Fjórði kafli
Þjónustan
Fyrri hluti
Lærisveinninn: Meistari, hver er hin raunverulega merking þjónustu? Felst hún í því að við þjónum Skaparanum og síðan sköpunarverum Hans vegna Hans? Hefur hjálp mannsins, sem er þegar allt kemur til alls ekki annað en lítilmótlegur maðkur, nokkurt gildi fyrir Guð við umönnun hinnar miklu fjölskyldu Hans, eða þarfnast Guð hjálpar mannsins til að vernda eða varðveita nokkra af sköpunarverum sínum?
Meistarinn: 1. Þjónusta merkir virkni hins andlega lífs og er sú eðlilega fórn sem kærleikurinn knýr fram. Guð, sem er kærleikur, er sívirkur í umhyggju sinni fyrir sköpunarverki sínu, og þrá Hans er sú að sköpunarverur Hans, og þó einkum maðurinn sem Hann mótaði í sinni eigin mynd og líkingu, séu aldrei iðjulausar. Við umönnun og varðveislu sköpunarvera sinna þarfnast Guð einskis manns hjálpar, því að Hann skapaði þær þannig að án hjálpar Hans gætu þær ekki haldið áfram að vera til, og það er Hann sem hefur séð fyrir öllu sem þarf til að uppfylla þrár þeirra. Í sannri þjónustu við aðra felst sá mikli ávinningur að hún hjálpar þeim sem þjónar – rétt eins og kom fyrir þig í Tíbet. Þegar þú óttaðist að þú myndir deyja í bitrum kuldanum sástu mann liggja grafinn í snjónum að dauða kominn, gekkst til hans, lyftir honum upp á axlir þínar og barst hann áfram, og áreynslan vakti hita í líkama þínum sem færðist einnig yfir í hans, og bæði hann og þú björguðust, svo að með því að bjarga honum bjargaðir þú eigin lífi. Þetta er hinn sanni tilgangur þjónustunnar. Enginn getur lifað einn og án hjálpar annarra. Ef einhver þægi hjálp frá öðrum en væri ófús til að endurgjalda þá aðstoð eftir bestu getu, ætti slíkur vanþakklátur maður engan rétt á að vænta nokkurrar hjálpar frá nokkrum manni.
2. Þangað til maðurinn leggur þá hæfileika og krafta, sem Guð hefur gætt hann, fram í þjónustu við Guð og menn, mun hann ekki hljóta frá Guði þá hjálp sem Hann einn getur veitt. Jafnskjótt og maðurinn gerir sitt mun Guð fullkomna verkið. Til dæmis var það verk manna að taka steininn frá gröf Lasarusar og ekki var þörf á að Guð beitti mætti sínum til þess; en þegar fólkið hafði velt steininum frá gerði Guð, það er að segja Ég sjálfur, það sem var ofar mannlegum mætti og færni, því að Ég gaf hinum látna líf. Jafnvel eftir það var enn verk fyrir menn að vinna við að leysa Lasarus úr líkblæjunum svo að hann yrði algjörlega frjáls (Jóhannesarguðspjall 11:39, 41, 44).Jóhannes 11:39, 41, 44
Eins er því farið með þá sem eru dauðir í synd. Það er verk lærisveina Minna að velta burt legsteinum hindrana og erfiðleika, en að gefa líf er Mitt verk. Oft vill það einnig brenna við að sumir, sem hafa öðlast andlegt líf, eru enn í fjötrum gamalla ósiða og ills félagsskapar, og þá er það skylda barna Minna að leiða þá út í fullkomið frelsi; og til að inna þessa miklu þjónustu af hendi ættu börnin Mín ávallt að vera vakandi í hjarta og sál.
3. Konungur nokkur lá banaleguna og mælti svo til dyggs þjóns síns: „Það hefur verið siður minn, þegar ég legg upp í ferðalag, að senda þig á undan mér til að boða komu mína og búa allt undir móttöku mína. Nú fer ég til lands hinna dauðu. Far þú því og lát þá vita að ég sé í þann mund að slást í för með þeim.“ Í fyrstu skildi hinn heiðarlegi þjónn ekki hvað herra hans átti við, en jafnskjótt og hann sá að merkingin var sú að hann skyldi deyja og fara þannig á undan honum til lands hinna dauðu, rak þessi trúfasti maður sverð í hjarta sér án þess að hika eða efast eitt andartak og hélt þannig inn í land hinna dauðu til að bíða þar herra síns. Eins er það skylda þeirra sem þjóna Mér, sem er Drottinn lífsins og Konungur konunga (Postulasagan 3:15; Opinberunarbókin 19:16), að færa þeim fagnaðarerindi hjálpræðisins sem eru dauðir í synd, og vera jafnvel reiðubúnir að leggja líf sitt í sölurnar fyrir Mig, sem kom til jarðarinnar þeim til hjálpræðis og mun koma enn á ný (Opinberunarbókin 2:10).Opinberunarbókin 19:16 · Biblían 1981 · Postulasagan 3:15 · Opinberunarbókin 2:10
4. Uppreisnargjarn sonur yfirgaf eitt sinn hús föður síns, gekk til liðs við ræningjaflokk og varð með tímanum jafn ófyrirleitinn og miskunnarlaus og hinir. Faðirinn kallaði þjóna sína á sinn fund og bauð þeim að fara til sonar síns og segja honum að ef hann vildi iðrast og snúa heim yrði honum allt fyrirgefið og hann myndi taka við honum á heimili sínu. En þjónarnir óttuðust óbyggðirnar og hina grimmu ræningja og neituðu að fara. Þá lagði eldri bróðir unga mannsins af stað til að færa honum boðskap fyrirgefningarinnar, því að hann elskaði hann líkt og faðir hans gerði. En skömmu eftir að hann kom inn í frumskóginn réðst ræningjaflokkur á hann og særði hann til ólífis. Yngri bróðirinn var í flokknum, og þegar hann þekkti eldri bróður sinn fylltist hann harmi og samviskubiti. Eldri bróðurnum tókst að skila boðskap fyrirgefningarinnar, sagði síðan að tilgangi lífs síns væri náð og skyldu kærleikans fullnægt, og gaf upp öndina. Þessi fórn eldri bróðurins hafði svo djúp áhrif á hinn uppreisnargjarna pilt að hann sneri fullur iðrunar aftur til föður síns og lifði nýju lífi upp frá þeim degi. Er það því ekki rétt að synir Mínir séu reiðubúnir að fórna lífi sínu til að færa þeim bræðrum sínum boðskap miskunnarinnar sem hafa villst af leið og glatast í synd, rétt eins og Ég gaf einnig líf Mitt öllum til hjálpræðis?
5. Börnin Mín eru eins og salt í heiminum (Matteusarguðspjall 5:13). Ef saltkornin leysast ekki upp geta þau ekki gefið frá sér bragðið. Eins er því farið með börnin Mín. Ef þau bráðna ekki í eldi kærleikans og heilags anda og verða að lifandi fórn, munu þau ekki geta fært einni einustu sál það andlega og himneska líf sem getur frelsað hana. Þau verða þá engu betri en kona Lots sem varð að saltstöpli (Fyrsta Mósebók 19:26). En rétt eins og Ég bráðnaði í Getsemane ykkar vegna (Lúkasarguðspjall 22:44) og gaf líf Mitt á krossinum svo að Ég mætti bjarga lífi manna, því að líf verður að gjalda með lífi, þannig eruð þið einnig kölluð til að gefa líf ykkar og færa öðrum þannig bragð hins andlega lífs og frelsa þá frá dauða.Fyrsta Mósebók 19:26 · Biblían 1981 · Matteus 5:13 · Lúkas 22:44
6. Morðingi nokkur var sendur í orrustu í stað þess að vera hengdur, og þar barðist hann fyrir konung sinn og föðurland af svo óttalausu hugrekki að þótt hann særðist alvarlega sneri hann aftur sem sigurvegari. Eftir sigurinn var hann aftur leiddur fyrir réttinn til að hljóta dóm sinn. Þegar konungurinn sá örin eftir sárin á líkama hans felldi hann dauðadóminn úr gildi, og ekki nóg með að hann fyrirgæfi honum glæpinn, heldur veitti hann honum ríkulega umbun og hóf hann til vegs og virðingar. Eins munu þeir sem berjast Mér við hlið í hinu heilaga stríði gegn Satan af hugrekki og djörfung til að frelsa bræður sína og systur ekki aðeins hljóta fyrirgefningu synda sinna frá Mér, heldur mun Ég í Guðs ríki veita þeim kórónu og konungsdóm (Jakobsbréf 5:20; Opinberunarbókin 3:21).Jakobsbréfið 5:20 · Biblían 1981 · Opinberunarbókin 3:21
7. Rétt eins og vatnsrör, sem notað er til að leiða hreint vatn, helst sjálft hreint af vatninu sem rennur í gegnum það, þannig hreinsast þeir sjálfir sem fyrir heilagan anda bera öðrum lífsins vatn, og verða erfingjar að Guðs ríki.
8. Besta leiðin fyrir hinn trúaða til að verða hæfur til að taka á móti heilögum anda og til þjónustu er að hlýða hinni himnesku röddu og byrja þegar í stað að þjóna eftir bestu getu. Til að verða góður sundmaður dugir skammt að hljóta tilsögn nema maður fari sjálfur út í vatnið og taki sundtökin, og aðeins með stöðugri æfingu, fyrst á grunnu vatni og síðan á djúpu, getur maður náð fullri leikni í þeirri list; eins er besta leiðin til að læra að bjarga sálum þeirra, sem eru að sökkva í myrk vötn syndarinnar, sú að ganga í hinn eina sanna og hagnýta guðfræðiskóla, sem er einingin við Mig sjálfan (Postulasagan 4:13).Postulasagan 4:13
9. Sumir láta hugsunina um eigin vanmátt aftra sér frá því að þjóna og muna ekki að máttur Minn veitir kraft í veikleika (Síðara Korintubréf 12:9). Þeir eru eins og sjúklingar sem hafa að vísu náð sér af veikindum sínum og neyta næringarríkrar fæðu, en eru þó enn máttvana vegna þess að þeir vinna ekkert verk og hreyfa sig ekki sem skyldi. Það sem slíkir trúaðir þurfa er að setja traust sitt á Mig og leggja af stað til að bjarga syndurum frá glötun.Seinna Korintubréf 12:9
Síðari hluti
1. Kærleikurinn er sá prófsteinn sem gerir mönnum kleift að skynja veruleika sannleikans, og á því munu allir þekkja að þið eruð Mínir lærisveinar (Jóhannesarguðspjall 13:35). Ég beiti einnig sverði réttlætisins, svo að við fyrstu sýn hneigjast sumir til að halda að Ég hyggist, líkt og Salómon, ljúka verki Mínu án miskunnar (Fyrri Konungabók 3:16-28), en markmið Mitt, eins og hans, er að beita prófsteini kærleikans sem leiðir sannleikann í ljós og sýnir að þið eruð börn þess Guðs kærleikans sem gaf líf sitt til að bjarga lífi ykkar. Þið eigið því að vera stöðug í þeim kærleika og þjóna hvert öðru, og jafnvel gefa líf ykkar í þjónustu við aðra, eins og Ég gaf einnig líf Mitt fyrir ykkur. Þá munuð þið einnig lifa, eins og Ég lifi (Jóhannesarguðspjall 14:19).Jóhannes 13:35 · Biblían 1981 · Fyrri Konungabók 3:16–28 · Jóhannes 14:19
2. Ef þið eruð sannarlega lærisveinar Mínir mun þjónusta kærleika ykkar bera mikinn ávöxt (Jóhannesarguðspjall 15:8). Og ef menn tala illa um ykkur og ausa ykkur svívirðingum, þá biðjið fyrir þeim, og í stað þess að ávíta þá skuluð þið leyfa þeim að bragða hinn ljúfa ávöxt kærleika ykkar.Jóhannes 15:8
Þegar óþekktarormar koma auga á sæta ávexti á tré grýta þeir það með steinum, en tréð lætur sinn yndislega ávöxt falla yfir þá möglunarlaust í stað steina. Því að tréð hefur enga steina til að kasta, heldur gefur það umyrðalaust það sem Guð hefur gefið því. Látið ekki bugast af illri meðferð, því að sú staðreynd að menn ausi ykkur skömmum er full sönnun þess að líf ykkar ber ávöxt. Þótt þeir komi þannig fram við ykkur af öfund og illgirni, þá birtist dýrð föður ykkar á himnum engu að síður með þeim hætti. Ætlið ekki að Guð hungri eftir dýrð eða að eitthvað skorti á dýrð Hans sem maðurinn geti bætt úr. Síður en svo! Markmið kærleika Hans er að lyfta þeirri lítilmótlegu sköpunarveru, manninum, upp úr því synduga ástandi sem hann er fallinn í og bera hann upp til himins dýrðar Hans. Þannig veitir Hann ekki sjálfum sér dýrð heldur manninum með því að hreinsa hann og skíra, og í því birtist undur og hátign kærleika Hans.
3. Þeim sem með erfiði sínu hafa gert mörgum kleift að snúa baki við syndinni og finna réttlæti í Mér mun Ég veita slíka dýrð að þeir munu fyrst skína eins og stjörnurnar, og síðan, þegar þeir eru fullkomnaðir, skína sem sól í ríki föður þeirra. Stjörnurnar fölna og hverfa við upprás Sólar réttlætisins, en ósk föður Míns er sú að synir Hans verði fullkomnir eins og Hann sjálfur og skíni með Honum í eilífri dýrð og gleðjist að eilífu í takmarkalausum og eilífum kærleika Hans.
4. Til eru litlar lífverur, langt fyrir neðan manninn að virðingu, svo sem eldflugan með ljósflökti sínu og tilteknar smájurtir í gróðri Himalajafjalla, sem með daufri sjálfljómun sinni lýsa upp eftir bestu getu hinn myrka frumskóg þar sem þær vaxa. Örsmáir fiskar, sem synda í djúpum hafsins, gefa einnig frá sér dauft ljósblik sem vísar öðrum fiskum veginn og hjálpar þeim að komast undan óvinum sínum. Hversu miklu fremur ættu þá börnin Mín að vera ljós í heiminum (Matteusarguðspjall 5:14) og leggja sig fórnfúslega fram um að leiða inn á veg sannleikans, með því ljósi sem Guð hefur gefið þeim, þá sem vegna myrkursins eiga á hættu að verða Satan að bráð.Matteus 5:14
5. Ef þau nota ekki þessa krafta, sem sendir eru af himni, í þjónustu við Guð og sköpunarverur Hans, er hætta á að þau glati þessum himnesku gjöfum að eilífu. Þannig hefur farið fyrir tilteknum fiskum sem lifa í djúpum vötnum dimmra hella, og einnig sumum einsetumönnum í Tíbet, því að hvorir tveggja hafa dvalist svo lengi í myrkri að þeir hafa misst sjónina algjörlega. Á sama hátt hefur strúturinn glatað fluggetunni með öllu vegna þess að hann notar ekki vængi sína. Gætið þess því að vanrækja engar þær gjafir eða hæfileika sem ykkur hefur verið trúað fyrir, heldur notið þá svo að þið fáið hlutdeild í sælu og dýrð Meistara ykkar (Matteusarguðspjall 25:14-30).Matteus 25:14–30
6. Stundum þegar inna þarf af hendi mikla þjónustu vel Ég til þess í tilgangi Mínum þá sem eru lítils metnir í augum heimsins, því að þeir stæra sig hvorki af eigin mætti né visku, heldur setja allt traust sitt á Mig, meta þá litlu hæfileika sem þeir búa yfir lítils og helga allt sem þeir eiga og eru verki Mínu í þágu mannanna (Fyrra Korintubréf 1:26-30). Til að mynda manstu að þegar Ég mettaði fimm þúsund manns í óbyggðunum með fimm brauðum og tveimur fiskum, þá vann Ég ekki þetta kraftaverk fyrir atbeina lærisveina Minna, því að þeir voru fullir efasemda og ráðþrota og vildu senda mannfjöldann svangan burt (Jóhannesarguðspjall 6:9). Þjónn Minn við það tækifæri var lítill piltur sem Ég hafði læknað af lömun. Hann var fullur löngunar til að heyra orð Mín og ákvað að fylgja Mér. Fátæk móðir hans vafði nokkrum byggbrauðum og þurrkuðum fiski inn í klæði hans, sem nægði til tveggja eða þriggja daga ferðar, og þegar spurt var um mat handa mannfjöldanum kom þessi trúfasti litli piltur þegar í stað með allt sem hann átti og lagði það við fætur lærisveinanna. Þótt þar væri auðugt fólk sem hafði meðferðis miklu betri mat, svo sem hveitibrauð, var það ekki fúst til að láta hann af hendi; það var því af byggbrauðum þessa pilts, nafna Míns, sem mannfjöldinn var mettaður af úrvalsfæðu fyrir blessun Mína.Jóhannes 6:9 · Biblían 1981 · Fyrra Korintubréf 1:26–30
7. Margir eru svo snauðir að þakklæti að hversu mikil blessun sem þeim er veitt, jafnvel svo að kraftaverk séu unnin þeim til góðs, eru þeir samt sem áður óánægðir og vanþakklátir. Slíkt fólk er aldrei hægt að nota öðrum til þjónustu og blessunar, heldur er það eins og maðurinn sem Ég læknaði eftir að hann hafði þjáðst í þrjátíu og átta ár af ólæknandi sjúkdómi, því að í stað þess að vera þakklátur og trúa á Mig hafði hann ekki einu sinni fyrir því að leggja nafn Mitt á minnið (Jóhannesarguðspjall 5:12-13). Frá slíku fólki getur heimurinn engrar blessunar vænst; hún kemur aðeins frá þeim sem eru, líkt og fátæka ekkjan, reiðubúnir að gefa allt sem þeir eiga, jafnvel alla björg sína (Lúkasarguðspjall 21:2-4).Jóhannes 5:12–13 · Lúkas 21:2–4
8. Til að inna af hendi sanna þjónustu og rækja skyldu sína verða þjónar Mínir að vera reiðubúnir að fórna jafnvel sjálfu lífinu – líkt og hinn dyggi hermaður sem stóð vaktina í bitru frosti og hríðarkófi uns hann fraus í hel, og stóð enn sem stytta á sínum stað þótt hinir varðmennirnir færu til að ylja sér við eldinn. Þegar konungurinn kom og sá hann standa þar óhagganlegan og trúfastan jafnvel í dauðanum, tók hann af sér kórónuna, setti hana um stund á höfuð honum og sagði: „Slíkur trúr hermaður og þjónn er verður heiðurs og dýrðar djásns míns. Betur að hann hefði lifað, því að þá hefði ég gert hann að höfðingja yfir ríki mínu!“ Slíkir verða trúfastir þjónar Mínir að vera í þeirri þjónustu sem Ég hef falið þeim, og þeim sem ljúka verki sínu af slíkri trú og hugrekki mun Ég veita ófölnandi kórónu eilífs konungsdóms (Síðara Tímóteusarbréf 4:4, 5-8).Seinna Tímóteusarbréf 4:4, 5–8
9. Margir eru þeir sem hafa sóað hinum dýrmæta tíma sem þeim var gefinn til þjónustu við Mig, en jafnvel núna gefst þeim tækifæri til að vakna af dvala og nýta sem best þann tíma sem þeir eiga ólifaðan. Þeir eru eins og veiðimaður sem var á reiki í frumskóginum og tók upp nokkra fallega steina á lækjarbakka. Hann gerði sér ekki grein fyrir verðmæti þeirra og notaði þá hvern af öðrum í slöngvu sína til að skjóta á fugla sem sátu í trjánum við ána, og þannig féllu þeir hver af öðrum í vatnið og týndust. Hann hélt enn á einum steini í hendinni þegar hann sneri aftur til borgarinnar, og er hann gekk um markaðinn kom gimsteinasali auga á steininn og sagði þessum fávísa manni að þetta væri verðmætur demantur sem hann gæti fengið þúsundir rúpía fyrir. Þegar hann heyrði þetta tók hann að kveina og segja: „Vei mér! Ég vissi ekki hve verðmætir þeir voru og hef notað marga slíka demanta til að skjóta á fugla á árbakkanum, og þeir hafa fallið í ána og eru glataðir, annars væri ég orðinn milljónamæringur. En ég hef þó bjargað þessum eina, og það er þó alltaf eitthvað.“ Hver dagur er eins og dýrmætur demantur, og þótt mörgum ómetanlegum dögum hafi verið sóað í eftirsókn eftir stundlegum unaði og þeir séu sokknir að eilífu í djúp fortíðarinnar, ættir þú að vakna til vitundar um gildi þess sem eftir er, nýta það eins vel og kostur er og safna þér andlegum auðæfum. Notaðu það í þjónustu við Mig, sem hef gefið þér lífið og allar þess ómetanlegu blessanir, og með því að nota þær til að bjarga öðrum frá synd og dauða muntu hljóta eilífa og himneska umbun.