Fara í efni
← BækurGjaldið fyrir kraftaverkamátt Guðs

Tíundi kafli

Ónytjuorð og heimskulegt hjal

um 9 mín. lestur

„Hvert ónytjuorð (gagnslaust), sem menn mæla, munu þeir verða að svara fyrir á dómsdegi.“ Matteusarguðspjall 12:36.

Matteus 12:36 · Biblían 1981

Ekkert afhjúpar skort á sönnu andlegu lífi jafn fljótt og rækilega og heimskulegt hjal, glens og ÓNYTJUORÐ. Ekkert stimplar yfirborðskenndan kristinn mann jafn örugglega sem mann er ber enga umhyggju fyrir öðrum né nokkra byrði fyrir hinum glötuðu og þjáðu og linnulaus straumur af heimskulegu hjali og marklausu spaugi. Þó að þetta virðist smávægilegt í augum margra eru fáir andlegir sjúkdómar jafn skæðir eða jafn smitandi.

Guð skipar heimskulegu hjali á bekk með afar ógeðfelldum félögum: „En frillulífi og óhreinleiki yfirleitt eða ágirnd á ekki einu sinni að nefnast á nafn meðal yðar. Svo hæfir heilögum. Ekki heldur svívirðilegt hjal eða ósæmandi spé. Þess í stað komi miklu fremur þakkargjörð.“ Efesusbréfið 5:3, 4.Efesusbréfið 5:3, 4 · Biblían 1981

Jesús lýsti því Sjálfur yfir: „... hinar illu hugsanir, saurlifnaður, þjófnaður, manndráp, hórdómur, ágirnd, illmennska, sviksemi, taumleysi, öfund, lastmælgi, hroki, HEIMSKA. Allt þetta ILLA kemur innan að og SAURGAR manninn.“ Markúsarguðspjall 7:21-23. Heimska saurgar þá manninn alveg eins og frillulífi! Margir myndu aldrei myrða né stela, en stíga þó í prédikunarstólinn og opinbera þar blygðunarlaust fyrir alþjóð með orðum sínum að þeir eru saurgaðir hið innra. Ég hef enn aldrei fundið nokkurn mann, sem Drottinn notar með miklum krafti til frelsunar sjúkum og syndugum, sem hefur munninn fullan af heimsku. Slíkir menn geta ef til vill skemmt fólki og fengið það til að hlæja dátt að bröndurum sínum og bulli, en þegar á reynir að veita raunverulega frelsun, eða hjálp og blessun þegar sönn neyð steðjar að, ÞÁ HAFA ÞEIR EKKERT FRAM AÐ FÆRA! Þeir reyna jafnvel stundum að leggja sinn vanalega léttúðarblæ til hliðar um stund og prédika eða kenna um djúpa hluti, en í eyrum áheyrenda hljómar engin einlægni, engin sönn sannfæring um að þeir tali sem orð Guðs. Þeir eru eins og hljómandi málmur eða gjallandi bjalla.

Ég á ekki við að fólk Guðs eigi að ganga um dapurt á svip öllum stundum, án allrar gleði. Fólk Guðs er hamingjusamasta fólk í heimi. Guð hefur boðið: „Verið ávallt glaðir.“ Fyrra Þessaloníkubréf 5:13. Ætlast er til að fólk Guðs sé svo glatt að það hrópi af fögnuði, syngi, klappi saman lófum, dansi, hlæi og jafnvel hoppi af gleði. Hér á eftir fara nokkrir ritningarstaðir sem sýna þetta:Fyrra Þessaloníkubréf 5:13

„Öll veröldin FAGNI fyrir Drottni! Þjónið Drottni með GLEÐI, komið fyrir auglit hans með FAGNAÐARSÖNG!“ Sálmarnir 100:1-2.

„KLAPPIÐ SAMAN LÓFUM, allar þjóðir, FAGNIÐ fyrir Guði með gleðiópi.“ Sálmarnir 47:2.

„Þeir skulu lofa nafn hans með gleðidansi, leika fyrir honum á bumbur og gígjur.“ Sálmarnir 149:3.

Sálmarnir 149:3 · Biblían 1981

„Davíð DANSAÐI af öllum mætti fyrir Drottni.“ Síðari Samúelsbók 6:14.

Seinni Samúelsbók 6:14 · Biblían 1981

„Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna: „Mikla hluti hefir Drottinn gjört við þá.“ Drottinn hefir gjört mikla hluti við oss, vér vorum glaðir.“ Drottinn hefir gjört mikla hluti við oss, vér vorum GLAÐIR.“ Sálmarnir 126:2, 3.

Sálmarnir 126:2, 3 · Biblían 1981

„Fagnið á þeim degi og HOPPIÐ AF GLEÐI.“ Lúkasarguðspjall 6:23.

Lúkas 6:23

„Því að gleði Drottins er yðar styrkur.“ Nehemíabók 8:10.

Nehemíabók 8:10

Kristinn maður sem ekki á GLEÐI er veikburða kristinn maður, lélegur fulltrúi þeirrar trúar sem hann játar, og verður líklega brátt algerlega fráhverfur Guði og farinn að leita gleði sinnar annars staðar.

Þessi gleði sem veitir styrk felst í því að gleðjast í Drottni. Hún felst ekki í því að fagna yfir mætti okkar eigin styrks eða okkar eigin fyndni. „En nú stærið þér yður í oflátungsskap. Allt slíkt stærilæti er vont.“ Jakobsbréfið 3:2.Jakobsbréfið 3:2

Margir sem eru sekir um þá synd að tala heimskulega, óhóflega og gagnslaust munu í fyrstu freistast til að stimpla mig ofstækismann og rísa upp til varnar eftirlætissynd sinni. Þeir munu lýsa því yfir að það séu mistök að taka hlutina of alvarlega. Því til stuðnings geta þeir enga vörn fundið í Ritningunni. Björgun hinna glötuðu og frelsun hinna þjáðu er alvörumál sem krefst alls hjarta og huga þess sem er helgaður verkinu. Margir hafa áskilið sér rétt til að tala eins mikið og á hvern þann hátt sem þeim sýnist. Þeir vilja frekar halda í brandara sína, heimskulegt glens og bull en að hafa kraft Guðs í lífi sínu. Ef þannig er ástatt um þig verður Guð að halda áfram án ÞÍN.

Guð hefur kosið að starfa fyrir hið talaða orð fulltrúa sinna í heiminum. Þegar Jesús var hér sagði Hann við lærisveina sína: „Það er andinn, sem lífgar, holdið megnar ekkert. Orðin, sem ég hef talað til yðar, þau eru andi og þau eru líf.“ Jóhannesarguðspjall 6:63. Hvað eru orð þín?Jóhannes 6:63 · Biblían 1981

Jakob líkir talinu sem kemur út af munni okkar við vatn sem streymir úr lind. (Jakobsbréfið 3:10, 11.) Hann leggur áherslu á að lind eigi alltaf að gefa af sér sams konar vatn – ekki ferskt vatn stundum og beiskt vatn stundum. Síðan bætir hann við: „Hver er vitur og skynsamur yðar á meðal? Hann láti með góðri hegðun verk sín lýsa hóglátri speki.“ Jakobsbréfið 3:13.Jakobsbréfið 3:13 · Biblían 1981 · Jakobsbréfið 3:10, 11

„Látið ekkert skaðlegt orð líða yður af munni, HELDUR ÞAÐ EITT, SEM ER GOTT TIL UPPBYGGINGAR.“ Efesusbréfið 4:29.

Efesusbréfið 4:29 · Biblían 1981

Orð sem ekki eru góð til uppbyggingar eru ÓNYTJUORÐ (hégómleg, innantóm eða gagnslaus orð). Þau eru ORÐ SEM ER SÓAÐ. Guð hefur gefið ORÐI hins trúaða vald og kraft sem gerir það dýrmætt. Dýrmætum hlutum á ekki að sóa.

Jesús sagði: „Sannlega segi ég yður: Hver sem (það merkir þú!) segir við fjall þetta: ,Lyft þér upp, og steyp þér í hafið,‘ og efar ekki í hjarta sínu, heldur trúir, að svo fari sem hann mælir, honum mun verða að því.“ Markúsarguðspjall 11:23. Þetta gefur OKKUR kraft til að tala með valdi, jafnvel svo að við getum ráðið yfir líflausum hlutum. Þetta er sami krafturinn og Jesús notaði þegar Hann talaði við vindinn og vatnið og storminn lægði. (Markúsarguðspjall 4:39.) Þetta er sami krafturinn og Móse notaði þegar hann talaði við klettinn í eyðimörkinni og vatnið fossaði fram. (Fjórða Mósebók 20:8.) Jósúa notaði sama kraft þegar hann bauð sólinni og tunglinu að nema staðar. (Jósúabók 10:12, 13.) Jesús sýndi fram á notkun þessa krafts þegar Hann talaði við fíkjutréð og sagði: „Aldrei að eilífu eti neinn ávöxt af þér framar!“ (Markúsarguðspjall 11:14.) Hann skipaði trénu að deyja, OG það dó! Við þetta tækifæri fól Hann berum orðum HVERJUM ÞEIM sem TRÚIR þennan sama kraft og þetta sama vald.Markús 11:23 · Biblían 1981 · Fjórða Mósebók 20:8 · Jósúabók 10:12, 13 · Markús 11:14

Það er til karla og kvenna sem geta talað orð af slíkum krafti – sem með töluðum orðum sínum geta veitt frelsun frá sérhverri kúgun Satans, hjálpræði fyrir sálina og lækningu fyrir líkamann – sem Jesús beindi þeirri viðvörun að ÓNÝT ORÐ SEM FARIÐ HAFA TIL SPILLIS verði dregin fyrir dóm. Orð sem hefðu átt að vera líf og frelsun! Orð sem hefðu átt að vera brauð handa sveltandi sálum! En orð sem voru ekkert annað en hismi! Að standa frammi fyrir heimi deyjandi, sveltandi sálna og þjáðs mannkyns, en halda aftur af hinni einu uppsprettu lífs og frelsunar og bjóða steina í stað brauðs! Að láta lindina, sem ætti að gefa af sér HREINT VATN LÍFSINS, spúa út úr sér straumi af froðu og heimsku sem er, ef ekki eitraður, þá algerlega ógeðfelldur og gagnslaus! Hvað ætlar þú að segja við dómarann á þeim degi þegar verk okkar og ORÐ verða dæmd á mælikvarða orðs Guðs, þar sem við erum áminnt: „Hver sem TALAR FLYTJI ORÐ (ummæli eða mál) GUÐS.“ Fyrra Pétursbréf 4:11.Fyrra Pétursbréf 4:11

Þeir sem krefjast þess að fá að halda í heimsku sína hvað sem það kostar líkjast svo mjög hópi ungra stúlkna sem helgaður guðsmaður sá í sýn; þær voru of uppteknar við að flétta blómakransa til að vara fólkið, sem hraðaði sér hjá, við því að spor þess leiddu fram á skelfilega hengiflugu þar sem það myndi brátt steypast fram af og lemjast til bana á klettunum fyrir neðan. Þetta er fjarri anda Krists, sem KENNDI Í BRJÓSTI UM MANNFJÖLDANN.

Ég á ekki við að ekkert rými sé fyrir kímni í samtölum hins kristna manns eða jafnvel í prédikun Orðsins. Oft getur mál okkar eða prédikun verið gamansöm en þó helguð. Oft getur svolítil kímni, einkum þegar hún er notuð til að skýra tiltekið atriði, verið mjög gagnleg til að vekja athygli og áhuga áheyrenda og koma boðskap fagnaðarerindisins í mark, svo að sálir vakni og snúi sér til Guðs. Þegar kímnin er notuð þannig er hún EKKI ónýt eða gagnslaus.

Ástæða þess að svo margir kristnir menn mæla svo mörg ónytjuorð er sú að þeir mæla SVO MÖRG ORÐ! Þeir tala svo mikið að þeir hafa engan tíma til að hugsa og engan tíma til að hlusta á rödd Guðs. Heimskuleg orð liggja svo auðveldlega á tungunni. Við þurfum ekki einu sinni að hugsa þau upp. Við getum hlustað á hvaða samtal sem er, hvar sem er, og farið þaðan með stóran forða af þeim sem hægt er að þylja upp aftur og aftur. Tíðarandinn einkennist af sívaxandi léttúðaranda sem gerir bæði syndurum og heilögum erfitt um vik að hugsa í alvöru. Hann birtist vel í hinu margendurtekna spakmæli: „Taktu lífið ekki of alvarlega. Þú kemst hvort eð er aldrei lifandi frá því.“ Á slíkum tímum krefst það raunverulegrar áreynslu og helgunar að „leita sæmdar í því að vera kyrrlátur“ og bíða frammi fyrir Guði nógu lengi til að hafa þau orð fram að færa sem eru orð Guðs og geta borið í sér kraft. En vitur maður gerir það. „Sá sem sparar orð sín, er hygginn.“ Orðskviðirnir 17:27. „En munnur heimskingjanna GÆÐIR SÉR Á FÍFLSKU.“ Orðskviðirnir 15:14.Orðskviðirnir 17:27 · Orðskviðirnir 15:14

„Þar sem mikið er talað, fer eigi hjá synd.“ Orðskviðirnir 10:19.

Orðskviðirnir 10:19

„… og heimskutal, þar sem MÖRG ORÐ ERU VIÐHÖFÐ.“ Prédikarinn 5:2.

Heilagleiki er nauðsynlegur til að öðlast kraft, eins og þegar hefur verið sýnt fram á í fyrri köflum þessarar bókar. Og heilagleikinn er ekki fullkomnaður fyrr en hann hefur einnig tekið völdin yfir tungunni. „Verðið heldur sjálfir heilagir í allri hegðun, eins og sá er heilagur, sem yður hefur kallað.“ Fyrra Pétursbréf 1:15.Fyrra Pétursbréf 1:15 · Biblían 1981

Ég sárbæni ykkur, bræður, vegna hinna glötuðu og þjáðu sem munu aldrei hljóta frelsun NEMA ÞÚ BÚIR ÞIG UNDIR AÐ FÆRA ÞEIM HANA: íhugaðu þetta mál í bæn. Helgaðu þig Guði á nýjan leik. Bjóddu Honum fram LÍKAMA ÞINN sem lifandi fórn, OG GLEYMDU EKKI OG VANRÆKTU EKKI AÐ LÁTA TUNGU ÞÍNA, VARIR ÞÍNAR OG RÖDD ÞÍNA FYLGJA MEÐ!

„Tal yðar sé ætíð ljúflegt, en salti kryddað.“ Kólossubréfið 4:6.

Kólossubréfið 4:6

„Varðveit það, sem þér er trúað fyrir (kraftinn til að tala í stað Guðs og veita frelsun), og forðast hinar vanheilögu (ekki heilögu) hégómaræður (innantómt, einskis nýtt þvaður).“ Fyrra Tímóteusarbréf 6:20.

Fyrra Tímóteusarbréf 6:20 · Biblían 1981

Það er bæn mín að allir sem lesa þessa bók leggi allt á altarið og komist á þann stað þar sem þeir geta borið byrði fyrir hinum glötuðu og þjáðu; að þeir varpi frá sér ÖLLU því sem hindrar kraft Guðs í lífi þeirra. Guð getur haldið áfram án þín. En ef ÞÚ ætlar að halda áfram með Guði verður þú að ganga veg Hans. Leggðu heimskuna til hliðar NÚNA! Komdu þér út úr bakstraumnum og út í straum krafts Guðs.

FYRIRHEITIN eru handa þér, ef þú aðeins trúir þeim, uppfyllir skilyrði Guðs og GREIÐIR GJALDIÐ.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

10. kafli af 13 · 9 mín. eftirÓnytjuorð og heimskulegt hjal