Fara í efni
← BækurGjaldið fyrir kraftaverkamátt Guðs

Sjöundi kafli

Krossinn

um 7 mín. lestur

„Og hann sagði við alla: „Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér.“ Lúkasarguðspjall 9:23.

Lúkas 9:23 · Biblían 1981

Lítið vinnst með sjálfsafneitun nema þú takir einnig kross þinn og fylgir Jesú.

Með krossinum á ég við þann þunga eða þá byrði sársauka, hryggðar eða fórnar sem við gætum lagt frá okkur ef við kysum svo, en berum þó eða þolum af fúsum vilja annarra vegna. Þetta er það sem við MYNDUM leggja frá okkur frá náttúrunnar hendi, en sú vitund knýr okkur áfram að engin önnur leið er fær til að færa hinum glötuðu, sjúku og þjáðu hjálpræði, frelsun eða lækningu, og því þolum við fúslega OKKAR KROSS.

„Beinum sjónum vorum til Jesú – VEGNA ÞEIRRAR GLEÐI, SEM BEIÐ HANS, LEIÐ HANN ÞOLINMÓÐUR Á KROSSI, mat smán einskis.“ Hebreabréfið 12:2. Jesús þurfti ekki að þola krossinn. Jafnvel nóttina sem Hann var handtekinn lýsti Hann því yfir að Hann gæti enn á þeirri síðustu stundu beðið til föðurins, og Hann myndi senda Honum meira en tólf sveitir engla til að bjarga Jesú frá slíkum örlögum. (Sjá Matteusarguðspjall 26:53-54.) Hann gekk til krossins vegna þess að Hann hafði ásett sér í hjarta sínu að uppfylla ritningarnar og frelsa kynkvísl glataðra og syndugra manna undan hinni tvöföldu bölvun syndar og sjúkdóma, með því að bera svipuhöggin á baki sínu og láta fórna sér sem lýtalausu og óflekkuðu lambi á KROSSINUM.Hebreabréfið 12:2

Móse hlaut hlutdeild í þessum anda þegar hann sneri baki við hásæti Egyptalands til að taka sér stöðu með bræðrum sínum, þjóð í þrældómi, svo að hann gæti með þjáningu og fórn fært þeim öllum frelsun. (Sjá Hebreabréfið 11:24, 26.)Hebreabréfið 11:24, 26

Páll sýndi sömu festu þegar hann yfirgaf sæti sitt í æðstaráðinu til að ganga í hinn fyrirlitna og ofsótta flokk kristinna manna, svo að hann yrði ekki óhlýðinn hinni himnesku vitran og gæti fært heiðingjunum frelsun. Hann fylgdi Jesú OG BAR KROSS SINN þegar hann lýsti yfir: „Og nú er ég á leið til Jerúsalem, knúinn af andanum. Ekki veit ég, hvað þar mætir mér, nema að heilagur andi birtir mér í hverri borg, að fjötrar og þrengingar bíði mín. En mér er líf mitt einskis virði, fái ég aðeins að fullna skeið mitt og þá þjónustu, sem Drottinn Jesús fól mér: Að bera vitni fagnaðarerindinu um Guðs náð.“ Postulasagan 20:22-24.Postulasagan 20:22–24 · Biblían 1981

Þegar Charles G. Finney yfirgaf efnilegan lögmannsferil til að ganga inn í þjónustuna – á ókunnu sviði sem hann hafði enga sérstaka menntun til – tók hann upp kross sinn.

En það nægir ekki að taka upp krossinn. Hann verður að taka upp DAGLEGA! Hann verður að taka upp af fúsum vilja og bera í trúfesti, án þess að mögla. Það er auðvelt að stíga skrefið til helgunar – að taka upp krossinn – í hita andríks kalls til helgunar, en mörgum láist að taka hann upp aftur næsta morgun, eða morguninn þar á eftir.

Kristur tók sér aldrei frí frá krossi sínum. Krossinn fylgdi Honum meira að segja í fríið! Þótt Hann drægi sig oft í hlé til að hvílast, hvíldi byrðin jafnvel þá þungt á Honum. Þegar Hann settist niður við brunninn í Samaríu, þreyttur og svangur, til að hvíla sig á meðan lærisveinar Hans fóru inn í borgina að kaupa mat, hafði Hann bæði tíma og þrek til að leiða sál til hjálpræðis og hrinda af stað hreyfingu sem síðar leiddi til hinnar miklu vakningar er hreif megnið af Samaríu inn í Guðs ríki. (Postulasagan 8.)

Þegar Hann stóð frammi fyrir einni mestu sorg sem mætti Honum á ævigöngu Hans sem manns í holdinu, hinum skyndilega og voveiflega dauða frænda Hans og kæra vinar, Jóhannesar skírara, hugðist Hann draga sig í hlé í einrúm um stund. (Sjá Matteusarguðspjall 14:13, 14.) En fólkið varð vart við ferðir Hans og fylgdi Honum jafnvel þá. Þegar Hann leit á mannfjöldann varð Hann fylltur miskunnsemi, eigin sorg Hans gleymdist og Hann tók upp kross sinn og gekk fram til að lækna sjúka þeirra og þjóna þörfum þeirra.Matteus 14:13, 14

Krossinn var ekki slys sem henti Hann við ævilok. Hann fæddist, lifði og dó í skugga krossins. Hann vissi af honum allan tímann, en aldrei nokkurn tíma sniðgekk Hann krossinn. Aldrei nokkurn tíma brást Honum að taka upp kross sinn DAGLEGA. Enginn var sá dagur að Hann gæti sagt: „Þessi dagur er minn eigin. Ég mun sinna því sem föður míns er aftur á morgun.“ Aldrei varð sú reynsla á vegi Hans í lífinu að Hann gæti sagt: „Þetta er mitt til að njóta. Fólkið verður að bíða þar til þessu er lokið. Þá mun Ég hitta það og þjóna þörfum þess á ný.“ Jafnvel á sorgarstundum sínum gat Hann ekki sagt: „Mín eigin hryggð er svo mikil. Það er ekki nema sanngjarnt að NÚ fái Ég huggun. Látið þá þjóna Mér núna.“

Nóttina sem Hann var svikinn, þegar Hann vissi að stundin var komin og að hinn falski lærisveinn sem myndi svíkja Hann sat á meðal þeirra sem Hann þjónaði, reis Hann upp frá borðinu til að þvo fætur lærisveina sinna og sýndi þannig í verki það sem Hann hafði áður sagt: „Mannssonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga.“ Markúsarguðspjall 10:45.Markús 10:45 · Biblían 1981

Í augum heimsins kynni svo að virðast sem það hefði aðeins verið á hinum myrka degi á Golgata sem „hann bar kross sinn og fór út“. Jóhannesarguðspjall 19:16. En Hann hafði borið kross sinn er Hann gekk út á meðal fólksins, fátækur, fyrirlitinn, einmana, misskilinn – af fúsum vilja, til þess að Hann gæti leitt með sér marga syni til dýrðar – er Hann gekk um, gerði gott og færði lækningu öllum sem af djöflinum voru undirokaðir.Jóhannes 19:16

Heimurinn sér ef til vill hvorki né skilur þinn kross og minn. En sérhver okkar á sinn eigin kross, sem Guð hefur ætlað honum og hann getur borið eða látið liggja eftir því sem honum sýnist. Þetta eru ekki veikindi sem við höfum engan mátt til að leggja frá okkur. Þetta eru ekki þær óþægilegu kringumstæður lífsins sem yrðu hlutskipti okkar hvort sem við þjónuðum Guði eða ekki. Þetta er það sem við tökumst á hendur af fúsum vilja, með persónulegri fórn af okkar hálfu, til þess að við getum hlýtt Guði og verið öðrum til blessunar. Hefur þú verið að hrósa þér fyrir krossburð þinn, þegar um er að ræða eintóma sjálfsvorkunn vegna kringumstæðna þinna í lífinu? Hefur þú fúslega tekið á þig byrðar, harm og sorgir annarra til að létta þeim og vera til blessunar – til að þú getir fært þeim sem eru í neyð hjálpræði og frelsun?

Þú segist þrá kraftaverkamátt Guðs. Ert þú fús til að greiða gjaldið? Ert þú fús til að taka upp ÞINN kross, DAGLEGA, og fylgja Jesú alla leið?

Ef þú fylgir Kristi til fulls mun það þýða að fylgja Honum á þann stað þar sem Hann fylltist andanum, og þaðan út í eyðimörkina – til stundanna sem fara í að fasta og biðja, til stunda vanþakkaðrar þjónustu, í gegnum misskilning og ofsóknir, og næturnar í einrúmi við bæn og vöku. Það mun þýða að fylgja Honum inn í grasgarðinn – bera byrði glataðs heims – í þeirri trú að einhver nærri deili þunganum, aðeins til að komast að því að allir hinir eru sofnaðir. Þaðan af stað í dómsalinn – til falskra ásakana og ranglátra dóma. Nú af stað að hýðingarstaurnum og níuanga svipunni – til ediksins og gallsins. Þar er ekkert svigrúm til að hörfa undan, ekki heldur undan sársauka og þjáningu krossins.

Þú segir ef til vill: „Þetta hljómar eins og að týna lífi mínu algjörlega.“

Svo er það vissulega. En Jesús sagði: „Hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því, og hver sem týnir lífi sínu vegna mín og fagnaðarerindisins, mun bjarga því.“ Markúsarguðspjall 8:35.

Þetta er líf í gnægð – líf KRAFTSINS! Líf sannrar lífsfyllingar. Það líf að vita að ævi þín hefur ekki verið til einskis! Vissulega er það hverrar fórnar virði að vita að við höfum fetað í fótspor Guðs sonar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

7. kafli af 13 · 7 mín. eftirKrossinn