← BækurVitranir frá öðrum heimi

Vitranir frá öðrum heimi

Sadhu Sundar Singh

Inngangur

Formáli biskupsins í Lahore

um 3 mín. lestur

Íslensk útgáfa frá 2016.

Mér er upphefð að því að geta orðið við bón vinar míns, Sadhu Sundar Singh, um að skrifa stuttan formála við þessa bók hans, því ég er viss um, að hún getur orðið mörgum mönnum til hjálpar í baráttunni við að leita sannveruleikans. Ég vildi aðeins óska, að allir lesendur bókarinnar hefðu borið gæfu til þess að þekkja höfundinn persónulega, eins og við margir hér á Norður-Indlandi og raunar margir í Evrópu líka. Því að þeim boðskap, sem bókin fjallar um, eykst styrkur við þau áhrif andlegar heilbrigði og heilagrar einfeldni, sem stafar frá höfundi hennar við samtal og kynningu.

Ég get búist við að margir lesendur freistist til að spyrja: „Hvað er eiginlega það, sem hér er skýrt frá?“ „Að hve miklu leyti hefur undirmeðvitundin haft hér hönd í bagga? Var nokkur veruleiki bak við þessar sýnir?“

Ég hef ekki þá heimspekilegu þekkingu, að ég sjái mér fært að svara þessum spurningum. Og ég er hins vegar alls ekki viss um, að þó ég gæti það, þá væri nokkuð unnið. Páll postuli lætur sér nægja að segja frá sinni mestu andlegu reynslu, án þess að leitast við að skýra hana. „Hvort það var í líkamanum, veit ég ekki, eða utan líkamans, veit ég ekki, Guð veit það“ (2. Korintubr. 12,2). Hið sannasta virðist vera, að taka það eins og það er talað, í einfeldni hjartans.

Það var síðari hluta sunnudags, í sumar sem leið að ég las handrit bókar þessarar í Simla. Þegar ég að loknum lestri, reyndi að gera mér grein fyrir áhrifum hennar, voru þau þessi: Ég fann að tjaldið, sem sífellt dylur okkur útsýn til hinnar sönnu tilveru, var dregið um stund til hliðar, og mér hafði leyfst, gegnum þennan trygga þjón Krists, að sjá hlutina á bak við það, eins og þeir eru. Og mér er næst að halda, þó ég megi ekki fullyrða það, að vini mínum, Sundar Singh, sé kærast að sýnir hans séu „skýrðar“ á þennan einfalda hátt.

Meðan ég var að hugsa um það sem ég hafði lesið, komu mér í hug orð úr heilagri ritningu, sem virtust snerta svipuð efni.

Samhliða öllum hinum mismunandi skoðunum á því, hvernig Guðsríki komi, eigum við vitnisburð Drottins sjálfs um hvernig það hafi komið með ákveðnum hætti. Í Markús 9,1 segir hann: „Sannlega segi ég yður, nokkrir af þeim, er hér standa, munu alls eigi smakka dauðann, fyrr en þeir sjá Guðsríkið komið með krafti“. Bæði í Markúsar- og Matteusarguðspjalli eru þessi orð tengd svo ákveðið við ummyndunina á fjallinu, að ég efast ekki um, að guðspjallahöfundarnir hafa báðir skoðað þetta minnisstæða atvik í lífi hinna þriggja útvöldu lærisveina sem „Guðsríki komið í krafti.“ (Einn af lærisveinunum þremur var Pétur, sem var heimildarmaður Markúsarguðspjalls).

En ummyndunin á fjallinu var einmitt fólgin í því, að tjaldið sem dylur hinn ósýnilega heim, var dregið til hliðar, svo að nokkrir íbúar hans urðu sýnilegir og heyranlegir mannlegum augum og eyrum og heilagleikur og dýrð Jesú Krists birtist gegnum hans jarðneska líkama.

Getur ekki verið, að slík reynsla eins og þessi, veitist ennþá þjónum Guðs? Ég fyrir mitt leyti trúi því að reynsla Sundar Singh í sýnum hans hafi verið sams konar, að hann hafi séð tilveruna annars heims eins og hún er sönn, og séð sjálfan Drottin, eins og hann er.

Slíkum opinberunum eins og þessum, er skylt að taka með lotningu, en þær verða líka að vera skoðaðar með tilliti til opinberunar Guðs í Jesú Kristi. Þann mælikvarða hef ég reynt að leggja á þessar opinberanir og mér finnast þær vera í fullu samræmi við dýrlegustu opinberun Guðs, eins og hún birtist í lífi og kenningu Drottins vors. Ég tek þær því sem enn eina sönnun þess, að Guð talar ennþá til lýðs síns, og ég bið þess, að þessi litla bók megi opna augu margra fyrir hinni „raunverulegu tilveru“ sem umlykur okkur, „sem er nær en andardráttur vor, nær en hendur vorar og fætur“, en sem við allt of oft lokum augunum fyrir.

Simla, 6. ágúst 1926

Biskupinn í Lahore á Indlandi

Um þessa útgáfu

Vitranir frá öðrum heimi (á ensku: Visions of the Spiritual World). Sadhu Sundar Singh.

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

Inngangur · 3 mín. eftirFormáli biskupsins í Lahore