← BækurVitranir frá öðrum heimi

Annar kafli

Dauðastundin

um 4 mín. lestur

Íslensk útgáfa frá 2016.

Dag nokkurn, er ég bað í einrúmi, sá ég mig allt í einu umkringdan fjölda andlegra vera. Réttara væri ef til vill að segja, að um leið og mér opnaðist hin andlega sýn, fann ég sjálfan mig á knébeði mínu á meðal fjölda hinna heilögu og engla. Fyrst var eins og ég færi hjá mér þegar ég sá hvað þeir voru ljómandi og dýrðlegir, þegar ég bar þá saman við mig, sem stóð þeim svo langt að baki. En samúð þeirra og kærleikur gerði mig þegar rólegan.

Áður hafði ég þekkt og fundið þann frið, sem Guðs-nálægðin veitir í lífinu, en samveran við þessa helgu anda fyllti mig nýjum og óþekktum fögnuði. Í samtalinu gáfu þeir mér svör við ýmsum örðugum viðfangsefnum, sem ég hafði ekki skilið áður.

Fyrst spurði ég um, hvað færi fram á dauðastundinni og hvernig líðan sálarinnar væri eftir dauðann. Ég sagði: „Við vitum hvað gerist í lífi okkar frá bernsku og fram í elli, en við vitum ekkert um hvað gerist í dauðanum, eða hinum megin við dauðans dyr. Þekkingu á því hafa aðeins þeir, sem stigið hafa yfir þrep dauðans og komnir eru inn í andaheiminn. „Getið þið“, spurði ég, „frætt mig nokkuð um þessi efni?“

Einn af hinum heilögu svaraði þessu: „Það er með dauðann eins og svefninn. Það eru engar kvalir við sjálfa breytinguna frá lífi til dauða, nema í einstaka tilfellum, og stendur þá í sambandi við líkamlega sjúkdóma eða sérstakt andlegt ástand. Eins og örþreyttur maður yfirbugast af svefnþunganum, eins sofnar maðurinn dauðasvefninum.

Dauðinn kemur mörgum svo að óvörum, að þeir eiga mjög erfitt með að átta sig á að þeir séu búnir að yfirgefa efnisheiminn og komnir yfir í andlega tilveru. Oft álíta menn sig þá komna til annars lands eða borgar hér í heimi, þegar þeir sjá hið marga nýja og fagra, sem þeim birtist. Fyrst þegar búið er að fræða þá og þeir sjá að andlegi líkaminn er öðruvísi en sá jarðneski var, skilja þeir, að þeir eru fluttir úr efnisheiminum yfir í andaheiminn“.

Annar hinna heilögu svaraði ennfremur: „Venjulega tapar líkaminn tilfinningunni smátt og smátt rétt fyrir dauðann. Hann finnur ekkert til, en yfirbugast af svefnþörf. Stundum yfirgefur sálin líkamann meðvitundarlausan, t.d. í miklum veikindum eða við slysfarir. Þegar slíkt kemur fyrir, að menn koma yfir um án þess á nokkurn hátt að búa sig undir það meðan þeir lifðu, verða þeir oft fyrst í stað ákaflega ruglaðir og eiga bágt með að sætta sig við tilveruna. Verða þeir því í lengri eða skemmri tíma að dvelja á lægri og dimmari millisviðunum. Andarnir sem dvelja á þessum lægri sviðum, geta oft þjáð menn hér á jörðu á ýmsan hátt. En þeir geta aðeins gert þeim mönnum mein, sem að siðferðis- og sálarástandi eru þeim líkir og opna sálir sínar og hugskot fyrir þeim af fúsum vilja. Þessir vondu andar gætu gert mjög mikið illt, þegar þeir sameina sig margir, ef Guð hefði ekki sett fjölda engla til varðveislu mönnunum og öðru sköpuðu, svo að mennirnir sem óttast hann eru sífellt undir vernd hans. Illir andar geta aðeins gert siðferðilegum jafningjum sínum illt og þó aðeins innan vissra takmarka. Þeir geta að vísu hrjáð hina réttlátu, en aðeins með leyfi Guðs. Hann gefur stundum Satan og árum hans leyfi til að freista og hrjá Guðs fólk, til þess að það að yfirunnum freistingum og raunum styrkist og betrist. Þannig leyfði Guð Satan að ofsækja Job. En slík reynsla er jafnan trúuðum manni ávinningur“.

Enn bætti einn af hinum heilögu við: „Margur maður, sem ekki hefur helgað líf sitt Guði, virðist tapa meðvitund rétt áður en hann deyr. Svo er þó ekki, heldur verða þeir sem steini lostnir og höggdofa af ótta, þegar þeir sjá sig umkringda af djöfullegum og hræðilegum svipum illra anda. Á hinn veginn er dauði trúaðra manna algjörlega gagnstæður. Trúuðum manni er dauðastundin oft sælustund hin mesta, því þá sér hann engla og anda hinna heilögu komna til að bjóða hann velkominn, og fylgja honum yfir um. Þá er og oft látnum ættingjum og ástvinum leyft að koma til að taka á móti honum. Þegar hann kemur yfir í andaheiminn finnst honum strax hann eiga þar heima, bæði vegna þess, að þar hittir hann vini sína og eins vegna hins, að hann í lifanda lífi hefur með trausti sínu á Guði og andlegri umgengni við hann búið sig undir komuna þangað og vænst hennar“.

Þá sagði hinn fjórði hinna heilögu: „Það er starf englanna að flytja sálir mannanna héðan af jörð. Venjulega opinberar Kristur sig hverri sál í andlega heiminum, í þeirri dýrð sem stendur í hlutfalli við andlegan þroska hennar. En stundum kemur hann sjálfur að dánarbeðnum til þess að fagna þjónum sínum og þerra tár þeirra í kærleika sínum þegar hann leiðir þá til Paradísar.

Eins og barnið sem fæðist í þennan heim finnur allt undirbúið undir komu þess, eins finnur sálin við komu sína til andlega heimsins allt undirbúið til þess að fullnægja þörfum hennar“.

Um þessa útgáfu

Vitranir frá öðrum heimi (á ensku: Visions of the Spiritual World). Sadhu Sundar Singh.

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

2. kafli af 8 · 4 mín. eftirDauðastundin