Fimmti kafli
Hlutskipti iðrunarlausra manna
Íslensk útgáfa frá 2016.
Margir menn telja sér trú um, að ef synd er drýgð í leyndum, muni enginn fá að vita um það. En það er algjörlega ómögulegt að nokkur synd geti orðið dulin um alla eilífð. Fyrr eða síðar kemur hún fram í dagsljósið og þá fær syndarinn sína refsingu. Gæska og sannleikur verða heldur ekki dulin. Um tíma getur sannleikurinn verið undirokaður, en hann sigrar alltaf að lokum. Eftirfarandi atvik skýra þetta.
Þjófurinn
Einn af hinum heilögu sagði mér svohljóðandi sögu í einni sýninni: Einu sinni þurfti góður maður að fara langa leið að næturlagi, vegna mjög nauðsynlegs erindis. Á leiðinni rakst hann á þjóf, sem var að brjótast inn í búð, og sagði við hann: „Þú mátt ekki taka annars manns eign og gera honum skaða. Slíkt er mikil synd“. Þá sagði þjófurinn: „Þér er nú ráðlegast að hafa þig héðan burtu, ef þú vilt ekki hafa verra af“. Maðurinn hélt áfram að reyna að tala um fyrir þjófinum, en þegar hann vildi ekki láta segjast, fór vandaði maðurinn að hrópa og kalla til þess að vekja nágrannana. Þegar þeir komu og hann fór að segja eftir þjófinum, sneri þjófurinn við blaðinu og ákærði manninn og sagði: „Þið haldið að þetta sé mesti ráðvendnismaður og guðhræddur, en ég stóð hann hér að þjófnaðinum“.
Af því engin vitni voru við, voru báðir teknir fastir og settir í sama fangaklefa. En lögreglustjórinn og nokkrir þjónar hans földu sig þar til þess að hlusta á samtal þeirra. Þá heyrðu þeir að þjófurinn hældist um og hló að samfanga sínum og sagði: „Þarna sérðu nú hvernig ég veiddi þig. Ég sagði þér að hafa þig í burtu, annars skyldir þú hafa verra af. Nú geturðu séð hvað guðhræðslan hjálpar þér“. Þegar lögreglustjórinn heyrði þetta, opnaði hann hurðina og sleppti vandaða manninum með heiðri og launum, en þjófurinn fékk sína refsingu.
Jafnvel í þessum heimi er dæmt milli hins góða og illa, en fullkomin refsing eða laun koma fyrst í öðrum heimi.
Leyndar syndir
Eftirfarandi atviki var mér einnig skýrt frá í sýn. Maður einn framdi svívirðilegt verk í heimahúsum og hélt að það væri öllum hulið og enginn vissi. Einn af hinum heilögu sagði þá: „En hvað ég vildi óska að andleg augu þessa manns hefðu verið opin, þá hefði hann aldrei dirfst að breyta þannig“. Því að við þetta tækifæri höfðu margir englar og heilagir verið viðstaddir , auk anda ættingja og ástvina, sem komið höfðu til þess að reyna að hjálpa honum. Þeir urðu allir hryggir yfir hinum svívirðilegu aðförum hans, og einn af þeim sagði: „Við komum til að hjálpa honum, en nú verðum við að vitna gegn honum á degi dómsins. Hann gat ekki séð okkur, en við sáum hann öll láta undan ástríðunni. Mætti hann iðrast og frelsast frá refsingunni!“
Glötuð tækifæri
Einu sinni sá ég anda, sem í andaheiminum hljóp um allt með ópum og sjálfsásökunum, og hagaði sér eins og vitskertur maður. Engill sagði þá við mig: „Á jörðinni fékk þessi maður mörg tækifæri til þess að iðrast og snúa sér til Guðs, en alltaf þegar samviskan fór að ónáða hann, kæfði hann rödd hennar með drykkjuskap. Hann eyddi öllum eigum sínum, kom fjölskyldu sinni á vonarvöl og framdi að lokum sjálfsmorð. Nú æðir hann um andaheiminn eins og villidýr og kvelst ofsalega af samviskubiti yfir öllum þeim góðu tækifærum sem hann lét fram hjá sér fara. Við erum fúsir til að hjálpa honum, en hann getur ekki iðrast, því hið fyrra synduga líf hans er búið að forherða hann, enda þótt endurminningarnar um syndir hans lifi í sálu hans. Á jörðinni drakk hann til að deyfa rödd samviskunnar, en hér er ekki hægt að hylja neitt. Nú er sál hans svo nakin, að bæði hann og aðrir geta séð hvernig líf hans var. Honum og hans líkum er enginn annar vegur fær en að hylja sig niðri í myrkrinu, til þess á þann hátt að forðast þær kvalir sem ljósið frá Guði veldur þeim“.
Spilling hræðist ljósið
Maður nokkur, sem á jörðinni hafði lifað mjög óguðlegu lífi, kom að mér viðstöddum til andaheimsins. Þegar englar og góðir andar komu til þess að hjálpa honum, fór hann strax að formæla þeim og hæða þá og sagði: „Guð er algerlega ranglátur. Hann hefur gert himininn handa skríðandi þrælum eins og ykkur, en öðrum mönnum kastar hann í helvíti. Þó segið þið, að hann sé kærleikur“. Englarnir svöruðu: „Sannarlega er Guð kærleikur. Hann skapaði manninn til þess hann lifði í eilífu samfélagi við hann, en með eigin mótspyrnu og rangri notkun hins frjálsa vilja, hafa mennirnir snúið ásjónum sínum frá honum og skapað sér sjálfum helvíti. Guð hefur aldrei kastað neinum í helvíti og mun ekki gera það. Það er maðurinn sjálfur sem skapar sér helvíti með því að ánetja sig syndinni. Guð hefur aldrei skapað neitt fyrir helvíti“.
Rétt í þessu heyrðist hin yndislega rödd eins af æðstu englunum segja: „Guð leyfir að þessi sál megi koma upp í himininn“. Maðurinn hljóp óðfús áfram og tveir englar fylgdu honum, en þegar þeir komu að hliðum himinsins og sáu hinn heilaga og ljósfyllta stað og hinar dýrðlegu og sælu verur sem þar búa, fór maðurinn að verða órór. Þá sögðu englarnir við hann: „Sjáðu hvað þetta er fagur heimur! Haltu áfram og sjáðu hinn blessaða Drottinn í hásætinu“.
Þar sem maðurinn stóð við hliðið sá hann inn í ríki dýrðarinnar, en þegar ljósið frá sól réttlætisins opinberaði allt hans synduga líf og óhreinleik, fylltist hann viðbjóði á sjálfum sér og flýði burt með þeim hraða, að hann nam ekki einu sinni staðar í andaheiminum. Hann féll í gegnum hann eins og steinn og hentist niður í botnlausa díkið.
Þá heyrðist hin milda og gagntakandi rödd Drottins: „Sjá, kæru börn mín, engum er meinað að koma hingað. Enginn bannaði þessum manni að koma hingað eða rak hann burt héðan. Það var hans eigið synduga líf, sem neyddi hann burt frá þessum helga stað, því enginn getur séð Guðsríki nema hann endurfæðist“. (Jóh. 3,3).
Sál morðingjans
Maður nokkur, sem fyrir nokkrum árum hafði myrt kristinn predikara, varð fyrir höggormsbiti og dó. Þegar hann kom inn í andaheiminn, sá hann að hann var umkringdur af illum og góðum andaverum. Af því að allt útlit hans bar vott um að hann var stórsyndari, náðu illu andarnir brátt valdi á honum og drógu hann með sér niður í myrkrið. Þá sagði einn af hinum heilögu: „Þessi maður drap einn af þjónum Drottins með eitri reiðinnar, nú var hann sjálfur drepinn með eitri höggormsins. Hinn gamli höggormur, djöfullinn, hefur með hjálp þessa manns drepið saklausan mann. Nú hefur djöfullinn með hjálp annars höggorms, drepið þennan mann, því „hann var manndrápari frá upphafi“. (Jóh. 8,44).
Meðan verið var að fara með sálu morðingjans í burtu, kom einn af góðu öndunum, sem óskaði að hjálpa honum, og sagði við hann: „Ég hef fyrirgefið þér af heilum hug. Get ég nú ekkert gert til þess að hjálpa þér?“ Morðinginn þekkti strax, að það var maðurinn, sem hann hafði myrt nokkrum árum áður, og féll fram fyrir hann, fullur blygðunar og skelfingar. Illu andarnir tóku þá strax að gera hávaða, en englarnir sem stóðu álengdar, hræddu þá til að þegja. Þá sagði morðinginn við þann, sem hann hafði myrt: „Ég vildi óska þess að ég hefði séð hvað þú varst fullur kærleika og ósérplægni, eins og ég sé nú. Það hryggir mig, að blindni mín og sú hula, sem jarðneski líkaminn lagði yfir þig, skyldi verða þess valdandi, að ég sá ekki hina leyndu fegurð lífs þíns. Með því að myrða þig, rændi ég líka marga aðra þeirri blessun og gagni, sem líf þitt hefði orðið þeim. Nú verð ég að eilífu syndari fyrir Guði og ég á sannarlega refsinguna skilið. Ég veit ekki hvað ég get gert annað en að fela mig í myrkrinu, því ég kvelst í þessu ljósi. Í ljósinu þjáist ekki aðeins mín eigin sál, en allir aðrir geta líka séð hvert smáatvik í mínu synduga lífi“.
Þá svaraði sál myrta mannsins: „Þú ættir heldur að iðrast af öllum huga og snúa þér til Guðs, því ef þú gerir það, þá er von um að Guðslambið þvoi þig hreinan í blóði sínu og gefi þér nýtt líf, svo þú getir lifað með okkur á himnum og frelsast frá kvölum helvítis“.
Morðinginn sagði þá: „Því skyldi ég játa syndir mínar? Þær eru hvort sem er öllum augljósar. Ég gat dulið þær á jörðu, en hér ekki. Ég vildi gjarnan lifa með hinum heilögu eins og þér á himni, en hvernig á ég að þola við, þar sem ljósið skín í allri dýrð og ljóma, þegar ég kvelst hér í þessum tiltölulega daufa bjarma frá ljósinu, sem opinberar sjálfan mann hér í andaheiminum? Stærsta hindrunin fyrir mig er að samviska mín er orðin svo forhert og tilfinningarlaus, að sál mín getur ekki beygt sig fyrir Guði eða iðrast. Það er enginn þróttur eftir í mér til þess að geta iðrast. Ég verð að útilokast héðan að eilífu, annað er ekki hægt. Vei mér!“ Eftir að hafa sagt þetta, féll hann niður, lamaður af skelfingu, og félagar hans, illu andarnir, drógu hann niður í myrkrið.
Þá sagði einn af englunum: „Sjá, hér þarf ekki að kveða upp neinn dóm. Líf syndarans sjálfs dæmir hann sekan. Vitni þarf hér ekki. Að nokkru leyti byrjar hegningin þegar á jörðu, í hjarta syndarans, en það er fyrst hérna megin að þeir finna að fullu fyrir áhrifum hennar. Guð hefur komið því svo fyrir hér, að sauðir og hafrar, eða réttlátir og syndarar, aðskilja sig sjálfir. Guð skapaði manninn til þess að lifa í ljósinu, því ljósi sem andleg heilbrigði og gleði getur aðeins þrifist í. Þess vegna getur enginn maður orðið sæll í ljósinu, meðan syndin hefur vald á honum. Þess vegna er syndarinn alltaf í helvíti, hvert sem hann snýr sér. En hinn réttláti, sem er frelsaður frá syndinni er alls staðar í himnaríki, hvar sem hann er“.
Sál lygara
Maður nokkur var orðinn svo lyginn meðan hann dvaldi hér á jörðu, að lygin var orðin hans annað eðli.
Þegar sálin skilur við líkamann, ber hún með sér öll merki syndarinnar, og þegar hún stendur á himni í nekt sinni, geta allir séð syndir hennar. Þar vitna þær gegn henni. Merki syndarinnar getur ekkert hreinsað burt, nema blóð Krists.
Meðan þessi maður lifði á jörðu, reyndi hann alltaf að gera rétt að röngu og lygi að sannleika. En eftir dauðann komst hann að raun um, að það hefur aldrei verið, og verður aldrei nokkur leið að gera sannleik að lygi. Lygarinn svíkur alltaf sjálfan sig, svo þessi maður hafði ekki náð öðru með lygum sínum en að drepa þá sannleikskennd í sálu sinni, sem hann hafði áður átt. Ég athugaði hann, þegar hann flæktur í sínum eigin svikum, snéri ásjónu sinni burt frá ljósinu og flýtti sér út í myrkrið, þar sem engir sjá lygar hans, nema andar þeir sem eru á sama siðferðisstigi og hann sjálfur. Því Sannleikur er ávallt Sannleikur og hann einn sakfelldi þessa sál sem lygara.
Sál hórkarlsins
Ég sá líka hórkarl skömmu eftir að hann kom til andaheimsins. Tungan lafði út úr munni hans eins og á manni dauðvona af þorsta. Nasir hans voru útþandar og hann barðist um með handleggjunum eins og hann kveldist af logandi eldi innra með sér. Útlit hans var svo viðbjóðslegt, að mér var andstyggð að horfa á hann. Allt það, sem sællífi og nautnir geta veitt, hafði hann orðið að skilja eftir hér í heimi, og hann hljóp um eins og vitfirringur og hrópaði: „Bölvað sé þetta líf. Hér er enginn dauði sem getur gert enda á því. Sálin getur ekki dáið, annars fremdi ég aftur sjálfsmorð eins og á jörðu, til þess að komast hjá vandræðunum þar. En þessar kvalir eru langtum verri. Hvað á ég að gera?“ Meðan hann talaði þannig, flýtti hann sér út í myrkrið, þar sem margir hans líkar voru. Þar hvarf hann.
Þá sagði einn af hinum heilögu: „Það eru ekki aðeins ill verk sem eru synd, heldur eru líka illar hugsanir og illt tillit synd. Sjötta boðorðið er ekki aðeins bann við samræði við óviðkomandi konur, heldur er líka holdlegt óhóf og dýrslegt líf með eiginkonu sinni brot gegn því. Maður og kona eru eitt, til að þau styðji og hjálpi hvort öðru og lifi með börnum sínum ætt sinni til gagns og Guði til dýrðar, en ekki til að svala fýsnum sínum. Sá sem víkur frá þessu lögmáli lífsins, drýgir mikla synd“.
Sál ræningjans
Ræningi einn dó og kom yfir í andaheiminn. Fyrst í stað lét hann sig engu skipta hvar hann var, eða hvernig honum leið og skipti sér ekkert af öndum þeim sem voru í nánd við hann. En bráðlega fór hann að láta að fyrri venju sinni og ásælast það sem hann komst yfir og nokkurs var vert. En hann undraðist mjög, þegar sjálfir hlutirnir, sem hann stal og rændi, virtust tala og ákæra hann fyrir verk hans. Hann var svo illa að sér, að hann vissi hvorki til hvers átti að nota þessa hluti eða gat notað þá til neins. Á jörðinni höfðu ástríður hans verið svo ótamdar, að hann drap menn og meiddi fyrir minnstu sakir eða ef þeir móðguðu hann á nokkurn hátt. Nú tók hann að hegða sér eins. Öndum þeim, sem komu til að hjálpa honum, tók hann eins og hann ætlaði að rífa þá í tætlur. Þá sagði einn af englunum: „Ef öndum eins og þessum væri ekki haldið niðri í myrkrum neðstu undirdjúpanna, gætu þeir gert afar mikið illt, hvar sem þeir kæmu. Samviska þessa manns er svo algerlega dauð, að honum er ómögulegt að sjá, að með morðum sínum og þjófnaði á jörðu hefur hann eytt sínum andlega auði og eyðilagt hæfileika sína til andlegs lífs. Hann drap og eyddi öðrum, en með því var hann í raun og veru að drepa sjálfan sig. Guð einn veit, hvort þessi maður og hans líkar verða vistaðir í kvalastaðnum um aldir eða að eilífu“.
Eftir þetta tóku englar, sem hafa það starf, mann þennan og lokuðu hann niðri í myrkrinu og þaðan kemst hann ekki út. Ástand þeirra sálna sem þar búa, er svo skelfilega hryllilegt og kvalir þeirra svo ógurlegar, að þeim sem sjá það, hlýtur að ofbjóða.
Með þeim takmörkunum, sem okkar jarðneska tungumál setur okkur, get ég aðeins sagt, að hvar sem syndarinn er, lifir hann á allan hátt í kvölum sem aldrei linnir nokkra stund. Logi nokkurs konar ljóslauss elds leikur um þessar sálir og þjáir þær. Þó brenna þær ekki eða eyðast, og eldurinn deyr ekki.
Einn af öndunum, sem hafði séð þetta atvik, sagði þá: „Hver veit þó, nema eftir allt saman sé þetta nokkurs konar hreinsunareldur“.
Helvíti
Í þeim hluta andaheimsins, sem kallast helvíti, eru mörg svið, eftir fjölda og tegund þeirra synda, sem sálirnar hafa drýgt. Það er sannleikur, að Guð skapaði allar sálir í sinni mynd, en með því er átt við mynd sonar hans, því sonurinn er ímynd hins ósýnilega Guðs. (1. Mósebók 1,26-27; Kólossubr. 1,15). Með syndum sínum hefur maðurinn afskræmt Guðs-myndina og gert hana ófagra og illa. Hinar vondu sálir hafa einnig nokkurs konar andlegan líkama, en hann er ljótur og ægilegur og ef þeir endurfæðast ekki í sannri iðrun fyrir Guðs náð, verða þeir að eilífu í þessari viðbjóðslegu mynd og kvölum.