Fyrsti kafli
Guð birtir nærveru sína
Fyrri hluti
Lærisveinninn: Ó, Meistari minn, lind lífsins! Hvers vegna felur Þú Þig fyrir þeim sem tilbiðja Þig og gleður ekki augu þeirra sem þrá að líta Þig?
Meistarinn: 1. Sanna barn Mitt, sönn hamingja er ekki komin undir sjón augnanna, heldur fæst hún fyrir andlega sýn og er komin undir hjartanu. Í Palestínu horfðu þúsundir manna á Mig, en öðluðust þó ekki allir sanna hamingju með því. Með dauðlegum augum verður aðeins skynjað það sem dauðlegt er, því að holdleg augu geta ekki litið ódauðlegan Guð og andlegar verur. Til dæmis getur þú sjálfur ekki séð þinn eigin anda; hvernig getur þú þá litið Skapara hans? En þegar hin andlegu augu ljúkast upp, þá getur þú vissulega séð Hann sem er andi (Jóhannesarguðspjall 4:24), og það sem þú sérð nú af Mér sérð þú ekki með holdlegum augum, heldur með augum andans.Jóhannes 4:24 · Biblían 1981
Ef þúsundir manna sáu Mig í Palestínu, eins og þú segir, höfðu þá andleg augu þeirra allra lokist upp, eða varð Ég sjálfur dauðlegur? Svarið er: Nei! Ég tók á Mig dauðlegan líkama til þess að Ég gæti í honum gefið lausnargjald fyrir syndir heimsins; og þegar verki hjálpræðisins var fullnað fyrir syndara (Jóhannesarguðspjall 19:30), ummyndaði hið ódauðlega það sem dauðlegt var í dýrð. Eftir upprisuna gátu því þeir einir séð Mig sem höfðu hlotið andlega sjón (Postulasagan 10:40-41).Jóhannes 19:30 · Postulasagan 10:40, 41
2. Margir eru þeir í þessum heimi sem vita um Mig, en þekkja Mig ekki; það er að segja, þeir eiga ekkert persónulegt samband við Mig, og hafa því hvorki sannan skilning á Mér né trú á Mig, og taka ekki við Mér sem Frelsara sínum og Drottni.
Rétt eins og þegar rætt er við blindfæddan mann um ólíka liti, svo sem rauðan, bláan og gulan, þá skynjar hann alls ekki töfra þeirra og fegurð; hann getur ekkert gildi lagt í þá, því að hann veit aðeins um þá og þekkir hin ýmsu nöfn þeirra. En hann getur ekki gert sér neina sanna hugmynd um liti fyrr en augu hans ljúkast upp. Á sama hátt getur maðurinn, hversu lærður sem hann kann að vera, ekki þekkt Mig fyrr en andleg augu hans ljúkast upp; hann getur ekki litið dýrð Mína og getur ekki skilið að Ég er Guð holdi klæddur.
3. Margir trúaðir skynja nærveru Mína í hjarta sínu, þar sem hún færir þeim andlegt líf og frið, en geta þó ekki séð Mig skýrt. Þannig getur augað séð margt, en þegar einhver drýpir lyfi í augað sér það ekki lyfið, heldur finnur það nærveru lyfsins þegar það hreinsar hið innra auga og eflir sjónina.
4. Sannir trúaðir geta ekki séð hinn sanna frið sem kviknar af nærveru Minni í hjörtum þeirra, en þeir finna mátt hans og verða sælir í honum. Þeir geta heldur ekki séð þá hamingju hugar eða hjarta sem gerir þeim kleift að njóta friðarins af nærveru Minni. Eins er því farið með tunguna og sætindin. Bragðskynið sem býr í tungunni og sætleikinn sem það skynjar er hvort tveggja ósýnilegt. Þannig veiti Ég einnig að börnin Mín öðlist líf og gleði fyrir hið hulda manna, sem heimurinn með allri sinni visku hvorki þekkir né getur þekkt (Opinberunarbókin 2:7).Opinberunarbókin 2:7
5. Í veikindum bregst stundum bragðskyn tungunnar, og á meðan svo stendur finnst sjúklingnum maturinn sem honum er gefinn bragðast illa, hversu ljúffengur sem hann annars er. Á nákvæmlega sama hátt spillir syndin bragðskyninu fyrir andlegum hlutum. Við slíkar aðstæður glata Orð Mitt, þjónusta og nærvera Mín aðdráttarafli sínu í augum syndarans, og í stað þess að hafa gagn af þeim fer hann að deila um þau og gagnrýna.
6. Enn eru margir trúaðir sem – líkt og blindfæddi maðurinn þegar hann fékk sýn – geta séð Jesú sem spámann og Mannssoninn, en líta ekki á Hann sem Krist og Son Guðs (Jóhannesarguðspjall 9:17, 35-37) fyrr en Ég opinberast þeim öðru sinni í mætti.Jóhannes 9:17, 35–37
7. Móðir nokkur faldi sig eitt sinn í garði inni á milli þéttra runna og litli sonur hennar fór grátandi um allt í leit að henni. Hann fór um allan garðinn en fann hana hvergi. Þjónn einn sagði þá við hann: „Drengur minn, ekki gráta! Sjáðu mangóávextina á þessu tré og öll fallegu, fallegu blómin í garðinum. Komdu, ég ætla að ná í svolítið handa þér.“ En barnið hrópaði: „Nei! Nei! Ég vil mömmu mína. Maturinn sem hún gefur mér er betri en allir mangóávextirnir og ást hennar er miklu sætari en öll þessi blóm, og þú veist líka vel að allur þessi garður er minn, því að allt sem mamma mín á er mitt. Nei! Ég vil mömmu mína!“ Þegar móðirin, sem lá falin í runnunum, heyrði þetta þaut hún fram, þrýsti barninu að brjósti sér og þakti það kossum, og garðurinn varð barninu að paradís. Á þennan hátt geta börnin Mín ekki fundið neina sanna gleði í þessum mikla garði heimsins, sem er svo fullur af töfrandi og fögrum hlutum, fyrr en þau finna Mig. Ég er Immanúel þeirra, sem er ætíð með þeim, og Ég geri Mig þeim kunnan (Jóhannesarguðspjall 14:21).Jóhannes 14:21
8. Rétt eins og svampurinn liggur í vatninu og vatnið fyllir svampinn, en vatnið er ekki svampurinn og svampurinn er ekki vatnið, heldur er það ætíð tvennt ólíkt, þannig eru börnin í Mér og Ég í þeim. Þetta er ekki algyðistrú, heldur er þetta Guðs ríki, sem reist er í hjörtum þeirra sem dvelja í þessum heimi; og rétt eins og vatnið er í svampinum, þannig er Ég á hverjum stað og í öllu, en það er þó ekki Ég (Lúkasarguðspjall 17:21).Lúkas 17:21
9. Taktu viðarkolsmola; hversu mikið sem þú þværð hann hverfur sortinn ekki úr honum, en ef þú lætur eldinn smjúga inn í hann hverfur hinn dökki litur hans. Eins er því farið þegar syndarinn tekur við heilögum anda (sem er frá Föðurnum og Mér sjálfum, því að Faðirinn og Ég erum eitt), sem er eldskírnin: þá er allur sorti syndarinnar hrakinn á brott og hann er gerður að ljósi fyrir heiminn (Matteusarguðspjall 3:11, 14). Eins og eldurinn í kolinu, þannig bý Ég í þeim sem eru börnin Mín og þau í Mér, og fyrir þau geri Ég sjálfan Mig opinberan heiminum.Matteus 3:11, 14
Síðari hluti
Lærisveinninn: Meistari minn, ef Þú opinberaðir sjálfan Þig heiminum með sérstökum hætti myndu menn ekki lengur efast um tilvist Guðs og Þinn eigin guðdóm, heldur myndu allir trúa og ganga inn á veg réttlætisins.
Meistarinn: 1. Sonur Minn, Ég þekki vel hið innra ástand hvers manns og geri Mig kunnan hverju hjarta í samræmi við þarfir þess; og til að leiða menn inn á veg réttlætisins er engin betri leið til en opinberun Mín sjálfs. Vegna mannsins varð Ég maður, til þess að hann mætti þekkja Guð, ekki sem einhvern ógnvekjandi og framandi, heldur sem fullan kærleika og líkan honum sjálfum, því að maðurinn er líkur Honum og skapaður í Hans mynd.
Maðurinn ber einnig í brjósti eðlilega þrá eftir að fá að sjá Hann sem hann trúir á og sem elskar hann. En Föðurinn er ekki hægt að sjá, því að Hann er að eðli sínu óskiljanlegur, og sá sem ætlar að skilja Hann verður að hafa sama eðli. En maðurinn er skiljanleg vera og getur því ekki séð Guð. Þar eð Guð er hins vegar kærleikur og Hann hefur gefið manninum þennan sama hæfileika til að elska, tók Hann á sig tilveruform sem maðurinn gat skilið, svo að þessari þrá eftir kærleika yrði fullnægt. Þannig varð Hann maður, og börn Hans ásamt öllum hinum heilögu englum fá séð Hann og notið Hans (Kólossubréfið 1:15; 2:9). Þess vegna sagði Ég að sá sem hefur séð Mig hefur séð Föðurinn (Jóhannesarguðspjall 14:9-10). Og þótt Ég í mannsmynd sé kallaður Sonurinn, þá er Ég hinn eilífi og ævarandi Faðir (Jesaja 9:6).Kólossubréfið 1:15 · Biblían 1981 · Jóhannes 14:9–10 · Jesajabók 9:6
2. Ég og Faðirinn og heilagur andi erum Eitt. Rétt eins og í sólinni er bæði hiti og ljós, en ljósið er ekki hiti og hitinn er ekki ljós, heldur er hvort tveggja eitt þótt það birtist í ólíkum myndum, þannig færum Ég og heilagur andi, sem út gengur frá Föðurnum, heiminum ljós og hita. Andinn, sem er skírnareldurinn, brennir til ösku hvers kyns synd og ranglæti í hjörtum trúaðra og gerir þá hreina og heilaga. Ég, sem er hið sanna ljós (Jóhannesarguðspjall 1:9; 8:12), hrek á brott allar myrkar og illar girndir, leiði þá á vegi réttlætisins og færi þá að lokum til síns eilífa heimkynnis. Samt erum Við ekki þrír heldur Eitt, rétt eins og sólin er aðeins ein.Jóhannes 1:9
3. Virkja verður allt það gildi, allan þann mátt og alla þá göfugu hæfileika sem Guð hefur gætt manninn, annars hrörnar þetta smám saman og deyr. Ef trúin er ekki í sannleika fest við hinn lifandi Guð molnar hún þannig sundur við árekstur syndarinnar og breytist í efa. Oft heyrist eitthvað á þessa leið: „Ef þessum eða hinum efa mínum yrði eytt væri ég reiðubúinn að trúa.“ Það er eins og maður með brotinn útlim bæði lækninn að taka burt sársaukann áður en hann setur beinið saman. Slíkt er vitanlega heimska, því að sársaukinn stafar af brotinu, og þegar búið er að setja beinið saman hverfur sársaukinn af sjálfu sér. Þannig hafa tengsl mannsins við Guð rofnað af völdum syndarinnar, og efasemdir, sem eru andlegar kvalir, hafa vaknað. Þess vegna er nauðsynlegt að einingin við Guð verði endurnýjuð á ný; þá munu þær efasemdir sem vaknað hafa um guðdóm Minn og tilvist Guðs hverfa af sjálfu sér. Þá kemur í stað sársaukans sá dásamlegi friður sem heimurinn getur hvorki gefið né tekið burt. Þess vegna varð Ég hold, til þess að eining kæmist á milli Guðs og vesælla, sundurmarinna manna, og þeir mættu vera sælir hjá Honum í himnaríki að eilífu.
4. Guð er kærleikur, og í hverja lifandi veru hefur Hann lagt þennan hæfileika til að elska, en þó einkum í manninn. Því er ekkert nema réttmætt að Elskarinn, sem hefur gefið okkur lífið, skynsemina og sjálfan kærleikann, hljóti þann kærleika sem Honum ber. Þrá Hans stendur til alls sem Hann hefur skapað, og ef þessi kærleikur er ekki rétt notaður, og ef við elskum ekki af öllu hjarta okkar, sálu, huga og mætti Hann sem hefur gætt okkur kærleika, þá hrakar kærleikanum úr sinni háu tign og hann verður að eigingirni. Þannig hlýst ógæfa af, bæði fyrir okkur sjálf og aðrar skepnur Guðs. Það er undarlegt til þess að hugsa að sérhver eigingjarn maður verður sjálfsbani.
Þetta hef Ég einnig sagt: „Elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ Þótt allir menn séu í vissum skilningi náungar hver annars, er hér einkum átt við þá sem búa daglega í nábýli hver við annan; því að það er auðvelt mál að lifa í sátt og samlyndi við þann sem er aðeins nálægur í fáeina daga, jafnvel þótt hann sé óvingjarnlegur; en þegar um er að ræða mann sem býr í nágrenni við þig og bakar þér vandræði dag eftir dag, þá er afar erfitt að umbera hann og elska hann eins og sjálfan þig. En þegar þú hefur sigrað í þessari miklu baráttu verður auðveldara að elska alla aðra eins og sjálfan þig.
Þegar maðurinn elskar Guð af öllu hjarta sínu, huga og sálu, og náunga sinn eins og sjálfan sig, verður ekkert rúm lengur fyrir efasemdir, heldur mun í honum verða grundvallað það Guðs ríki sem engan enda tekur, og hann verður bræddur og mótaður í eldi kærleikans í mynd síns himneska Föður, sem í upphafi skapaði hann líkan Sér sjálfum.
5. Ég opinbera Mig einnig fyrir Orð Mitt (Biblíuna) þeim sem leita Mín af einlægu hjarta. Rétt eins og Ég tók á Mig mannlegan líkama til hjálpræðis mönnum, þannig er Orð Mitt, sem er andi og líf (Jóhannesarguðspjall 6:63), einnig ritað á máli manna; það er að segja, í því eru innblásnir og mannlegir þættir sameinaðir. En rétt eins og menn skilja Mig ekki, þannig skilja þeir ekki heldur Orð Mitt. Til að skilja það er kunnátta í hebresku og grísku ekki nauðsynleg, heldur er nauðsynlegt að eiga samfélag þess heilaga anda sem spámennirnir og postularnir voru í þegar þeir rituðu það. Án efa er tungumál þessa Orðs andlegt, og sá sem er fæddur af andanum er einn fær um að skilja það til fulls, hvort sem hann er kunnugur gagnrýni heimsins eða aðeins barn, því að hann skilur þetta andlega tungumál vel þar eð það er móðurmál hans. En mundu að þeir sem búa aðeins yfir visku þessa heims geta ekki skilið það, því að þeir eiga enga hlutdeild í heilögum anda.Jóhannes 6:63 · Biblían 1981
6. Í bók náttúrunnar, sem Ég er einnig höfundur að, opinbera Ég Mig óspart. En til að lesa þá bók þarf líka andlegt innsæi, svo að menn geti fundið Mig; annars er hætta á að þeir villist af leið í stað þess að finna Mig.
Þannig notar blindur maður fingurgómana sem augu og les bók með snertingunni einni saman, en með snertingunni einni getur hann ekki lagt neitt raunverulegt mat á sannleiksgildi hennar. Rannsóknir efasemdamanna og trúleysingja sanna þetta, því að í stað fullkomnunar sjá þeir aðeins galla. Aðfinnslusamir gagnrýnendur spyrja: „Ef almáttugur Skaparinn hefur skapað heiminn, hvers vegna eru þá gallar á honum, svo sem fellibyljir, jarðskjálftar, myrkvar, sársauki, þjáning, dauði og annað slíkt?“ Heimskan í þessari gagnrýni er svipuð og hjá ólærðum manni sem finnur að ófullgerðri byggingu eða hálfgerðri mynd. Þegar hann sér verkið fullgert nokkru síðar skammast hann sín fyrir heimsku sína og lýkur lofsorði á það. Á sama hátt gaf Guð ekki þessum heimi sína núverandi mynd á einum degi, og hann mun ekki heldur ná fullkomnun á einum degi. Öll sköpunin stefnir áfram til fullkomnunar, og ef verða mætti að maður þessa heims sæi úr fjarska með augum Guðs hinn fullkomna heim þar sem enginn galli sést, myndi hann einnig lúta Honum í lofgjörð og segja: „Allt er harla gott“ (Fyrsta Mósebók 1:31).Fyrsta Mósebók 1:31
7. Andi mannsins býr í líkamanum mjög á sama hátt og unginn í skurninni. Ef verða mætti að fuglinum inni í skurninni yrði sagt að fyrir utan hana væri mikill og víðfeðmur heimur með alls kyns ávöxtum og blómum, ám og tignarlegum fjöllum, að móðir hans væri þar einnig og að hann myndi sjá allt þetta þegar hann losnaði úr skurninni, gæti hann hvorki skilið það né trúað því. Jafnvel þótt einhver segði honum að fjaðrir hans og augu, sem nú væru tilbúin til notkunar, myndu gera honum kleift að sjá og fljúga, myndi hann ekki trúa því, og engin sönnun væri heldur möguleg fyrr en hann kæmi út úr skurninni.
Á sama hátt eru margir í óvissu um hið komandi líf og tilvist Guðs, vegna þess að þeir sjá ekki út fyrir þennan skurnlíka líkama holdsins, og hugsanir þeirra, líkt og veikburða vængir, geta ekki borið þá út fyrir þröng mörk heilans. Veikbyggð augu þeirra geta ekki komið auga á þá eilífu og ófölnandi fjársjóði sem Guð hefur fyrirbúið þeim sem elska Hann (Jesaja 64:3; 65:17). Hið nauðsynlega skilyrði til að öðlast þetta eilífa líf er að við, á meðan við erum enn í þessum líkama, tökum í trú við þeim lífgandi yl frá heilögum anda sem unginn fær frá móður sinni; annars er hætta á dauða og eilífri glötun.
8. Enn fremur segja margir að sá hlutur, eða það líf, sem á sér upphaf hljóti af nauðsyn að eiga sér endi. Þetta er ekki satt, því að getur ekki hinn Almáttugi, sem að vilja Sínum megnar að skapa úr engu það sem er, einnig með orði máttar Síns veitt því ódauðleika sem Hann hefur skapað? Ef svo væri ekki væri ekki hægt að kalla Hann Almáttugan. Lífið í þessum heimi virðist háð hrörnun og eyðingu vegna þess að það er undirorpið þeim hlutum sem sjálfir eru háðir breytingum og hrörnun. En ef þetta líf yrði leyst undan þessum breytilegu og forgengilegu áhrifum og sett undir vernd hins eilífa og óbreytanlega Guðs, sem er lind og uppspretta eilífs lífs, myndi það sleppa úr greipum dauðans og öðlast eilífð.
Hvað snertir þá sem trúa á Mig: „Ég gef þeim eilíft líf, og þeir skulu aldrei að eilífu glatast, og enginn skal slíta þá úr hendi minni“ (Jóhannesarguðspjall 10:28). „Ég er Drottinn Guð, hann sem er og var og kemur, hinn alvaldi“ (Opinberunarbókin 1:8).Jóhannes 10:28 · Biblían 1981 · Opinberunarbókin 1:8 · Biblían 1981