Þriðji kafli
Bænin
Fyrsti hluti
Lærisveinninn: Stundum er spurt sem svo: „Þar sem Guð þekkir þarfir okkar til hlítar og veit hvernig best er að mæta þeim, ekki aðeins hjá góðum heldur einnig vondum, hvernig eigum við þá að biðja til Hans um þær? Hvort sem nauðsynjar okkar eru stundlegar eða andlegar, getum við þá breytt vilja Guðs með bænum okkar?“
Meistarinn: 1. Þeir sem spyrja slíkrar spurningar sýna glöggt að þeir vita ekki hvað bæn er. Þeir hafa ekki lifað bænalífi, því annars vissu þeir að bæn til Guðs er ekki betl. Bænin felst ekki í þeirri viðleitni að fá hjá Guði þá hluti sem eru nauðsynlegir fyrir þetta líf. Bænin er viðleitni til að höndla Guð sjálfan, Höfund lífsins, og þegar við höfum fundið Hann sem er uppspretta lífsins og gengið inn í samfélag við Hann, þá er allt lífið okkar og með Honum allt það sem gerir lífið fullkomið. Illvirkjum gefur Guð, af kærleika til þeirra, það sem þeim er nauðsynlegt til lífsins í þessum heimi, en andlegar þarfir þeirra sýnir Hann þeim ekki einu sinni, þar sem þeir eiga ekkert andlegt líf.
Ef Hann veitti þeim slíkar andlegar blessanir kynnu þeir ekki að meta þær. En þeim sem trúa eru veittar gjafir af báðu tagi, þó einkum andlegar blessanir, og leiðir það til þess að mjög fljótt skeyta þeir lítt um stundlegar blessanir en festa elsku sína við hið ósýnilega og andlega. Við getum ekki breytt vilja Guðs, en bænamaðurinn, sem lifir í bæn, getur komist að raun um hver vilji Guðs er gagnvart honum sjálfum. Því að slíkum mönnum opinberar Guð sig í leyndum afkima hjartans og á samfélag við þá; og þegar þeim birtist að náðugur tilgangur Hans er þeim til góðs, þá hverfa efasemdirnar og örðugleikarnir, sem þeir kvarta yfir, um aldur og ævi.
2. Bænin er, ef svo má segja, innöndun heilags anda, og Guð úthellir heilögum anda sínum svo ríkulega inn í líf hinna bænræknu að þeir verða „lifandi sálir“ (Fyrsta Mósebók 2:7; Jóhannesarguðspjall 20:22). Þeir munu aldrei deyja, því að heilagur andi hellir sér fyrir bænina inn í andleg lungu þeirra og fyllir anda þeirra heilbrigði, þrótti og eilífu lífi.Fyrsta Mósebók 2:7 · Jóhannes 20:22
Guð, sem er kærleikur, hefur gefið öllum mönnum ókeypis það sem nauðsynlegt er bæði fyrir hið andlega og hið stundlega líf, en þar sem Hann býður öllum hjálpræði og heilagan anda sinn jafn ókeypis er hvort tveggja lítils metið. En bænin kennir okkur að meta þessar gjafir að verðleikum, því að þær eru jafn nauðsynlegar og loft og vatn, hiti og ljós, sem ekkert líf getur án verið. Guð hefur séð okkur ókeypis fyrir því sem tilheyrir andlegu lífi okkar, en menn virða það svo lítils að þeir færa Skapara sínum engar þakkir; aftur á móti meta þeir mikils gjafir Hans af gulli, silfri og dýrgripum, sem eru fágætar og fást með miklum erfiðismunum, þótt hvorki sé hægt að seðja hungur og þorsta líkamans með slíku né svala þrá hjartans. Af slíkri heimsku breyta menn þessa heims þegar kemur að andlegum efnum, en bænamanninum hlotnast sönn viska og eilíft líf.
3. Þessi heimur er líkastur víðáttumiklu hafi þar sem menn sökkva og drukkna, en sjávardýrin lifa lífi sínu í dýpsta vatni vegna þess að þau koma endrum og sinnum upp á yfirborðið, opna ginið og draga að sér tiltekið magn af lofti sem gerir þeim kleift að lifa í djúpinu. Eins er um þá sem rísa upp á yfirborðið á hafi þessa lífs: með bæn í einrúmi anda þeir að sér lífgandi anda Guðs og finna líf og öryggi jafnvel í þessum heimi.
4. Þó að fiskar eyði allri ævi sinni í söltum sjónum verða þeir þó ekki saltir sjálfir, vegna þess að í þeim er líf; þannig helst bænamaðurinn, þótt hann verði að lifa í þessum syndum saurgaða heimi, laus við smit syndarinnar vegna þess að lífi hans er viðhaldið með bæninni.
5. Rétt eins og salt vatn sjávarins dregst upp á við fyrir tilverknað heitra geisla sólarinnar, tekur smám saman á sig mynd skýja og fellur í skúrum yfir jörðina, breytt í sætt vatn sem endurnærir (því að sjórinn skilur seltu sína og beiskju eftir þegar hann stígur upp), eins hreinsa geislar Sólar réttlætisins hugsanir og þrár bænamannsins af öllu smiti syndarinnar þegar þær stíga til hæða líkt og móðukennd uppgufun sálarinnar, og bænir hans verða að miklu skýi sem sígur niður af himni í blessunarskúrum og færir mörgum á jörðinni endurnæringu.
6. Rétt eins og sjófuglinn eyðir ævinni á sundi í vatninu en fjaðrir hans eru þó alþurrar þegar hann hefur sig til flugs, þannig eiga bænamenn bústað sinn í þessum heimi, en þegar stundin rennur upp að þeir fljúgi til hæða hverfa þeir úr þessum syndum mengaða heimi og komast án nokkurs bletts eða lýtis til síns eilífa heimkynnis hvíldarinnar.
7. Skipið á með réttu heima á vatninu, en að vatnið streymi inn í skipið er bæði óheppilegt og hættulegt. Þannig er það rétt og gott fyrir manninn sjálfan og aðra að hann eigi bústað sinn í þessum heimi, því að með því að halda sér á floti getur hann hjálpað þeim að ná ásamt honum sjálfum til lífsins hafnar. En ef heimurinn nær að ryðja sér til rúms í hjarta hans þýðir það dauða og glötun. Þess vegna helgar bænamaðurinn, maður bænarinnar, hjarta sitt ávallt Honum sem myndaði það til að vera musteri Hans, og þannig á hann hvíld í friði og öryggi bæði í þessum heimi og hinum komanda.
8. Við vitum öll að án vatns er ómögulegt að lifa; en ef við sökkvum í kaf í það köfnum við og deyjum. Þótt við þurfum að nýta okkur vatn og drekka það, megum við ekki falla í það og sökkva. Þess vegna verður að nota heiminn og veraldlega hluti af hyggindum, því að án þeirra er lífið ekki aðeins erfitt heldur ómögulegt. Í þessum sama tilgangi skapaði Guð heiminn, til þess að menn gætu nýtt sér hann, en menn mega ekki drekkja sér í honum, því að þá stöðvast andardráttur bænarinnar og þeir farast.
9. Ef lífi andans fer að hnigna vegna þess að hætt er að lifa bænalífi, þá verða þeir veraldlegu hlutir, sem ætlaðir eru til gagns, til skaða og eyðingar. Sólin lætur allan gróður lifa og dafna með ljósi sínu og hita, en fær hann líka til að visna og deyja. Loftið gefur sömuleiðis öllum lifandi verum líf og þrótt, en veldur jafnframt rotnun þeirra. Þess vegna: „Vakið og biðjið.“
10. Við eigum að lifa þannig í þessum heimi að þótt við séum í honum erum við ekki af honum, og þá munu hlutir þessa heims verða til gagns í stað þess að vera til skaða og stuðla að vexti hins andlega lífs; en þó aðeins með því skilyrði að andinn snúi ásjónu sinni ávallt móti Sól réttlætisins. Þannig ber það stundum við að í reit af óhreinni og saurugri jörð spretta upp blóm og dafna, og ljúfur ilmur blómanna yfirgnæfir óþefinn á staðnum. Jurtirnar snúa sér móti sólinni og þiggja frá henni ljós og hita, og í stað þess að saurinn skaði jurtirnar verður hann þeim að áburði og hjálpar þeim að vaxa og dafna. Eins snýr bænamaðurinn hjarta sínu til Mín í bæn sinni og þiggur frá Mér ljós og yl, og mitt í óþef þessa vonda heims vegsamar ljúfur ilmur hins nýja og heilaga lífs hans Mig, og í honum myndast ekki aðeins ljúfur ilmur heldur einnig ávöxtur sem varir að eilífu.
Annar hluti
1. Að biðja felur ekki í sér að án bænarinnar myndi Guð ekkert gefa okkur eða að Hann vissi ekki af þörfum okkar, heldur hefur það þann mikla kost í för með sér að í hugarfari bænarinnar er sálin best í stakk búin til að taka á móti Gjafara blessunarinnar sem og þeim blessunum sem Hann þráir að veita. Þannig stóð á því að fyllingu andans var ekki úthellt yfir postulana á fyrsta degi, heldur eftir tíu daga sérstakan undirbúning.
Ef manni væri veitt blessun án þess að hann væri sérstaklega undir hana búinn, myndi hann hvorki meta hana sem skyldi né varðveita hana lengi. Þannig fór til dæmis fyrir Sál: vegna þess að hann öðlaðist heilagan anda og konungdóm án þess að leita eftir því glataði hann hvoru tveggja mjög fljótt, því að hann hafði ekki lagt af stað að heiman til að öðlast heilagan anda heldur til að leita að týndum ösnum sínum (Fyrri Samúelsbók 9:3; 10:11; 15:13-14; 31:4).Fyrri Samúelsbók 9:3
2. Bænamaðurinn, maður bænarinnar, getur einn tilbeðið Guð í anda og sannleika. Aðrir eru líkir hinni hrifnæmu jurt; undir guðsþjónustunni, snortnir af kennslu og nærveru heilags anda, skreppa þeir saman, ef svo má segja, lúta höfði og verða alvörugefnir, en þeir eru varla komnir út úr kirkjunni fyrr en birtir yfir þeim á ný og þeir halda áfram eins og áður.
3. Ef við hirðum ekki um tré eða runna sem ber góðan ávöxt eða blóm, mun hann úrkynjast og verða aftur villtur. Á sama hátt mun hinn trúaði, ef hann hættir að vera í Mér vegna vanrækslu á bæninni og hinu andlega lífi, falla úr því sæluástandi sakir hirðuleysis síns, sökkva aftur niður í sína gömlu syndugu vegu og glatast.
4. Þegar við sjáum trönu standa hreyfingarlausa á bakka vatnsþróar eða stöðuvatns, gætum við ætlað af stellingu hennar að hún væri að íhuga dýrð Guðs eða ágæti vatnsins. En víðs fjarri! Hún stendur þar hreyfingarlaus svo klukkustundum skiptir, en um leið og hún kemur auga á frosk eða smáfisk stekkur hún á hann og gleypir í sig. Nákvæmlega þannig er hugarfar og háttalag margra þegar kemur að bæn og trúarlegri íhugun. Þeir sitja við strönd hins takmarkalausa úthafs Guðs en leiða hvorki hugann að hátign Hans og kærleika né að guðlegu eðli Hans, sem hreinsar af synd og seður hungraða sál, heldur eru þeir gagnteknir af þeirri hugsun að hreppa einhvern sérstakan hlut sem þeir girnast, svo að þeir geti enn frekar velt sér upp úr lystisemdum þessa hverfula heims. Þannig snúa þeir baki við lind sanns friðar, sökkva sér niður í fallvaltar unaðssemdir þessa heims og deyja og líða undir lok ásamt þeim.
5. Vatn og bensín koma bæði úr jörðinni, og þótt þau virðist lík og jafnvel eins eru þau í eðli sínu og tilgangi algjörar andstæður, því að annað slökkvir eld en hitt magnar hann. Eins er bæði heimurinn og fjársjóðir hans og hjartað og þorsti þess eftir Guði sköpunarverk Hans. Ef reynt er að seðja hjartað með auðæfum, drambi og vegsemdum þessa heims fer á sömu leið og ef maður reyndi að slökkva eld með bensíni, því að hjartað getur aðeins fundið ró og fyllingu hjá Honum sem skapaði bæði það og þá heitu þrá sem það finnur til (Sálmarnir 42:2-3). Hver sem nú kemur til Mín, honum gef Ég því hið lifandi vatn, svo að hann mun aldrei þyrsta að eilífu, en það verður í honum að lind, sem streymir fram til eilífs lífs (Jóhannesarguðspjall 4:14).Jóhannes 4:14 · Biblían 1981
6. Menn reyna til einskis að finna frið í heiminum og því sem heimsins er, því að reynslan sýnir glöggt að sannur friður og fylling finnast ekki í slíku. Þeir eru líkir drengnum sem fann lauk og tók að fletta af honum hverju hýðinu á fætur öðru í þeirri von að finna eitthvað inni í honum, líkt og maður finnur í öskju þegar lokið er tekið af. En sú eftirvænting hans var með öllu tilgangslaus, þar eð hann fann ekkert nema síðasta hýðið, því að laukur er ekkert annað en hvert hýðið utan á öðru. Og þessi heimur og allt sem honum tilheyrir hefur reynst vera hégómi hégómanna (Prédikarinn 12:8), allt þar til menn finna hina sönnu lind friðarins (Jesaja 55:1; Jeremía 2:13; Opinberunarbókin 22:17).Jesajabók 55:1 · Jeremíabók 2:13 · Opinberunarbókin 22:17
7. Heimurinn er líkastur hillingum og sannleiksleitandinn, sem vonast til að finna eitthvað til að svala þyrstum anda sínum, leggur af stað í leit að því en mætir engu nema vonbrigðum og örvæntingu. Lífsins vatn er ekki að finna í manngerðum þróm eða sprungnum brunnum; en þeir sem nálgast Mig í bæn af hreinu hjarta munu finna í Mér, sem er uppspretta hins lifandi vatns, það sem veitir þeim fyllingu, endurnæringu og eilíft líf (Jesaja 55:1; Jeremía 2:13; Opinberunarbókin 22:17).Jesajabók 55:1 · Jeremíabók 2:13 · Opinberunarbókin 22:17
Kona nokkur var á ferð eftir fjallastíg með barn sitt í fanginu, og þegar barnið kom auga á fallegt blóm tók það slíkt viðbragð út úr fangi móður sinnar að það steyptist fram af fjallshlíðinni, rak höfuðið í klett og lést á staðnum. Nú er alveg ljóst að öryggi og lífsviðurværi barnsins var að finna við brjóst móður þess, en ekki í þessum blómum sem heilluðu það og urðu því að aldurtila. Þannig breytir sá trúaði maður sem lifir ekki bænalífi. Þegar hann kemur auga á stundlegan unað heimsins, sem heillar hann, gleymir hann kærleika Mínum og umhyggju, sem er miklu meiri en móðurinnar, vanrækir þá andlegu mjólk sem Ég sé honum fyrir, stekkur úr örmum Mínum og glatast.
9. Þeirri næringu sem móðirin veitir er þannig fyrir komið að ungbarnið fær hennar ekki notið án nokkurrar áreynslu af sinni hálfu. Eins geta börnin Mín, sem Ég ber í faðmi Mínum, ekki öðlast þá andlegu mjólk sem frelsað getur sálir þeirra án þess að leita hennar. Og rétt eins og ekki þarf að kenna barninu, heldur veit það af eðlisávísun hvar og hvernig það á að nálgast fæðu sína, þannig vita þeir sem af andanum eru fæddir af andlegri eðlisávísun, en ekki af veraldlegri heimspeki eða visku, hvernig þeir eiga að biðja og sækja til Mín, sinnar andlegu Móður, mjólk eilífs lífs.
10. Ég hef lagt hungur og þorsta í eðli mannsins, til þess að hann skuli ekki í blindu gáleysi líta á sjálfan sig sem Guð, heldur verði hann dag frá degi minntur á þarfir sínar og á það að líf hans er bundið lífi og tilveru Einhvers sem skapaði hann. Þegar honum er þannig gerð grein fyrir brestum sínum og nauðsynjum getur hann verið í Mér og Ég í honum, og þá mun hann ávallt finna hamingju sína og gleði í Mér.
Þriðji hluti
1. Að biðja er, ef svo má segja, að eiga tal við Mig, og verða þannig líkur Mér með því að eiga samfélag við Mig og vera í Mér. Til er skordýr nokkurt sem nærist á grasi og grænum laufblöðum og lifir á meðal þeirra, og fær sama lit og þau. Eins hefur ísbjörninn, sem dvelur í hvítri mjöllinni, sama snjóhvíta litinn, og Bengaltígurinn ber á feldi sínum rákir sefsins sem hann lifir í. Þannig fá þeir sem með bæninni lifa í samfélagi við Mig hlutdeild í eðli Mínu ásamt hinum heilögu og englunum, og er þeir mótast eftir mynd Minni verða þeir líkir Mér.
2. Þegar Ég dró Pétur, Jakob og Jóhannes í skamma stund inn í samfélag við Mig uppi á fjallinu, sýndi Ég þeim nokkuð af dýrð Minni, og af öllum hinum heilögu birtust þeim aðeins tveir, þeir Móse og Elía; þeir urðu svo gagnteknir af þessari stuttu innsýn í himneska dýrð að þeir vildu reisa þrjár tjaldbúðir til að búa þar (Matteusarguðspjall 17:1-5). Hve dásamleg verður þá ekki hamingja þeirra sem eru í Mér og ganga ásamt ótöldum heilögum og englum inn í sitt langþráða himnaríki og eiga hlutdeild með Mér í fullri dýrð Minni, sem þekkir enga skerðingu né skugga vegna breytingar (Jóhannesarguðspjall 17:24; Jakobsbréf 1:17). Bænamaðurinn, maður bænarinnar, mun aldrei verða einn, heldur mun hann dvelja hjá Mér og Mínum heilögu að eilífu (Matteusarguðspjall 28:20; Sakaría 3:7-8).Matteus 17:1–5 · Jóhannes 17:24 · Jakobsbréfið 1:17 · Matteus 28:20
3. Það er ekki ýkja mikið afrek að hemja og nýta sér villidýr, eldinguna, vindinn, ljósið og önnur náttúruöfl, en að ná valdi yfir heiminum, Satan og sjálfum sér með öllum sínum ástríðum, það er í sannleika stórmikið og nauðsynlegt. Þeim einum sem lifa bænalífi veiti Ég kraftinn til að sigra allt vald óvinarins (Lúkasarguðspjall 10:17, 20), svo að jafnvel meðan þeir lifa í þessum heimi dvelja þeir með Mér í himinhæðum (Efesusbréfið 2:6), og þar eð Satan er fyrir neðan en þeir fyrir ofan getur hann aldrei náð til þeirra, heldur dvelja þeir að eilífu hjá Mér í öryggi og án minnsta óttaskjálfta.Lúkas 10:17, 20 · Efesusbréfið 2:6
Þó að menn hafi nú náð valdi yfir náttúruöflunum er þeim ekki fært að ferðast út fyrir takmörk lofthjúpsins, en bænamaðurinn, maður bænarinnar, sem hefur sigrað Satan og sjálfan sig, getur farið að vild um hið eilífa himnaríki.
4. Rétt eins og býflugan safnar sætum safa blómanna og breytir honum í hunang án þess að spilla lit þeirra eða ilmi, þannig safnar bænamaðurinn, maður bænarinnar, hamingju og ávinningi úr allri sköpun Guðs án þess að vinna henni nokkurt tjón. Og eins og býflugur safna einnig hunangi sínu úr blómum á alls kyns ólíkum stöðum og geyma það í vaxkökunni, þannig safnar guðsmaðurinn ljúfum hugsunum og tilfinningum úr sérhverjum hluta sköpunarverksins, og í samfélagi við Skaparann safnar hann hunangi sannleikans í hjarta sitt, og í varanlegum friði við Hann á öllum tímum og öllum stöðum bragðar hann með fögnuði hið sæta hunang Guðs.
5. Nú er tíminn til að afla okkur olíu heilags anda og geyma hana í kerum hjartna okkar, eins og hyggnu meyjarnar fimm gerðu (Matteusarguðspjall 25:1-13); annars mun ekkert mæta okkur nema harmur og örvænting, líkt og hinum fimm fávísu. Nú verðið þið einnig að safna manna fyrir hinn sanna hvíldardag, annars verður ekkert eftir handa ykkur nema sorg og eymd (Önnur Mósebók 16:15, 27). „Biðjið, að flótti yðar verði ekki um vetur,“ það er að segja á tíma mikillar neyðar eða á síðustu dögunum, „eða á hvíldardegi,“ það er að segja í þúsund ára ríki hinnar eilífu hvíldar, því að slíkt tækifæri mun aldrei aftur gefast (Matteusarguðspjall 24:20).Matteus 24:20 · Biblían 1981 · Matteus 25:1–13 · Önnur Mósebók 16:15, 27
Á sama hátt og veðurfar veldur breytingum á lögun, lit og vaxtarlagi jurta og blóma, þannig tekur andlegt eðli þeirra sem rækta samfélag við Mig þroskabreytingum í venjum, yfirbragði og lunderni; þeir afklæðast hinum gamla manni og ummyndast eftir Minni eigin dýrlegu og óforgengilegu mynd.
Með fingri Mínum skrifaði Ég í jörðina syndugt ástand hvers og eins þeirra sem, án þess að skeyta um eigin innri viðbjóð, komu með konuna sem staðin var að hórdómi til að láta sakfella hana, svo að þeir yfirgáfu hana einn af öðrum og gengu burt sneyptir og skömmustulegir. Með fingri Mínum bendi Ég einnig þjónum Mínum í leyni á syndasár þeirra, og þegar þeir iðrast lækna Ég þá með snertingu sama fingurs; og á sama hátt og barn grípur um fingur föður síns og gengur með honum við þann stuðning, þannig leiði Ég börnin Mín með fingri Mínum eftir veginum úr þessum heimi til heimkynnis hvíldar og eilífs friðar (Jóhannesarguðspjall 14:2, 3).Jóhannes 14:2, 3
7. Oft biðja menn til Föðurins í Mínu nafni en eru þó ekki í Mér, það er að segja, þeir taka nafn Mitt sér í munn og á varir, en ekki inn í hjarta sitt og líf. Það er ástæðan fyrir því að þeir öðlast ekki það sem þeir biðja um. En þegar Ég er í þeim og þeir í Mér, þá hljóta þeir hvaðeina sem þeir biðja Föðurinn um, vegna þess að í því ástandi biðja þeir undir handleiðslu heilags anda. Heilagur andi sýnir þeim hvað mun vegsama Föðurinn og reynast þeim sjálfum og öðrum fyrir bestu. Að öðrum kosti fá þeir sama svar og vondur sonur fékk hjá landstjóra nokkrum, sem faðir hans hafði þjónað af miklu hugrekki og sóma. Þegar sonurinn lagði fram bænaskrá í nafni föður síns og bað um starf og ívilnun, benti landstjórinn honum á spillt líferni hans og ósiði og sagði: „Leggðu ekki fram bæn til mín í nafni föður þíns, heldur farðu fyrst og breyttu eftir fordæmi hans. Láttu mikinn verðleika hans ekki aðeins vera þér á vörum, heldur sýndu hann í lífi þínu, og þá verður bæn þín tekin til greina.“
8. Á bænum þeirra sem tilbiðja Mig og lofa með vörunum einum og hinna sem gera það af hjarta er afar mikill munur. Til dæmis bað sannur tilbiðjandi stöðugt fyrir öðrum manni, að augu hans mættu opnast og hann tæki við sannleikanum, en hinn, sem var aðeins tilbiðjandi að nafninu til, bað þess oft í fjandskap sínum í garð hins sanna tilbiðjanda Míns að hann yrði sleginn blindu. Að lokum voru bænir hins sanna tilbiðjanda heyrðar samkvæmt kærleiksríkum vilja Guðs, og sá sem áður var aðeins hræsnari fékk andlega sjón. Með hjartað fullt af fögnuði varð þessi maður í sannleika trúaður og einlægur og traustur bróðir hins sanna þjóns Míns.
9. Bænin gerir mönnum það mögulegt sem þeim reynist ómögulegt með öðrum ráðum, og þeir upplifa svo undursamlega hluti í lífinu að þeir ganga ekki aðeins þvert á reglur og skoðanir visku þessa heims, heldur eru þeir taldir með öllu ómögulegir. Vísindamenn gera sér ekki grein fyrir því að Hann, sem skipaði öllu sköpuðu á sinn stað og setti því lög, verður ekki lokaður inni á bak við rimla sinna eigin laga. Vegir hins mikla Löggjafa eru órannsakanlegir, vegna þess að eilífur vilji Hans og tilgangur er blessun og farsæld allra sköpunarverka Hans, og ástæðan fyrir því að maðurinn án anda getur ekki skilið þessa staðreynd er sú að andlegir hlutir dæmast andlega (Fyrra Korintubréf 2:14).Fyrra Korintubréf 2:14 · Biblían 1981
Mest allra kraftaverka er endurfæðing mannsins, og þeim manni sem hefur reynt þetta kraftaverk verða öll önnur möguleg. Í mjög köldum löndum er brú úr vatni algeng sjón, því að þegar yfirborð ár er gaddfreðið rennur vatnið undir því enn óhindrað áfram, en menn ganga auðveldlega og örugglega yfir ísbrúna. En ef maður segði fólki, sem svitnar sífellt í hitabeltisloftslagi, frá brú úr vatni sem lægi yfir rennandi á, myndi það samstundis segja að slíkt væri ómögulegt og gengi í berhögg við náttúrulögmálin. Sami mikli munur er á þeim sem hafa endurfæðst og viðhalda andlegu lífi sínu með bæninni, og hinum sem lifa veraldlegu lífi og meta aðeins efnislega hluti og eru því með öllu ókunnugir lífi sálarinnar.
10. Sá sem þráir að öðlast frá Guði blessun andlegs lífs með bæninni verður að trúa og hlýða án þess að véfengja. Þegar Ég bauð manninum, sem kom til Mín með visna hönd, að rétta fram hönd sína, hlýddi hann samstundis og varð þá hönd hans heil sem hin (Matteusarguðspjall 12:10-13). En setjum svo að í stað þessarar tafarlausu hlýðni hefði hann farið að malda í móinn og segja: „Hvernig get ég rétt fram hönd mína? Ef ég hefði getað það, hvers vegna hefði ég þá átt að koma til Þín? Læknaðu fyrst hönd mína og þá mun ég geta rétt hana fram.“ Allt hefði þetta þótt mjög skynsamlegt og rökrétt, en hönd hans hefði aldrei orðið heil.Matteus 12:10–13
Sá sem biður verður að trúa og vera hlýðinn og rétta fram til Mín í bæn veikar og visnar hendur sínar, og þá er það Mitt að gefa honum andlegt líf, og honum mun veitast eftir þörfum hans (Matteusarguðspjall 21:22).Matteus 21:22