Þriðji kafli
Andaheimurinn
Íslensk útgáfa frá 2016.
Eitt sinn þegar við töluðum saman gáfu hinir heilögu mér eftirfarandi upplýsingar: „Allar mannssálir fara eftir dauðann inn í andaheiminn og þar dvelja þær, ýmist í myrkri eða dýrðarljóma ásamt öðrum öndum, sem eru á sama þroskastigi og þær. Við vitum með vissu að enginn hefur komið yfir í andaheiminn í efnislíkamanum nema Kristur og nokkrir helgir menn, en þá hafa líkamar þeirra umbreyst í dýrðarlíkama. Þó hefur einstöku mönnum veist sú náð að fá að sjá andaheiminn, meðan þeir dvöldu hér á jörðu, og jafnvel sjálft himnaríki, eins og sagt er frá í 2. Korintubr. 12,2, þó þeir geti ekki sjálfir sagt hvort það var í líkamanum eða ekki“.
Eftir þessa samræðu fóru hinir heilögu með mér og sýndu mér marga undarlega hluti og staði. Ég sá hvernig þúsundir á þúsundir ofan komu til andaheimsins úr öllum áttum og var öllum fylgt af öndum. Sálum hinna grandvöru var fylgt af englum og góðum öndum, sem komu með þá frá dánarbeðnum. Illir andar fá ekki að koma nálægt þeim, en stóðu álengdar og gáfu þeim gætur. Ég sá líka að engir góðir andar voru með vondum sálum, en með þeim voru illir andar, sem komu með þeim frá dánarbeðnum. En þar voru líka englar nálægt til þess að sporna við að illu andarnir fengju lausan taum á illsku sinni og ofsæktu sálirnar og þjáðu. Illu andarnir leiddu þessar sálir svo að segja strax út í myrkrið. Því meðan þær lifðu í holdinu höfðu þær sífellt gefið illum öndum færi á að hafa áhrif á sig og af fúsum vilja látið nota sig til alls konar illverka. (Englarnir hindra aldrei neinn í að fara eftir eigin vilja). Auk þess sá ég margar sálir sem fyrir skömmu voru komnar yfir í andaheiminn og voru í fylgd með bæði illum og góðum öndum, auk englanna. En það leið ekki á löngu áður en hið rétta eðli þeirra kom í ljós og þeir voru skildir að og fór hver til síns heima, góðir til góðra anda og vondir til vondra anda.
Synir ljóssins
Þegar sálirnar koma í andaheiminn aðskiljast hinir góðu strax frá hinum vondu. Hér í heimi eru illir og góðir saman, en þar er það ekki svo. Ég hef oft séð að þegar andar hinna réttlátu ― synir ljóssins ― koma þangað, baða þær sig í tárhreinu og krystaltæru vatni og við það fá þær kraft og endurnæringu. Þær hreyfa sig í þessu undursamlega vatni eins og í hreinu og heilnæmu lofti, geta ekki drukknað í því og blotna ekki, en fara þaðan hreinsaðar og endurnærðar inn í ríki ljóssins og dýrðarinnar og þar dvelja þær að eilífu í samfélagi við Drottin og fjölda hinna heilögu og engla.
Synir myrkursins
Það er mikill munur á þessum sem ég hef lýst og þeim, sem illa hafa lifað. Þeim líður illa í nálægð við börn ljóssins og þeim er kvöl að dýrðarljósinu sem opinberar alla hluti. Þess vegna reyna þeir að hylja sig á stöðum þar sem synd þeirra og saurugleiki sést ekki. Frá dýpstu og myrkustu svæðum andaheimsins stígur dökkur daunillur reykur, og þangað steypa þeir sér til að fá afdrep og þaðan heyrast sífelld neyðaróp af samviskukvölum þeirra og angist. En himininn er þannig gerður, að reykurinn sést ekki og ópin heyrast ekki til andanna á himnum, nema þeir af sérstökum ástæðum óski þess og vilji sjá hið óskaplega ástand þessara sálna í myrkrinu.
Viðskilnaður barns
Lítið barn hafði dáið úr lungnabólgu og englar komu til þess að leiðbeina sálinni til andaheimsins. Ég vildi óska að móðir barnsins hefði séð þá yndislegu sjón, þá er ég viss um að í staðinn fyrir að gráta hefði hún sungið af gleði, því englarnir meðhöndla barnssálirnar með svo mikilli umhyggju og kærleika, að engin móðir gæti gert eins.
Ég heyrði þá einn af englunum segja við annan: „Sjáðu hvað móðir barnsins grætur yfir þessum stutta skilnaði. Eftir nokkur ár verður hún aftur hamingjusöm með barni sínu“. Svo fóru englarnir með þessa litlu barnssál til hins fagra og ljósfyllta hluta himinsins, sem sérstaklega er ætlaður barnssálum, og þar fóstra þeir þær og kenna þeim himnesk vísindi, þangað til þær með tímanum verða líkar englunum.
Nokkru síðar dó móðir barnsins og barnið sem nú líktist engli, kom ásamt fleiri englum til að fagna henni. Þegar hann sagði við hana: „Mamma þekkirðu mig ekki? Ég er Theodór sonur þinn“, fylltist móðurhjartað gleði, og þegar þau föðmuðu hvort anna féllu tár þeirra eins og blómaregn. Það var dýrðleg sjón. Meðan þau gengu saman og hann var hjá henni þann tíma sem ákveðið var, að hún skyldi dvelja á millibilssviðinu. Þegar sá tími var liðinn, sem hún þurfti að dvelja í þeim hluta andaheimsins, tók hann hana með sér upp á æðri svið, þar sem hann átti sjálfur heima.
Umhverfið þar var allt dásamlegra en orð fá lýst, og þangað voru komnar sálir óteljandi manna, er þolað höfðu alls konar þrautir vegna Jesú Krists. Þær höfðu að jarðlífi loknu, hlotið þennan dýrðlega dvalarstað að launum. Tignarprýði fagurra fjalla blasti við á allar hliðar. Glitrandi lækir og svalar lindir prýddu fagurt landslag. Í görðunum voru alls konar gómsætir ávextir og fögur blóm. Allt sem hreint hjarta þráði var hér að finna.
Þá sagði hann við móður sína: „Hinn jarðneski heimur er aðeins dauft endurskin af þessari sönnu tilveru. Þeir sem voru okkur kærir syrgja vegna okkar, en segðu mér, er þetta dauði eða hið raunverulega líf sem sérhvert hjarta þráir?“ Móðirin sagði: „Sonur, þetta er hið sanna líf. Ef ég hefði þekkt sannleikann um eilífa lífið meðan ég dvaldi á jörðu, mundi ég aldrei hafa grátið dauða þinn. Það er sorglegt að þeir sem lifa í heiminum séu svona blindir!“ Þrátt fyrir það að Kristur hafi berlega sagt okkur frá þessari dýrðlegu tilveru og Guðspjöllin hvað eftir annað tali um hið eilífa ríki föðurins, þá eru það ekki aðeins hinir fáfróðu, heldur jafnvel margir upplýstir trúmenn sem eru algjörlega ókunnugir dýrð þess. Mætti Guð gefa að allir fengju að koma hingað og njóta gleðinnar hér“.
Viðskilnaður heimspekings
Sál þýsks heimspekings kom yfir í andaheiminn. Í fjarska sá hann strax hina óumræðilegu dýrð andaheimsins og gleði þá sem ríkti þar meðal íbúanna. Hann varð stórlega glaður við, en tilhneiging hans til að skilja allt gerði honum ókleift að komast inn í dýrðina og njóta hennar. Í stað þess að viðurkenna að þetta væri veruleiki, fór hann að deila við sjálfan sig: „Það er enginn vafi á því, að ég sé þetta allt saman, en hvaða sannanir hef ég fyrir að þetta sé veruleiki en ekki tálmyndir minnar eigin ímyndunar? Ég verð að reyna þetta allt og prófa það frá rótum eftir lögmálum rökfræðinnar, heimspekinnar og vísindanna. Þá fyrst get ég dæmt um að þetta sé ekki allt ímyndun“.
Þá sögðu englarnir við hann: „Það er auðheyrt að allt þitt heimspekilega grufl er búið að skaðskemma eðli þitt. Eins og aðeins andleg augu en ekki líkamleg geta séð andlegu tilveruna, eins þarf andlegt skyn til að skilja veruleika hennar. Hér gagnar ekkert að beita lögmálum rökfræðinnar eða heimspekinnar. Vísindi þín, sem aðeins snerta efnisheiminn, skildir þú eftir á jörðu með þínum jarðneska heila. Hið eina sem hjálpar þér hér, er andleg viska, sem er ávöxtur guðsótta og kærleika“.
Þá sagði einn af englunum við annan: „En hvað það er bágt að mennirnir skuli gleyma þessum dýrmætu orðum Frelsarans: Nema þér snúið við og verðið eins og börn, komist þér aldrei í himnaríki“. (Matt. 18,3).
Ég spurði einn af englunum hvernig fara mundi um þennan mann, og hann svaraði: „Ef þessi maður hefði lifað illa, hefði hann strax samlagast illu öndunum í myrkrinu, en hann er ekki gjörsneyddur siðferðistilfinningu. Hann verður um lengri tíma að ráfa um í rökkri á lægri svæðum andaheimsins og reka sig á fávisku hins heimspekilega hugarfars þar til hann verður þreyttur á villu síns vegar og iðrast. Þá mun hann verða fús á að taka fræðslu hjá þeim englum, sem það starf hafa með höndum, og þegar þeirri fræðslu er lokið mun hann verða hæfur til að komast upp á hærri sviðin, þar sem ljósið frá Guði er bjartara“.
Millisviðin
Það má orða það svo, að allur hinn óendanlegi alheimur sem jörðin er í sé fylltur af nærveru Guðs, sem er andi og í þeim skilningi andlegur heimur. Sömuleiðis er jörðin einnig andlegur heimur, því íbúar hennar eru andar klæddir líkama af holdi. En það er líka til andlegur heimur, sem er bráðabirgðabústaður sálnanna eftir að þær hafa skilið við líkama sinn. Þar eru millisvið milli ljóss og dýrðar hinna hæstu himna og rökkurs eða myrkurs hinna lægstu helvíta. Í þessu millibili eru óteljandi svið og hver sál fer á það svið sem líf hennar í heiminum hefur gert hana hæfa fyrir. Þar er sálin frædd af englum, um lengri eða skemmri tíma, og heldur síðan hærra upp til samfélags við góða anda í meira ljósi, ― eða niður til illra anda í myrkrinu, ― allt eftir skapferli, eðli og þroska sálarinnar.