Fara í efni
← BækurGjaldið fyrir kraftaverkamátt Guðs

Fyrsti kafli

Gjaldið fyrir kraftaverkamátt Guðs

um 22 mín. lestur

Hversu lengi hafði ég verið hérna í þessari kompu? Dagar eða aðeins klukkustundir? Vissulega virtust dagar vera liðnir síðan ég heyrði konuna mína læsa kompuhurðinni að utan að minni eigin beiðni! Hvað skyldi hún halda um að ég lokaði mig svona lengi inni? Voru í raun og veru liðnir dagar eða aðeins klukkustundir? Var mér í raun að miða eitthvað áfram hjá Guði? Myndi Guð svara? Myndi Guð svala þessu hungri sálar minnar eða yrði ég enn á ný að játa mig sigraðan eins og ég hafði svo oft gert? Nei! Ég skyldi vera kyrr hérna á hnjánum þar til Guð svaraði, eða deyja við tilraunina! Hafði orð Guðs ekki sagt: „Þeir sem bíða frammi fyrir Drottni fá nýjan kraft, þeir fljúga upp – upp – UPP – á vængjum – á vængjum sem ernir; þeir hlaupa og lýjast ekki; þeir –.“

Hafði konan mín opnað dyrnar? Nei, þær voru enn lokaðar! En ljósið, hvaðan barst ljósið? Þá fór að renna upp fyrir mér að ljósið sem fyllti bænakompuna mína var dýrð Guðs! Ekki höfðu kompudyrnar opnast, heldur dyr himinsins!

Nærvera Guðs var svo raunveruleg og máttug að mér fannst ég mundi deyja þarna á hnjánum. Mér virtist sem ég gæti ekki þolað það ef Guð kæmi eitthvað nær! Samt þráði ég hana og var staðráðinn í að hljóta hana. Lítil furða að Páll við svipaðar aðstæður „féll til jarðar“. Postulasagan 9:4. Engin furða að Jóhannes „féll sem dauður til fóta hans“. Opinberunarbókin 1:17.Postulasagan 9:4 · Opinberunarbókin 1:17

Var þetta svarið? Ætlaði Guð að tala við mig? Myndi Guð loksins, eftir öll þessi ár, svala þrá hjarta míns? Ég virtist missa meðvitund um allt annað en máttuga nærveru Guðs. Ég skalf, ég reyndi að sjá Hann en varð þá hræddur um að ég sæi Hann, því að skyndilega rann upp fyrir mér að ef ég sæi Hann myndi ég deyja. Dýrðleg nærvera Hans ein saman var nóg!

Þá heyrði ég rödd Hans líkt og í hvirfilbyl. Þetta var Guð! Hann var að tala við mig! Þetta var hið dýrðlega svar sem ég hafði leitað svo kostgæfilega og beðið svo lengi eftir. Já, þetta var það sem ég hafði beðið eftir allt frá afturhvarfi mínu tuttugu og þriggja ára að aldri. Já, þetta var það sem sál mín hafði í þrá sinni hrópað á allt frá því að Guð kallaði mig til þjónustunnar.

Sú köllun til þjónustunnar hafði komið af slíkum krafti og var svo skýr að ekkert gat nokkurn tíma fengið mig til að efast um hana. Allt frá afturhvarfi mínu hafði Guð gert mér hana svo raunverulega, þótt fyrra líferni mitt hefði ekki verið með þeim hætti að það veitti mér nokkurn undirbúning undir þetta verk.

Allt frá afturhvarfi mínu gerði ég mér grein fyrir því að ég þyrfti að leggja hart að mér við nám ef ég ætti nokkru sinni að rækja köllun Guðs í lífi mínu. Því varði ég mörgum klukkustundum í að lesa Biblíuna og leitast við að skilja boðskap hennar og merkingu. Einfaldri og ólærðri sál minni virtist Guð meina nákvæmlega það sem Hann sagði – og virtist segja það beint við mig gegnum Orð Sitt: „Farið og prédikið: ,Himnaríki er í nánd.‘ LÆKNIÐ SJÚKA, hreinsið líkþráa, vekið upp dauða, rekið út illa anda: gefins hafið þér fengið, gefins skuluð þér láta í té.“ Matteusarguðspjall 10:7. Allt þetta virtist felast í kölluninni til þjónustunnar, en samt SÁ ÉG ÞETTA EKKI GERAST! Sjálfur var ég máttvana til að framkvæma þessi boð Krists. Samt vissi ég að ÞAÐ VAR HÆGT, því að Kristur myndi ekki gefa fyrirmæli sem ógerlegt væri að framkvæma!Matteus 10:7 · Biblían 1981

Fyrir afturhvarf mitt vissi ég svo lítið um Guð og orð Hans að ég gat ekki einu sinni farið með Jóhannesarguðspjall 3:16 eða nefnt guðspjöllin fjögur. Í meþódistakirkjunni þar sem ég sneri mér til Guðs og gerðist safnaðarmeðlimur var mér hvorki kennt að vænta þess að verða skírður heilögum anda, eins og fyrstu lærisveinarnir á hvítasunnudag, né heldur að vænta þess að táknin sem Markúsarguðspjall 16:17,18 nefnir fylgdu mér sem trúuðum manni á Drottin. Mér var kennt að trúa á Drottin Jesú Krist til hjálpræðis, og ég frelsaðist á dýrðlegan hátt og varð frjáls undan fordæmingu syndarinnar. Þegar ég svo rannsakaði ritningarnar og bað Guð að leiða mig að þeim ritningargreinum sem yrðu mér að sem mestu gagni, tók Drottinn að opinbera mér sannleikann um skírn heilags anda, táknin sem fylgja, náðargjafir andans og hina yfirnáttúrulegu hluti Guðs.Jóhannes 3:16 · Markús 16:17, 18

Ekki leið á löngu þar til Guð leiddi mig inn í hvítasunnukirkju, þar sem ég fór í litlum mæli að sjá blessanir Guðs og nokkrar opinberanir andans. Á þessum samkomum sannfærðist ég um að ég þarfnaðist skírnarinnar í andanum, og þar tók ég að biðja og leita Guðs í einlægni til að öðlast þá reynslu.

Þrjátíu dögum eftir afturhvarf mitt fylltist ég heilögum anda á dýrðlegan hátt á móti hjá Assembly of God í Miami í Oklahoma, og talaði öðrum tungum eins og andinn gaf mér að mæla.

Ég hafði lesið: „En þér munuð öðlast kraft, er hinn heilagi andi kemur yfir yður.“ Postulasagan 1:8. Ég átti fyllilega von á því að með fyllingu heilags anda fengi ég samstundis kraft til að lækna sjúka og vinna kraftaverk. Það tók mig ekki langan tíma að átta mig á því að meira þurfti til en skírnina í heilögum anda til að sjá þennan árangur að staðaldri. Skírnin í andanum veitir aðgang að þessum krafti, en náðargjafir andans eru farvegirnir sem þessi kraftur verkar í gegnum. Ég tók þegar í stað að biðja og sækjast eftir náðargjöfum andans. Mér fannst ég verða að hafa kraft til að lækna sjúka, því að ég vissi að Guð kallaði aldrei nokkurn mann til að prédika fagnaðarerindið án þess að fela honum jafnframt að lækna sjúka.Postulasagan 1:8

Krafti heilags anda má auðveldlega líkja við raforku. Þegar maður fyllist andanum er það líkt og búið sé að leggja rafmagn í húsið hans og tengja það við „orkuverið“. Margir nota rafmagn árum saman eingöngu til lýsingar! Þeir nýta sér aldrei þá miklu möguleika sem bjóðast með því að nota raftækin sem rafmagnið knýr. Náðargjafir andans eru líkt og raftækin. Eftir því sem nýjar gjafir bætast við er hægt að afkasta meiru og á auðveldari hátt. Krafturinn hefur ekki breyst, en hann nýtist betur. Guð ætlaði sér aldrei að LÁTA STAÐAR NUMIÐ þegar Hann hafði fyllt fólk Sitt andanum. Þetta er aðeins byrjunin. „Keppið eftir hinum æðri náðargjöfum.“ Fyrra Korintubréf 12:31. Ég komst að raun um að þetta er leiðin til meiri afreka fyrir Guð.Fyrra Korintubréf 12:31

Tveimur árum eftir afturhvarf mitt gekk ég í farsælt hjónaband og hóf þjónustu mína.

Í meira en ár héldum við hjónin áfram að prédika þetta dýrðlega fagnaðarerindi um hjálpræði, skírnina í andanum, endurkomu Krists og GUÐLEGA LÆKNINGU. Í hverri vakningu tók ég alltaf frá að minnsta kosti tvö kvöld í viku til að prédika um guðlega lækningu og biðja fyrir sjúkum. Á þessum tíma sáum við mikinn fjölda kraftaverkalækninga, því að Guð heiðraði prédikun orðs Síns. En ég vissi að áætlun Guðs fól í sér stærri hluti handa mér, og ég trúði því að sá tími kæmi í framtíðinni að þeir yrðu að veruleika í lífi mínu.

Oft rannsökuðum við konan mín ritningarnar saman, og við það urðum við æ sannfærðari um að fyrirheit Guðs varðandi táknin sem fylgja, náðargjafir andans, lækningar og kraftaverk væru ætluð okkur í dag. Einnig var augljóst að við bjuggum ekki yfir þeim krafti í þeirri fyllingu sem Guð hafði heitið. Við vissum að biblíuleg ástæða hlaut að vera fyrir því hve mjög okkur skorti kraft. Þar sem Guð getur ekki logið hlaut sökin að liggja HJÁ OKKUR SJÁLFUM!

Á meðan ég þjónaði sem forstöðumaður við fyrstu kirkjuna mína, Assembly of God kirkju í Colorado, tók ég þá eindregnu ákvörðun að ég YRÐI að heyra frá himni og fá að vita ástæðuna fyrir því að þjónusta mín var ekki staðfest með táknum og undrum.

Ég var viss um að ef ég fastaði og bæði myndi Guð á einhvern hátt tala við mig og opinbera mér hvað stæði á milli mín og kraftaverkamáttar Guðs í þjónustu minni. Mig hungraði svo í kraft Guðs í mínu eigin lífi að mér fannst ég hvorki geta stigið í prédikunarstólinn né prédikað framar fyrr en ég hefði heyrt frá Guði, og ég sagði konunni minni að þetta væri áform mitt.

Þá háði ég mestu baráttu lífs míns. Satan var staðráðinn í því að ég skyldi EKKI fasta og biðja þar til Guð svaraði. Margt sinnið sigraði hann mig eða gabbaði mig út úr bænakompunni. Satan vissi að ef ég næði í raun og veru sambandi við Guð yrði ríki hans fyrir miklu tjóni, og hann ætlaði sér að gera allt sem í hans valdi stóð til að hindra að ég næði því sambandi.

Dag eftir dag fór ég inn í bænakompuna, staðráðinn í að vera þar uns Guð hefði talað við mig. Aftur og aftur kom ég út án svarsins.

Aftur og aftur sagði konan mín við mig: „Ég hélt að þú hefðir sagt að í þetta sinn ætlaðir þú að vera inni þar til þú fengir svarið.“ Síðan brosti hún á sinn ljúfa hátt og minntist þess að „andinn er að vísu fús, EN HOLDIÐ ER VEIKT!“

Aftur og aftur svaraði ég henni: „Elskan mín, ég ætlaði mér í alvöru að biðja þar til ég næði í gegn í þetta sinn, en –!“ Alltaf virtist einhver ástæða vera fyrir því að ég gat ekki verið í kompunni þar til svarið kæmi. Ég réttlætti mig alltaf með því að segja að ég skyldi biðja þar til ég næði í gegn á morgun. Aðstæður yrðu hagstæðari þá.

Drottinn uppörvaði hjarta mitt með því að vekja athygli mína á því hvernig Daníel hélt út í föstu og bæn og hrifsaði svarið úr höndum Satans, þótt það tæki þrjár vikur. (Sjá Daníelsbók 10:1 og 12)Daníelsbók 10:1

Daginn eftir var ég aftur kominn á hnén í kompunni. Ég hafði sagt konunni minni að ég myndi aldrei koma út fyrr en ég heyrði frá Guði. ÉG HÉLT Í RAUN OG VERU AÐ ÉG MEINTI ÞAÐ.

En nokkrum klukkustundum síðar, þegar ég fór að finna ilminn af matnum sem konan mín var að útbúa handa sér og litla syni okkar, var ég fljótt kominn út úr kompunni og fram í eldhús og spurði: „Hvað ilmar svona dásamlega, elskan mín?“

Fáeinum augnablikum síðar, á meðan ég sat við borðið, talaði Guð til hjarta míns. Ég hafði aðeins tekið einn munnbita af matnum og ég hætti. Guð hafði talað við mig. Ég vissi að fyrr en ég þráði að heyra frá Guði MEIRA EN ALLT ANNAÐ Í HEIMINUM, meira en mat, meira en að fullnægja holdinu, MYNDI GUÐ ALDREI GEFA MÉR SVARIÐ VIÐ SPURNINGUNNI SEM BRANN Á HJARTA MÍNU!

Ég stóð hratt upp frá borðinu og sagði við konuna mína: „Elskan mín, mér er full alvara gagnvart Guði í þetta sinn! Ég ætla aftur inn í kompuna og ég vil að þú læsir mig inni. Ég ætla að vera þar þangað til ég heyri frá Guði.“

„Æi,“ svaraði hún, „þú verður farinn að banka og biðja mig að opna dyrnar eftir svona klukkutíma.“ Hún vissi að ég hafði svo oft sagt að ÞETTA væri skiptið sem ég yrði inni þar til ég fengi svarið, að hún var farin að velta fyrir sér hvort ég gæti í raun og veru hamið holdið nógu lengi til að sigra djöfulinn. Engu að síður heyrði ég hana læsa dyrunum að utan. Áður en hún fór sagði hún: „Ég hleypi þér út hvenær sem þú bankar.“

Ég svaraði: „Ég banka ekki fyrr en ég hef fengið svarið sem ég hef þráð svo lengi.“ Loksins hafði ég tekið þá órjúfanlegu ákvörðun að vera þarna uns ég heyrði frá Guði, hvað sem það kostaði!

Klukkustund eftir klukkustund barðist ég við djöfulinn og holdið í þessari kompu! Oft var ég nærri því að gefast upp. Mér fannst dagar líða hjá og mér miðaði svo hægt áfram! Margsinnis freistaðist ég til að gefa þetta allt upp á bátinn og reyna að gera mér að góðu að vera án svarsins – að halda bara áfram eins og ég hafði gert. En djúpt í sálu minni vissi ég að ég gæti aldrei sætt mig við það. Ég hafði reynt það og komist að raun um að það var ekki nóg.

Nei! Ég skyldi vera kyrr hérna á hnjánum þar til Guð svaraði, eða deyja við tilraunina!

Þá tók dýrð Guðs að fylla kompuna. Augnablik hélt ég að konan mín hefði opnað dyrnar, þegar tók að birta við kompudyrnar. En konan mín hafði ekki opnað dyr kompunnar – JESÚS HAFÐI OPNAÐ DYR HIMINSINS, og kompan flóði í ljósi, ljósi dýrðar Guðs!

Ég veit ekki hve lengi ég hafði dvalið í kompunni áður en þetta gerðist, en það skiptir ekki máli. Mig varðar ekkert um að vita það. Ég veit það eitt að ég bað ÞAR TIL!

Nærvera Guðs var svo raunveruleg, svo dásamleg og svo máttug að mér fannst ég mundi deyja þarna á hnjánum. Mér virtist sem ég gæti ekki þolað það ef Guð kæmi eitthvað nær! Samt þráði ég hana og var staðráðinn í að hljóta hana.

Var þetta svarið? Ætlaði Guð að tala við mig? Myndi Guð loksins, eftir öll þessi ár, svala þrá hjarta míns? Hversu lengi hafði ég verið hérna? Ég vissi það ekki! Ég virtist missa vitund um allt annað en máttuga nærveru Guðs. Ég reyndi að sjá Hann en varð þá hræddur um að ég sæi Hann, því að skyndilega rann upp fyrir mér að ef ég sæi Hann myndi ég deyja. (Önnur Mósebók 33:20.) Dýrðleg nærvera Hans ein saman var nóg!Önnur Mósebók 33:20

Bara að Hann vildi tala við mig núna! Ef Hann vildi aðeins svara þessari einu spurningu minni: „Drottinn, hvers vegna get ég ekki læknað sjúka? Hvers vegna get ég ekki unnið kraftaverk í Þínu nafni? Hvers vegna fylgja tákn ekki þjónustu minni eins og þjónustu þeirra Péturs, Jóhannesar og Páls?“

Þá heyrði ég rödd Hans líkt og í hvirfilbyl! Þetta var Guð! Hann var að tala við mig! Þetta var hið dýrðlega svar sem ég hafði beðið svo lengi eftir!

Í nærveru Hans leið mér eins og einni af litlu steinvölunum við rætur hinna háreistu Klettafjalla. Mér fannst ég óverðugur þess að heyra svo mikið sem rödd Hans. En Hann var ekki að tala við mig vegna þess að ég væri verðugur. Hann var að tala við mig vegna þess að ég var í þörf. Öldum áður hafði Hann lofað að mæta þeirri þörf. Þetta var uppfylling þess fyrirheits.

Mér virtist sem Guð talaði við mig hraðar en nokkur maður gæti mögulega talað, hraðar en hugur minn gat fylgt eftir. Hjarta mitt hrópaði: „Talaðu aðeins hægar. Ég vil muna þetta allt!“

Mér fannst Guð tala svo hratt við mig og um svo marga hluti að ég gæti aldrei munað það allt. Samt vissi ég að ég gæti aldrei gleymt því! Guð var að gefa mér lista yfir það sem stóð á milli mín og krafts Guðs. Í hvert sinn sem nýrri kröfu var bætt á listann í huga mínum fylgdi stutt skýring, eða stutt prédikun, sem útskýrði þá kröfu og mikilvægi hennar.

Sumt af því sem Guð talaði til mín hljómaði eins og ritningarstaðir. Ég vissi að sumt af því var það, en þessi fyrstu þrjú atriði – gátu þau verið úr Biblíunni?

Hefði ég vitað að það væri svona margt sem þyrfti að muna hefði ég tekið með mér blýant og blað! Ég hafði ekki átt von á að Guð myndi tala á svo skýran og ákveðinn hátt og gefa mér svo langan lista. Mig hafði aldrei órað fyrir því hve mikið mig skorti á dýrð Guðs. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því að svo margt væri í lífi mínu sem vakti efasemdir og hindraði trú mína.

Á meðan Guð hélt áfram að tala við mig fór ég að þreifa í vösum mínum eftir blýanti. Loks fann ég stuttan blýantsstúf, en oddurinn var brotinn. Ég yddaði hann í flýti með tönnunum. Ég leitaði að pappírsblaði. Ég fann ekkert. Skyndilega mundi ég eftir pappakassanum fullum af vetrarfötum sem ég notaði fyrir altari. Ég skyldi skrifa á kassann.

Nú var ég tilbúinn!

Ég bað Drottin í auðmýkt að byrja aftur alveg frá byrjun og leyfa mér að skrifa atriðin niður eitt í einu – að tala nógu hægt til þess að ég næði að festa þetta allt á blað.

Enn á ný byrjaði Guð á fyrsta atriðinu og nefndi við mig hvert af öðru hin mörgu atriði sem Hann hafði þegar talið upp. Jafnóðum og Guð talaði við mig skrifaði ég þau niður.

Þegar síðasta skilyrðið hafði verið skrifað niður á listann talaði Guð enn á ný og sagði: „Þetta er svarið. Þegar þú hefur lagt síðasta atriðið á listanum þínum á altari helgunar og hlýðni, MUNT ÞÚ EKKI AÐEINS LÆKNA SJÚKA, HELDUR SKULU ILLIR ANDAR VERÐA REKNIR ÚT Í MÍNU NAFNI. ÞÚ MUNT SJÁ MÁTTUG KRAFTAVERK ÞEGAR ÞÚ PRÉDIKAR ORÐIÐ Í MÍNU NAFNI, ÞVÍ SJÁ, ÉG GEF ÞÉR VALD YFIR ÖLLU VELDI ÓVINARINS.“

Á sama tíma opinberaði Guð mér að það sem var hindrun í þjónustu minni, og hafði komið í veg fyrir að Guð verkaði með mér og staðfesti Orðið og léti táknin sem fylgja birtast, var nákvæmlega hið sama og hindraði svo mörg þúsund annarra.

Nú tók að dimma í kompunni. Ég fann máttugan kraft Hans fara að lyftast. Nærvera Hans dvaldi þar nokkur andartök í viðbót, og síðan var ég einn.

Einn, en þó ekki einn.

Ég skalf undir máttugri nærveru Guðs sem enn lá í loftinu. Ég þreifaði fyrir mér á botni pappakassans sem ég hafði skrifað á. Í myrkrinu reif ég hlutann sem ég hafði skrifað á af kassanum. Í hendi mér hélt ég á listanum. Loksins var hér komið gjaldið sem ég varð að greiða fyrir kraft Guðs í lífi mínu og þjónustu. VERÐMIÐINN FYRIR KRAFTAVERKAMÁTT GUÐS!

Í ofboði barði ég á læstar dyrnar. Aftur og aftur barði ég. Loks heyrði ég til konunnar minnar þar sem hún kom. Hún opnaði dyrnar. Um leið og hún sá mig vissi hún að ég hafði verið með Guði. Fyrstu orð hennar voru: „Þú ert kominn með svarið!“

„Já, elskan mín. Guð hefur heimsótt mig frá himnum, og hér er svarið.“

Í hendi mér var gamli brúni pappabúturinn með svarinu sem hafði kostað svo margar klukkustundir þar sem ástunduð var fasta, bæn og bið, og – já – trú!

Við konan mín settumst við borðið með listann fyrir framan okkur, og á meðan ég sagði henni söguna grétum við bæði þar sem við fórum saman yfir listann.

Þrettán atriði voru á listanum þegar ég kom út úr kompunni, en ég strokaði síðustu tvö út áður en ég sýndi konunni minni listann, því þau tvö voru svo persónuleg að jafnvel konan mín mun aldrei fá að vita hver þau voru. Hún hefur aldrei spurt, því hún gerir sér grein fyrir að þessir hlutir VERÐA að vera á milli mín og Guðs.

Atriðin ellefu sem eftir standa mynda efni þessarar bókar. Einn heill kafli er helgaður hverju og einu af þessum ellefu skilyrðum. Ef þú hefur líka þráð að máttugur kraftur Guðs birtist í þínu eigin lífi og þjónustu, treysti ég því að þessar hugleiðingar verði þér til innblásturs og að Guð muni tala til þín, líkt og Hann talaði til mín, og leiða þig til nýs sigurs og meira gagns vegna þessarar bókar.

Síðan Guð talaði til mín þennan dag í kompunni hafa mörg blöð verið rifin af dagatalinu. Raunar hafa mörg dagatöl vikið fyrir nýjum. Eftir því sem tíminn hefur liðið hef ég strikað skilyrðin út af listanum mínum, eitt af öðru. Listinn styttist æ meir um leið og ég hrópaði út sigurinn yfir Satan og strikaði út eitt atriðið á fætur öðru!

Að lokum voru aðeins síðustu tvö atriðin eftir. Satan sagði við mig: „Þú hefur strikað út ellefu atriði, en hér eru tvö sem þú munt aldrei strika út. Ég er búinn að leggja þig að velli.“

En af Guðs náð sagði ég djöflinum að hann væri lygari. Ef Guð sagði að ég gæti strikað þau öll út, myndi Hann hjálpa mér að gera það!

Samt virtist sem mér myndi aldrei takast að strika síðustu tvö atriðin út.

Aldrei mun ég gleyma deginum þegar ég leit yfir listann minn og sá, Guði sé lof, að aðeins eitt atriði var eftir! Ef ég gæti strikað það út, gæti ég gert tilkall til fyrirheitisins sem Guð hafði gefið mér.

Ég varð að gera tilkall til þessa fyrirheitis! Milljónir manna voru sjúkar og þjáðar, svo að læknavísindin fengu ekkert að gert. Einhver VERÐUR að færa þeim frelsun. Guð hafði kallað mig til að færa fólkinu frelsun. GUÐ HEFUR KALLAÐ HVERN EINASTA ÞJÓN FAGNAÐARERINDISINS TIL AÐ GERA HIÐ SAMA! (Esekíel 34:1-4.)Esekíelsbók 34:1–4

Oft hefur Guð úthellt Anda Sínum að nokkru marki á samkomum mínum þegar ég hef ferðast þvert yfir Bandaríkin. Ég vissi þó að þegar ég strikaði síðasta atriðið út af listanum mínum myndi ég sjá slík kraftaverk sem ég hafði aldrei áður séð. Þangað til ætlaði ég að keppa þolinmóður að sigri og treysta Guði til að hjálpa mér uns sigurinn væri unninn. Í trausti þess að þegar sá sigur væri minn myndi Guð verða vegsamaður, og aðrir myndu líka fá hvatningu til að leita Guðs til að öðlast kraft Hans.

Þegar þetta er ritað stýri ég vakningarherferðinni „AFTUR TIL GUÐS – VAKNING OG LÆKNING“ í Calvary Temple í Oakland í Kaliforníu. Margir segja að þetta sé mesta VAKNING í sögu Oakland. Hundruð manna segja að þau hafi aldrei orðið vitni að jafn kröftugri hreyfingu á krafti Guðs. Samkomurnar standa nú yfir í fimmtu viku sinni af miklum krafti. Miðað við vaxandi áhuga og sífellt fleiri gesti gætu samkomurnar án efa haldið áfram endalaust.

Kvöld eftir kvöld skola öldur guðlegrar dýrðar svo yfir söfnuðinn að margir vitna um að hafa hlotið lækningu þar sem þeir sitja í sætum sínum. Aftur og aftur, þegar við höfum fundið máttugan kraft Guðs leggjast yfir samkomuna, hefur fólk risið á fætur til að vitna um tafarlausar lækningar, og eru sumar þeirra sýnileg kraftaverk, svo sem þegar útvortis æxli hverfa og bæklaðir verða alheilir.

Ég hef fundið skjaldkirtilsauka hverfa við snertingu handar minnar í Jesú nafni!

Fagnaðarhróp sigursins eru mörg þegar blindir fá sýn. Ein kona vitnaði: „Þetta var eins og að ganga út úr myrkrinu og inn í sólskinið.“

Við báðum fyrir konu sem átti við hálsmein að stríða. Eftir nokkur andartök sást til hennar þar sem hún flýtti sér á kvennasalernið. Þegar hún sneri aftur inn í salinn vitnaði hún um að eftir bænina hefði eitthvað losnað úr hálsi hennar og komið upp í munninn. Hún hafði flýtt sér á salernið til að losa sig við það. Þetta var einhvers konar aðskotavöxtur (eflaust krabbamein) – hvítappelsínugulur á litinn.

Kviðslit á stærð við krepptan hnefa hafa horfið á einni nóttu. Krabbamein, heyrnarleysi, æxli, skjaldkirtilsauki, sykursýki, allir þekktir sjúkdómar og margir óþekktir hverfa þegar við leggjum hendur yfir sjúka í Jesú nafni. Raunverulegar lækningar eru í mörgum tilfellum staðfestar með læknisvottorðum og röntgenmyndum.

Við stöndum í heilagri lotningu og undrumst kraftaverkamátt Guðs, eins og hann hefur verið að verki kvöld eftir kvöld allt frá upphafi þessara samkomna. Hundruð manna hafa verið frelsuð undan valdi óvinarins – frelsast, læknast eða fyllst Andanum.

Á þessum samkomum hefur verið ómögulegt að hafa það sem almennt er kallað „fyrirbænaröð til lækningar“. Að minnsta kosti níutíu prósent þeirra sem við höfum lagt hendur yfir falla þegar í stað til jarðar undir máttugum krafti Guðs. Sumir dansa nokkur skref eða reika eins og drukknir væru undir krafti Andans áður en þeir falla. (Sjá Jeremía 23:9). Við þessar aðstæður er ómögulegt að láta fólk ganga áfram eftir fyrirbæn.Jeremíabók 23:9

Þetta er hinn máttugi kraftur Guðs sem kemur yfir fólkið. Þetta er sami krafturinn og fékk Jóhannes til að „falla fyrir fætur hans sem dauður væri“. (Opinberunarbókin 1:17.)Opinberunarbókin 1:17

Margir segja að það merkilegasta við þessar samkomur sé hve stórt hlutfall sjúkra hlýtur svo kraftaverkakennda frelsun. Það væri varlega áætlað að segja að hið minnsta níutíu prósent, eða jafnvel fleiri, af þeim sem beðið hefur verið fyrir hafi hlotið undraverða lækningu.

Samkoman í kvöld var kölluð „Kvöld heilags anda“. Calvary Temple var troðfullt út að dyrum og fólk sat á altarisbekkjunum. (Þetta er skrifað klukkan tvö að nóttu eftir stórkostlega samkomu heilags anda.) Eilífðin ein mun leiða í ljós hve margir fylltust eða fylltust á ný af Andanum. Við höfðum tilkynnt að á þessari samkomu yrðu hendur lagðar yfir þá sem leituðu fyllingar andans, samkvæmt Postulasögunni 8:17. Eftir prédikunina komu allir sem ekki höfðu þegar fyllst á meðan á samkomunni stóð í röð eftir ytri ganginum. Að örfáum undantekningum slepptum féllu allir sem við snertum í Jesú nafni til jarðar. Hvílík óvenjuleg sjón að standa á pallinum á eftir og horfa yfir alla þá mörgu sem lágu „felldir af krafti Drottins“ í hverju einasta rými við altarið og jafnvel eftir göngunum! Ennþá ljúfari var þó hljómurinn af hinni himnesku tónlist þegar raddir hófu sig í sameiginlegri lofgjörð til Guðs, er Andinn fyllti hlýðna trúaða og þeir tóku að tala nýjum tungum og mikla Guð. (Markúsarguðspjall 16:17; Postulasagan 10:46)Postulasagan 8:17 · Biblían 1981 · Postulasagan 10:46 · Biblían 1981 · Markús 16:17

Ég geri ekki tilkall til þess að búa yfir einni einustu náðargjöf andans, né heldur að hafa vald til að veita öðrum nokkra gjöf, en þó eru allar náðargjafir andans að verki, kvöld eftir kvöld.

Margir iðka náðargjafir andans ÁN HANDAYFIRLAGNINGAR EÐA SPÁDÓMSORÐA!

Guð staðfestir Orð Sitt OG LÆTUR TÁKNIN SEM FYLGJA BIRTAST!

Hvers vegna hef ég séð slíka breytingu á árangri þjónustu minnar? Þú spyrð HVERS VEGNA? Hefur þú ekki getið þér til um það?

SÍÐASTA ATRIÐIÐ Á LISTANUM SEM GUÐ GAF MÉR í kompu bænarinnar HEFUR LOKSINS VERIÐ STRIKAÐ ÚT AF LISTANUM! Hallelúja! Mörgum sinnum missti ég næstum vonina um að geta nokkurn tíma strikað þetta síðasta atriði út, en loksins er það farið! Af Guðs náð, FARIÐ AÐ EILÍFU!

Með því að síðasta skilyrðið á listanum mínum var strikað út hefur fyrirheit Guðs ræst. SJÚKIR LÆKNAST. ILLIR ANDAR ERU REKNIR ÚT. MÁTTUG KRAFTAVERK SJÁST Í NAFNI JESÚ ÞEGAR ORÐ HANS ER PRÉDIKAÐ!

Kaflarnir sem hér fara á eftir greina frá skilyrðunum sem Guð gaf mér og eru tileinkaðir öllum þeim sem hungrar í KRAFTAVERKAMÁTT GUÐS.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

1. kafli af 13 · 22 mín. eftirGjaldið fyrir kraftaverkamátt Guðs