Níundi kafli
„Hann á að vaxa“
Hefur þú einhvern tíma ekið yfir sléttuna og komið auga á fjall í fjarska? Við fyrstu sýn virðist fjallið mjög lítið. En þegar þú ekur áfram og nálgast fjallið undrast þú hve hratt það virðist vaxa. Í rauninni er fjallið ekkert að vaxa. Það er enn af sömu stærð og þegar þú sást það fyrst. Munurinn er sá að þú hefur færst nær fjallinu. Þetta er nákvæmlega það sem gerist þegar Guð „vex“. Hann er hinn sami Guð öllum mönnum. En í augum sumra virðist Hann vera lítill, visnaður og máttvana Guð sem varla er hægt að ætlast til að geri nokkuð sem raunverulega skiptir máli. Ástæðan fyrir þessu er sú að þetta fólk lifir OF LANGT FRÁ HONUM! Þess vegna er okkur boðið: „Nálægið yður Guði.“ Jakobsbréfið 4:8.Jakobsbréfið 4:8
Guð er langt frá mörgum vegna þess að þeir hafa leyft svo mörgu að koma upp á milli. Sumir nálægja sig jafnvel Guði með munni sínum, en hjarta þeirra er langt frá Honum. (Matteusarguðspjall 15:8.) Um þá segir Hann: „Til einskis dýrka þeir mig.“ Eina leiðin til að komast nálægt Guði er að byrja í fullri alvöru, af öllu hjarta, að leita uppi þá hluti sem standa á milli og LOSA SIG VIÐ ÞÁ!Matteus 15:8 · Biblían 1981
Hrokinn heldur Guði svo sannarlega í fjarlægð. „Hinn drambláta þekkir hann Í FJARSKA.“ Sálmarnir 138:6. Guð getur ekki unnið MEÐ þér þegar Hann er LANGT FRÁ þér. Þú verður að koma til Hans í auðmýkt.Sálmarnir 138:6
Sumir hafa afsakað kraftleysið í lífi sínu með því að segja: „Tími kraftaverkanna er liðinn. Kirkjan er nú föst í sessi og þarf ekki lengur á kraftaverkum að halda.“ Hvergi staðfestir Ritningin nokkra slíka hugsun. „Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.“ Hebreabréfið 13:8.Hebreabréfið 13:8 · Biblían 1981
„Sjá, hönd Drottins er eigi svo stutt, að hann geti ekki hjálpað, og eyra hans er ekki svo þykkt, að hann geti ekki heyrt. NEI, MISGJÖRÐIR YÐAR HAFA GJÖRT SKILNAÐ MILLI YÐAR OG GUÐS YÐAR.“ Jesaja 59:1, 2. Kenndu ekki Guði um kraftleysi þitt. Varpaðu sökinni beint þangað sem hún á heima. ÞÚ ert of langt frá Guði vegna þess að það eru of margar misgjörðir (syndir) á milli.Jesajabók 59:1, 2
Vinir og ástvinir geta komið upp á milli. Jesús sagði: „Sá sem ann föður eða móður meir en mér, er mín ekki verður, og sá sem ann syni eða dóttur meir en mér, er mín ekki verður.“ Matteusarguðspjall 10:37.Matteus 10:37 · Biblían 1981
Áhyggjur lífsins geta komið upp á milli, líkt og illgresi sem kæfir uppskeruna og gerir hana ávaxtalausa. Sumir festa allan hugann við málefni þessa lífs, rétt eins og þeir ætli að lifa hér að eilífu. Guð getur ekki unnið með slíku fólki. Til að vera nærri hjarta Guðs og finna hjartslátt miskunnsemi Hans í garð hinna glötuðu og þjáðu verður maður stöðugt að gera sér grein fyrir því hve lífið er stutt og eilífðin óumflýjanleg.
Sumir haldast í fjarlægð frá Guði vegna skorts á þakklæti. Lofgjörð vantar í líf þeirra. Þegar menn kunna í raun að meta það sem Guð ER og það sem Hann hefur gert, vekur það lofgjörð. Lofgjörðin leiðir okkur inn í sjálfa nærveru Guðs. „Gangið inn um hlið hans með lofsöng, í forgarða hans með sálmum.“ Sálmarnir 100:4.Sálmarnir 100:4 · Biblían 1981
Sumir sem lesa þessa bók vita ef til vill ekki að Guð þráir að vera fólki Sínu svo nærri að Hann sendir HEILAGAN ANDA Sinn til að taka sér bústað, ekki aðeins nálægt barni Guðs heldur INNI Í því. Þegar þú hefur opnað hjarta þitt og leyft anda Guðs að fylla þig, skíra þig og taka hvern hluta líkama þíns til eignar, munt þú finna að Hann er miklu nær en nokkru sinni fyrr. Hann verður þér miklu meiri Guð en þú hefur nokkru sinni þekkt. Þegar Honum er svo leyft að búa áfram ríkulega í þér, kenna þér og leiðbeina dag frá degi inn í nánara samfélag við föðurinn og inn í hreinna líf í heilagleika, mun mikilleiki Guðs verða æ augljósari. Hann mun vaxa í lífi þínu.
Því betur sem þú kynnist Honum með því að ganga við hlið Hans dag frá degi, og því meira sem þú nærist á orði Hans, þeim mun meira mun Hann vaxa í augum þínum. Allt sem við vitum um Guð, vitum við fyrir trú. „Svo kemur þá trúin af boðuninni, en boðunin byggist á orði Krists.“ Rómverjabréfið 10:17. Nærðu þig á orði Guðs. Það er undarlegt, en sumir gera sér jafnvel vonir um að öðlast kraft hjá Guði þótt þeir gefi orði Guðs afar lítinn gaum. Hann mun ekki heiðra þá með nærveru Sinni sem vanvirða orð Hans.Rómverjabréfið 10:17 · Biblían 1981
Það er orð Guðs sem hjálpar okkur að hreinsa burt úr lífi okkar þær SYNDIR sem standa á milli. „Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að orði þínu.“ Sálmarnir 119:9.Sálmarnir 119:9 · Biblían 1981
Þegar Guð tók á þessu máli við mig gerði Hann mér fyllilega ljóst að ef þessir hlutir fengju að viðgangast í lífi mínu, ef syndin væri umborin og fengi að sitja þar, myndi Guð áfram verða í fjarlægð frá mér. Hann yrði svo langt í burtu að Hann yrði mér aðeins hinn litli, merkingarlausi Guð sem svo margir aðrir segjast þjóna. Eina leiðin til þess að Guð gæti vaxið svo í lífi mínu að Hann starfaði í gegnum mig í krafti var sú að ég héldi öllu burtu sem gæti komið upp á milli mín og Guðs. Eina leiðin til þess að Hann gæti áfram verið hinn mikli „ÉG ER“ í minni eigin reynslu var sú að ég gengi stöðugt í ljósi orðs Hans, í krafti anda Hans, og héldi áfram að MINNKA dag frá degi og gengi æ meira upp í Honum sem verður að VAXA.
Hann VERÐUR að vaxa! Ekki gæti vaxið. Ekki kynni að vaxa. Hann VERÐUR að vaxa. Hann verður að vaxa að dýrð, hátign og mætti. Hann verður að vaxa í stjórn Sinni á lífi mínu.
„Ég er krossfestur með Kristi. Sjálfur lifi ég ekki framar, HELDUR LIFIR KRISTUR Í MÉR.“ Galatabréfið 2:20.
Galatabréfið 2:20
„Fyll mig anda Þínum, uns allur heimur sér,
ekki mig, heldur Jesú einan, skína út frá mér.“