hér líka, þótt þú sjáir hann ekki. Sjálfsþótti þinn, sem þú sýndir, þegar þú sagðir „ég kann þetta allt saman“, hindrar þig frá að sjá hann og komast hærra upp.

Auðmýktin er besta vörnin gegn sjálfsþótta. Temdu þér auðmýkt, þá munu óskir þínar rætast“. Síðan sagði einn af englunum við hann: „Sálin sem áðan var flutt upp á hærra stig en þitt, var hvorki lærður maður eða frægur. En þú tókst ekki eftir honum. Á jörðu var hann eitt af sóknarbörnum þínum. Það þekktu hann fáir, því hann var aðeins venjulegur verkamaður og átti fáar frjálsar stundir. En á sínum stað var hann þekktur sem iðinn og trúr verkamaður og hið sannkristna lundarfar hans var metið af öllum, sem höfðu kynni af honum. Í stríðinu var hann kallaður til herþjónustu í Frakklandi. Einn dag, þegar hann var að hjálpa særðum félaga sínum, varð hann fyrir kúlu og féll. Þó að dauðinn kæmi snögglega, var hann viðbúinn, svo hann þarf ekki að dvelja hér á millisviðinu eins og þú. Upphafning hans orsakast ekki af ívilnun, heldur af hans andlegu verðleikum. Hann lifði í bæn og auðmýkt á jörðu, það bjó hann vel undir andlegu tilveruna. Nú gleðst hann yfir að vera kominn að takmarkinu og þakkar og lofsyngur Drottni, sem hefur frelsað hann og veitt honum eilíft líf“.

Lífið á himnum

Á himnum er hræsnin gagnslaus, því þar geta allir séð lífið eins og það er. Ljósið sem opinberar allt og skín frá Kristi í dýrðinni, neyðir hina vondu anda til að fela sig, en það fyllir hina réttlátu ósegjanlegum fögnuði, að fá að dvelja í því, í ríki föðurins. Réttlæti þeirra er öllum opinbert og þeir þroskast og vaxa meira og meira. Ekkert getur tafið vöxt þeirra, því þar er allt sem orðið getur þeim til hjálpar. Það þroskastig í því góða, sem hver og einn hefur náð, sést á þeim ljóma, sem skín út frá þeim. Lundarfar og eðli hvers og eins birtist í mismunandi regnbogageislum, sem stafa út frá þeim í dýrðlegasta litskrúði.

Á himnum er engin öfund, en þar gleðjast allir yfir framförum og dýrð hvers annars. Án þess að vera leiddir af nokkurri eigingirni, reyna þeir í einlægni að þjóna hver öðrum. Allar hinar mörgu gjafir himinsins eru þar til sameiginlegra afnota. Enginn hugsar þar um að raka að sér, því þar er gnægð handa öllum. Þeir sjá Guð, sem er kærleikurinn, sitjandi í hásætinu í hinum hæsta himni, í mynd Jesú Krists. Frá honum, sem er „sól réttlætisins“ og „ljós heimsins“ streyma geislar sem veita út frá sér heilbrigði og lífi. Öldur kærleika og ljóss streyma frá honum út til ystu takmarka ríkis hans, og flytja lífgandi og endurnærandi kraft til alls gegnum hina heilögu og engla.

Á himnum eru engar áttir. Sérhverri sál og engli virðist Kristur og hásæti hans vera miðdepill tilverunnar. Á himnum eru alls konar fögur blóm og dýrðlegir ávextir. Þegar þeirra er neytt, fer um sálina frábær unaður og ánægja, og á eftir leggur unaðsríkan ilm frá andlegum líkama sálarinnar.

Í fáum orðum, þá hljóta óskir og þrár allra himinbúa fyllingu sína í Guði, vegna þess að sérhver þeirra hefur fullnægt vilja Guðs í lífi sínu. Þannig veitist hverjum einstökum óbreytanlegur fögnuður, hvernig sem á stendur og hvar sem er á himnum. Hlutskipti réttláts manns er eilífur fögnuður og blessun.

Um þessa útgáfu

Vitranir frá öðrum heimi (á ensku: Visions of the Spiritual World). Sadhu Sundar Singh.

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

6. kafli af 8 · 10 mín. eftirHlutskipti réttlátra