Áttundi kafli
„Ég á að minnka“
Undir þessari yfirskrift tók Guð að eiga við mig vegna hroka míns. Mér hafði aldrei fundist ég vera hrokafullur. Ef slík hugsun hvarflaði að mér, hvort sem það var við prédikun, vegna beinna ásakana eða jafnvel fyrir trúfasta áminningu andans, afsakaði ég sjálfan mig eins og svo margir aðrir og kallaði þetta „sjálfsvirðingu“, „yfirvegun“, „gott uppeldi“ eða „göfuglyndi“. En Guð kallaði þetta „SYND“. Orðskviðirnir 21:4Orðskviðirnir 21:4
„Drambsamt augnaráð og hrokafullt hjarta . . . er synd.“ Orðskviðirnir 21:4.
Orðskviðirnir 21:4
Í leitargeisla nærveru Hans þýddi ekkert að reyna að koma með neinar skýringar. Líkt og Jóhannes forðum var ég látinn gera mér grein fyrir því hve algjörlega háður Guði ég var og hve lítils virði mín eigin viðleitni var. Ég var látinn gera mér grein fyrir því, sem ég hafði aldrei skilið áður, hve gagnslaus jafnvel mín besta viðleitni var, að Guð yrði sannarlega að taka fulla stjórn á lífi mínu og að áður en það gæti orðið YRÐI ÉG (persónuleiki minn, hæfileikar, þekking eða náttúrleg geta) AÐ MINNKA að mikilvægi í mínum eigin augum. Síðan þá hef ég uppgötvað að kraftur og árangur í þjónustu hvers manns veltur á því hve mikið rými Guð hefur í lífi hans og hve mikill Hann er þar. Lærisveinar Nýja testamentisins treystu alfarið á það að „Drottinn var í verki með þeim og staðfesti boðun þeirra með táknum, sem henni fylgdu“. Markúsarguðspjall 16:20. Þeir eignuðu sjálfum sér hvorki kraft né heilagleika, þótt maður sem hafði verið lamaður í fjörutíu ár – og vinir hans urðu að bera á stað þar sem hann gat betlað sér til lífsviðurværis – hafi samstundis læknast við skipunarorð þeirra, svo að hann ekki aðeins gekk heldur stökk og hljóp. (Sjá Postulasagan 3:2-8 og 12-16.) Þetta voru sömu mennirnir og höfðu eitt sinn fagnað og sagt: „Herra, jafnvel illir andar eru OSS undirgefnir í þínu nafni.“ Lúkasarguðspjall 10:17. Nú hafa þeir minnkað í eigin augum og eru reiðubúnir fyrir aukna þjónustu. Heyrið hvað þeir segja: „Hví starið þér á oss, eins og vér hefðum af eigin krafti eða guðrækni gjört það, að hann gengur? . . . Vegna trúarinnar á nafn Jesú hefur nafn hans styrkt þennan mann.“ Postulasagan 3:12, 16.Markús 16:20 · Biblían 1981 · Lúkas 10:17 · Biblían 1981 · Postulasagan 3:2–8 · Postulasagan 3:12, 16
Það er aðeins eftir því sem Guð vex í lífi einhvers fylgjanda Hans að krafturinn getur vaxið, og það getur aldrei orðið fyrr en SJÁLFIÐ minnkar.
Ó, að þjónar Guðs – já, og leikmenn sömuleiðis – gætu gert sér grein fyrir því að það er „Ekki með VALDI né KRAFTI, heldur fyrir anda minn! – segir Drottinn allsherjar.“ Sakaría 4:6. Valdið og krafturinn sem hér er talað um vísar til valds og kraftar mannsins – ekki Guðs. Til hins náttúrlega en ekki hins yfirnáttúrlega. Krafturinn getur átt sér tvær uppsprettur. Mörg stór kirkjufélög í dag stæra sig af „krafti“ sínum, „áhrifum“ eða „vinsældum“ í samfélaginu. Kraftur þeirra og áhrif eru sprottin af íburði hinna miklu kirkjubygginga þeirra, gríðarlegum bankainnistæðum, skilvirku skipulagi, mannfjölda og tengslum við „rétta“ fólkið – þá sem búa yfir auði og áhrifum í þessum heimi (þótt margir þeirra látist ekki einu sinni hafa nokkru sinni endurfæðst af krafti Guðs, heldur hafi aðeins gengið í kirkjuna líkt og þeir myndu ganga í félagsklúbb). Ágætir hæfileikar þeirra, ljúfar guðsþjónustur (sem svæfa fólk andlega) og falleg ytri form hjálpa allt til við að gera þá vinsæla – að veita þeim vald í heimi „trúaðra“, „virðulegra“ syndara. Það er frá slíkum sem Páll hefur aðvarað okkur (þar sem hann talaði innblásinn af heilögum anda) að við verðum að skilja okkur. „Þeir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar, en afneita krafti hennar. Snú þér burt frá slíkum!“ Síðara Tímóteusarbréf 3:5. Þessu fólki myndi mislíka stórlega ef Guð skyldi rjúfa hina öguðu reglu á einni af samkomum þeirra með því að tala út, eins og Hann gerði svo oft á liðnum dögum fyrir munn einhvers spámanna Sinna, ávíta syndina og kalla það til lífs í heilagleika og krafti. Það gerir engar ráðstafanir og gefur ekkert rými á samkomum sínum fyrir hina yfirnáttúrlegu birtingu á krafti Guðs.Seinna Tímóteusarbréf 3:5 · Biblían 1981 · Sakaríabók 4:6
Vissulega fylgir því ákveðin öryggis- og valdatilfinning þegar okkur hefur tekist að reisa glæsilegt guðshús, koma góðu og skilvirku skipulagi á starfið, þegar við þurfum ekki lengur að lifa í stöðugum ótta við að geta ekki staðið við fjárhagslegar skuldbindingar okkar og náum til fjöldans með fagnaðarerindið. Ekkert af þessu er rangt. Við getum þakkað Guði af heilum hug fyrir þessa hluti þegar þeir falla okkur í skaut. En allt þetta er ekkert – það er aðeins lífvana skel – ef YFIRNÁTTÚRULEGUR KRAFTUR ANDA GUÐS er þar ekki til staðar. Allt er þetta ekki annað en Babelsturn sem teygir sig upp í himin sem er of langt í burtu, dæmdur til falls og glundroða, jafnvel þótt velgengnin virðist blasa við.
Hve blessað er að búa yfir hæfileikum sem eru helgaðir og notaðir Guði til dýrðar. Hve gott er að búa yfir þekkingu. Hvílíkt hagræði er að hafa góða aðstöðu. En hið eina sem er nauðsynlegt er KRAFTUR GUÐS.
Hve margar glæsilegar kirkjur í borgum okkar eiga í erfiðleikum með að fylla samkomusali sína á meðan karlar og konur standa úti í rigningunni fyrir utan stórt vakningatjald, sem reist hefur verið í útjaðri bæjarins, og reyna að finna smá rými til að komast inn svo að þau fái séð hvað Guð er að gera fyrir tilstilli þjóna Sinna sem hafa sett kraft Guðs í fyrsta sæti í lífi sínu – sem hafa verið fúsir til að minnka svo að Guð mætti vaxa.
„Vald“, eins og Sakaría talar um það, vísar til valds mannsins, svo sem líkamlegrar viðleitni, náttúrlegrar getu, hæfileika, ytri forma, athafna, helgisiða, fyrirmæla og dagskrárliða.
Þegar hið yfirnáttúrlega er horfið setur maðurinn hið náttúrlega í staðinn. Hann setur söngva um kraft Guðs í stað sjálfs veruleikans og leggur sífellt meiri áherslu á raddsetningu og tónlistarflúr eftir því sem hinn raunverulegi kraftur Guðs minnkar. Guði sé lof fyrir góða tónlist, en í sjálfri sér ER HÚN EKKI KRAFTUR GUÐS! Vald og kraftur hins náttúrlega manns munu aldrei uppfylla kristniboðsskipunina miklu og færa fjöldanum frelsun. Þó að Guð geti notað slíkt að vissu marki, þegar smurning andans hvílir yfir því, er ekki hægt að nota það sem STAÐGENGIL FYRIR ANDANN!
Jafnvel fagurlega uppbyggðar prédikanir, fluttar af mælskulist af mönnum með sterkan persónuleika og persónutöfra, munu aldrei einar og sér skila verkinu í höfn. Þegar öllu er á botninn hvolft er jafnvel prédikunin sjálf ekki markmið okkar. Hún er einungis leið að marki. Ef góð ræðugerð og fagur prédikunarflutningur gætu komið verkinu í verk hefði því verið lokið fyrir löngu.
Ó, að menn vildu minnka!
Ó, að þeir gerðu sér grein fyrir því að án Guðs eru þeir EKKERT!
Ef prédikarar gerðu sér bara grein fyrir því að það er alls ekki fegurðin og slagkrafturinn í prédikun þeirra sem skilar árangri, heldur SMURNING ANDANS yfir ræðunni, og Guð í KRAFTI í manninum sem prédikar. Fólk þarf meira en að heyra prédikun. Það þarf að FINNA EITTHVAÐ á meðan prédikunin er flutt. Það er ANDINN sem fær fólk til að FINNA prédikunina.
Páll var ekki fáfróður og ólærður maður líkt og sumir hinna lærisveinanna. Hann hafði hlotið bestu menntun sem völ var á á hans tíð. Ræða hans til Aþeninga á Areopagushæð er enn viðurkennd sem eitt besta sígilda dæmið um sannfærandi rökræðu og prédikunarfræðilega og bókmenntalega uppbyggingu. (Sjá Postulasagan 17:22-31.) Bakgrunnur hans, menntun og orðspor meðal félaga hans var slíkt að hann gat lýst yfir: „Jafnvel þótt ég hafi einnig þá ytri yfirburði, sem ég gæti treyst. Ef einhver annar þykist geta treyst ytri yfirburðum, þá get ég það fremur.“ Filippíbréfið 3:4. En Páll ýtti þessu öllu til hliðar. Hann var fús til að minnka. „En það, sem var mér ávinningur, met ég nú vera tjón sakir Krists.“ Filippíbréfið 3:7. Þó að Páll væri vel mælskur, eins og við höfum þegar séð, skrifaði hann Korintumönnum: „Orðræða mín og prédikun studdist ekki við sannfærandi vísdómsorð, heldur við sönnun anda og kraftar.“ Fyrra Korintubréf 2:4. Í næsta versi segir hann okkur hvers vegna hann hafði lagt náttúrlega hæfileika sína til hliðar til að treysta á kraft Guðs og hann einan: „Til þess að trú yðar væri eigi byggð á vísdómi manna, heldur á krafti Guðs.“Filippíbréfið 3:4 · Biblían 1981 · Filippíbréfið 3:7 · Biblían 1981 · Fyrra Korintubréf 2:4 · Biblían 1981 · Postulasagan 17:22–31
Ef kraftur Guðs fengi sinn réttmæta sess í dag væri trú fleira fólks byggð á krafti Guðs. Þá myndu ekki jafn margir treysta á KIRKJUNA sína (í stað Drottins) til hjálpræðis, og ekki myndu jafn margir hrífast svo af persónuleika einhvers prédikarans að þeir séu hvorki Guði né mönnum til nokkurs gagns nema þeir fái að starfa undir forystu hans.
Páll gerði sér grein fyrir mikilvægi andans yfir prédikun sinni. „Ekki svo, að vér séum sjálfir hæfir og eitthvað komi frá oss sjálfum, heldur er hæfileiki vor frá Guði, sem hefur gjört oss hæfa til að vera þjóna nýs sáttmála, ekki bókstafs, heldur anda. Því að bókstafurinn deyðir, en andinn lífgar.“ Síðara Korintubréf 3:5-6.Seinna Korintubréf 3:5–6 · Biblían 1981
Fólk í dag þarf LÍF (líf getur ekki komið án andans). Guð mun gera okkur að hæfum þjónum nýs sáttmála – hæfum til að færa líf og frelsun – þegar við minnkum svo mjög að við setjum manninn með allri hans náttúrlegu getu, og allt sem vekur athygli á manninum og vegsamar hann, í bakgrunninn.
Þó að Páll væri maður sem bjó yfir meiri þekkingu en gengur og gerist, vegna góðrar menntunar sinnar og fjölbreyttrar lífsreynslu, var hann fús til að varpa því öllu til hliðar og lýsa því yfir að hann hefði „ÁSETT SÉR að vita EKKERT á meðal yðar nema KRIST“. Fyrra Korintubréf 2:2.Fyrra Korintubréf 2:2
Þekkingin „blæs upp“. Fyrra Korintubréf 1:8. Sumt fólk er Guði til lítils gagns vegna þess að það „veit“ of mikið. Páll talar um nokkra sem höfðu blásið sig upp í söfnuðinum í Korintu. (Sjá Fyrra Korintubréf 4:18.) Með þessu átti hann við að þeir væru orðnir „of stórir“, eða þyrftu að minnka og láta hleypa loftinu úr sér. Þessir menn virtust vera ágætir ræðumenn, en Páll lýsti því yfir að prófsteinninn á það hvað í þeim bjó ætti ekki að vera orð þeirra, heldur KRAFTUR. „Því að Guðs ríki er ekki fólgið í orðum, HELDUR Í KRAFTI.“ Vers 20.Fyrra Korintubréf 1:8 · Fyrra Korintubréf 4:18
Hve auðvelt er ekki að sjá að þetta er satt! Og hve heimskulega við látum okkur oft líta út með því að reyna að sýnast vera það sem við erum ekki, vegna hroka!
Hrokinn birtist í fimm myndum. Hroki yfir ÚTLITI. (Hvað við lítum nú MIKLU betur út en fólkið í kringum okkur!) Hroki yfir STÖÐU. (Ekki biðja mann í minni STÖÐU um SLÍKT!) Hroki yfir ÆTTERNI. (Við erum af úrvalsættum, veistu, og verðum að halda heiðri fjölskyldunnar á lofti hvað sem það kostar.) Hroki yfir HÆFNI. (Allir ættu að geta séð að við erum hæfasta og duglegasta manneskjan sem völ er á. Enginn annar gæti haldið í við okkur!) Og svo hin síðasta og VERSTA allra mynda hrokans – hroki yfir NÁÐ! Hrokafull yfir andlegum afrekum okkar; hrokafull yfir því hve lengi við föstum; hrokafull yfir sýnum, draumum og opinberunum; hrokafull yfir þeim náðargjöfum sem við teljum okkur búa yfir; sannfærð um að við hljótum að vera í sérstöku uppáhaldi hjá Guði; já, jafnvel hrokafull yfir auðmýkt okkar! Hvaða mynd sem hroki okkar kann að hafa tekið á sig og blásið okkur upp eins og leikfangablöðru, þá er það fyrsta sem verður að gerast áður en við getum öðlast raunverulegan kraft hjá Guði þetta: „ÉG VERÐ AÐ MINNKA.“
„Hver sem upp hefur sjálfan sig, mun auðmýktur verða, en sá sem auðmýkir sjálfan sig, mun upp hafinn verða.“ Lúkasarguðspjall 14:11.
Lúkas 14:11 · Biblían 1981
„Guð stendur í gegn dramblátum, en auðmjúkum veitir hann náð.“ Jakobsbréfið 4:6.
Jakobsbréfið 4:6 · Biblían 1981
Hvernig getur þú þá vonast til þess að Guð sé í verki með þér og staðfesti orðið þannig að táknin sem fylgja birtist, þegar Guð hefur sagt að Hann STANDI Í GEGN ÞÉR!
Já, ég verð að minnka. Aðeins gullið má verða eftir. Allur sorinn verður að hverfa, og allt tinið, áður en Guð getur unnið með það eins og Hann vill vinna. Og hve lítið er eftir þegar sorinn er farinn!