Fjórði kafli
„Verið þér því fullkomnir, eins og faðir yðar himneskur er fullkominn“
Þessi orð virtust enn meira sláandi en þau sem Guð hafði þegar talað. Þetta var örugglega of mikið! Gat nokkur dauðlegur maður nokkru sinni vonast til að verða fullkominn? Og þó myndi Guð vísast ekki biðja mig að gera eitthvað sem Hann vissi að ég gæti ekki gert! Og án nokkurs vafa var þetta rödd Guðs. Ég hafði beðið himneskan föður minn um brauð og ég vissi að Hann myndi ekki rétta mér stein. Hvílíkur fögnuður fór um sál mína þegar ég komst að því að þetta var líka tilvitnun í Ritninguna! Ég fann hana í Matteusarguðspjalli 5:48. Þetta var boðorð Krists sjálfs, ekki aðeins til mín heldur til allra sem vildu reynast „börn föður yðar á himnum“ (45. vers). Fullkomnun er MARKMIÐIÐ sem Kristur setur sérhverjum kristnum manni. Ekki hafa allir kristnir menn náð því markmiði. Enginn kristinn maður hefur rétt til að hreykja sér af því að hafa höndlað það. Jafnvel hinn mikli postuli Páll lýsti yfir: „Ekki er svo, að ég hafi þegar náð því eða sé þegar fullkominn. En ég keppi eftir því“ (Filippíbréfið 3:12). Enginn kristinn maður sem stendur undir nafni mun láta sér nægja að vera minna en fullkominn. Enginn kristinn maður ætti að afsaka eigin ófullkomleika, heldur viðurkenna hann sem misbrest á því að halda boðorð Krists og keppa í einlægni að því að sigrast á honum. FULLKOMNUN ER MARKMIÐIÐ!Matteus 5:48 · Biblían 1981 · Filippíbréfið 3:12
Til glöggvunar fyrir þá sem kunna að hafa lært að enginn maður nema Kristur hafi nokkru sinni verið fullkominn skulum við taka eftir því að GUÐ SJÁLFUR eignar allmörgum mönnum fullkomnun. Þeir gerðu ekki kröfu til fullkomnunar sér til handa, heldur lýsti Guð því yfir að þeir væru fullkomnir.
Fyrst af öllu var Job, hetjan í elstu rituðu bók Biblíunnar, fullkominn maður. Vinir hans töldu hann ekki vera fullkominn; þeir sökuðu hann um hræsni (sjá Jobsbók 8:6, 13). Satan taldi hann ekki vera fullkominn; hann sakaði hann um að þjóna Guði aðeins vegna hinna efnislegu blessana sem Guð hafði gefið honum. Job sjálfur var fús til að viðurkenna að hann væri ófullkominn, því að hann lýsti yfir: „Fyrir því tek ég orð mín aftur og iðrast í dufti og ösku,“ Jobsbók 42:6. En þegar Satan ákærði hann frammi fyrir Drottni lýsti Guð sjálfur yfir: „Hefur þú veitt athygli þjóni mínum Job, að enginn er hans líki á jörðu, FULLKOMINN OG RÉTTVÍS MAÐUR?“ Jobsbók 1:8, KJV. Og öllum þeim til góðs sem kynnu að lesa þennan ritningarstað bætti Guð síðan við skilgreiningu á mannlegri fullkomnun – „sem óttast Guð og forðast (sniðgengur, varast) hið illa.“Jobsbók 42:6 · Biblían 1981 · Jobsbók 1:8 · Biblían 1981 · Jobsbók 8:6, 13
Margir leggjast gegn kenningunni um mögulega fullkomnun á þeim forsendum að þeir hafi aldrei séð fullkominn mann. Á dögum Jobs lýsti Guð því yfir að aðeins einn væri til. Eins var aðeins einn slíkur uppi á dögum Nóa. Samt lýsir Guð því yfir að Nói hafi verið FULLKOMINN! „Nói var réttlátur maður og FULLKOMINN á sinni öld, og Nói gekk með Guði.“ Fyrsta Mósebók 6:9, KJV.Fyrsta Mósebók 6:9 · Biblían 1981
Sumir halda því fram að ef einhver yrði fullkominn yrði hann samstundis hrifinn burt, líkt og Enok, og líta þá í kæruleysi fram hjá þeirri staðreynd að Ritningin lýsir því yfir að Enok „gekk með Guði“ í að minnsta kosti þrjú hundruð ár áður en hann „var ekki framar til“, Fyrsta Mósebók 5:22, og að „ÁÐUR en hann var burt numinn, hafði hann fengið þann vitnisburð, að hann hefði þóknast Guði.“ Hebreabréfið 11:5.Fyrsta Mósebók 5:22 · Hebreabréfið 11:5
Allir þessir heilögu menn Gamla testamentisins voru fullkomnir, meira að segja áður en lögmálið var gefið. Engum þeirra er eignað guðlegt eðli eða ofurmannleg fullkomnun. Þeir voru MENN, sama eðlis og við, en þeir þekktu og óttuðust Guð, héldu boðorð Hans og forðuðust vandlega taumlausa illsku skurðgoðadýrkendanna sem þeir bjuggu á meðal, á sumum af alverstu illskutímum mannkynssögunnar.
Var fullkomnun möguleg undir lögmálinu?
Þegar Móse flutti öllum söfnuði Ísraels boðskap Guðs lýsti hann yfir: „Þú skalt vera FULLKOMINN gagnvart Drottni Guði þínum.“ Fimmta Mósebók 18:13, KJV.Fimmta Mósebók 18:13 · Biblían 1981
Maðurinn er stundum gagnrýnni en Guð. Þegar Mirjam og Aron mögldu gegn Móse tók Guð málstað hans, talaði til þeirra út úr skýstólpanum og sagði: „Ekki er því þannig farið um þjón minn Móse. Honum er trúað fyrir öllu húsi mínu!“ Fjórða Mósebók 12:7. Þótt hér sé ekki notað orðið „fullkominn“ stenst þetta svo sannarlega þá skilgreiningu sem gefin er í Jobsbók 1:8.Fjórða Mósebók 12:7 · Biblían 1981 · Jobsbók 1:8
Davíð var ekki sannfærður um að fullkomnun væri ómöguleg, því að hann lýsti yfir í einum af sínum innblásnu sálmum: „Ég vil breyta viturlega Á FULLKOMNUM VEGI. Ég vil ganga um í húsi mínu með FULLKOMNU HJARTA.“ Sálmarnir 101:2, KJV.Sálmarnir 101:2 · Biblían 1981
Allir þessir menn, og eflaust margir fleiri (svo sem Daníel, Jósef, Abraham, Elía og Elísa o.s.frv.), lifðu lífi í heilagleika (fullkomnun) á þeim dögum áður en mörg af okkar forréttindum voru gefin. Kirkju Sinni í Nýja testamentinu gaf Guð ritningarnar í heild sinni. „Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, til umvöndunar, til leiðréttingar, til menntunar í réttlæti, til þess að sá, sem tilheyrir Guði, sé albúinn og hæfur gjör til sérhvers góðs verks.“ Síðara Tímóteusarbréf 3:16, 17.Seinna Tímóteusarbréf 3:16, 17 · Biblían 1981
Kristur var ekki prédikaður fyrr en á okkar eigin ráðstöfunartíma: „Hann boðum vér, er vér áminnum sérhvern mann og fræðum með allri speki, til þess að vér getum leitt hvern mann fram fullkominn í Kristi.“ Kólossubréfið 1:28.Kólossubréfið 1:28 · Biblían 1981
Kirkju Sinni í Nýja testamentinu gaf Kristur postula, spámenn, vakningaprédikara, hirða og kennara „TIL ÞESS AÐ HINIR HEILÖGU YRÐU FULLKOMNAÐIR og gætu gegnt þjónustu sinni og BYGGT UPP LÍKAMA KRISTS.“ Efesusbréfið 4:11, 12.Efesusbréfið 4:11, 12
Þeim hafði ekki hlotnast hin dýrðlega úthelling heilags anda, sem er okkar stöðugi huggari, kennari og leiðtogi (Jóhannesarguðspjall 14:26). En okkur er hann gefinn – hverjum þeim sem hlýðir Guði (Postulasagan 5:32).Jóhannes 14:26 · Postulasagan 5:32
Hversu miklu auðveldara ætti það ekki að vera fyrir okkur, með öllum þessum forréttindum, að vera fullkomin heldur en fyrir þá sem voru uppi áður en þessir hlutir voru gefnir!
Guð segir við okkur: „Hvernig má sætta musteri Guðs við skurðgoð? Vér erum musteri lifanda Guðs, eins og Guð hefur sagt: Ég mun búa hjá þeim og ganga um meðal þeirra, og ég mun vera Guð þeirra, og þeir munu vera lýður minn. Þess vegna segir Drottinn: Farið burt frá þeim, og skiljið yður frá þeim. Snertið ekki neitt óhreint, og ég mun taka yður að mér og ég mun vera yður faðir, og þér munuð vera mér synir og dætur, segir Drottinn alvaldur.“ Síðara Korintubréf 6:16-18; 7:1.Seinna Korintubréf 6:16–18 · Biblían 1981
Þessi fyrirheit eru okkar! Við GETUM hreinsað okkur af ALLRI SAURGUN! Við getum FULLKOMNAÐ HEILAGLEIKA í guðsótta! Líkt og Job getum við óttast Guð og forðast hið illa, og verið fullkomin í augum Guðs.
Þetta er engin „nýjung“. Kenninguna um algjöra helgun hafa margir merkir þjónar Krists kennt allt kirkjutímabilið og hún er viðurkennd sem heilbrigð kenning hjá allmörgum stórum kirkjudeildum. Þar sem þetta er aðeins lítil bók leyfir rúmið ekki að vitnað sé í yfirlýsingar margra trúarhópa um grundvallarsannindi sín. Ég mun aðeins vitna hér í eina, sem er að finna í Constitution of the General Council of the Assemblies of God. (Minutes and Constitution, with Bylaws, Revised (1949 edition), bls. 38, 9. grein.)
Algjör helgun
Ritningin kennir líf í helgun, því að án hennar fær enginn Drottin litið. Með krafti heilags anda getum við hlýtt boðorðinu: „Verið heilagir, því ég er heilagur.“ Algjör helgun er vilji Guðs fyrir alla trúaða og ber að keppa eftir henni í einlægni með því að ganga í hlýðni við orð Guðs. Hebreabréfið 12:14; Fyrra Pétursbréf 1:15, 16; Fyrra Þessaloníkubréf 5:23, 24; Fyrsta Jóhannesarbréf 2:6.“Hebreabréfið 12:14 · Biblían 1981 · Fyrra Pétursbréf 1:15, 16 · Fyrra Þessaloníkubréf 5:23, 24 · Fyrra Jóhannesarbréf 2:6
Kallaðu það hvað sem þú vilt – fullkomnun, heilagleika, algjöra helgun – það er ekki aðeins mögulegt, það er ekki aðeins forréttindi okkar, heldur er það BOÐORÐ Guðs.
„Verið heilagir í ALLRI HEGÐUN.“ Fyrra Pétursbréf 1:15.
Fyrra Pétursbréf 1:15
„Verið þér því fullkomnir.“ Matteusarguðspjall 5:48.
Matteus 5:48
Þú segir: „Ég þekki marga kristna menn, jafnvel prédikara, sem segja að ekki sé hægt að verða fullkominn og að það þýði ekkert að reyna.“
Við þekkjum þá líka. Þeir færa sjúkum hvorki lækningu né reka út illa anda! Syndin er brúarsporður djöfulsins í lífi þínu. Leyfðu honum að halda brúarsporðinum ef þú vilt. En það mun ræna þig krafti!
Jesús leyfði ekki djöflinum að halda brúarsporði í lífi Sínu, því að Hann lýsti yfir rétt áður en Hann var krossfestur: „Höfðingi heimsins (Satan) kemur. Í mér á hann EKKI NEITT.“ Jóhannesarguðspjall 14:30. Hann hafði kraft til að fullna það verk sem Hann kom í heiminn til að vinna vegna þess að Satan átti EKKI NEITT – ekki einu sinni einn lítinn brúarsporð eftirlætissyndar eða sjálfsdekurs – í Honum.Jóhannes 14:30 · Biblían 1981
Við, fylgjendur Hans, erum líka áminntir um að halda ströndum lífs okkar hreinum af „brúarsporðum“. „Gefið djöflinum ekkert færi.“ Efesusbréfið 4:27. Það er hlutverk hans að telja þér trú um að þú getir ekki vænst þess að halda lífi þínu algjörlega lausu við felustaði hans og lendingarbrautir. Ef honum tekst að fá þig til að skilja eftir handa sér athafnasvæði getur hann unnið skemmdarverk á öllu sem þú reynir að gera fyrir Guð og rænt þig þeim krafti sem þú hefur þráð. Verkið sem Guð hefur falið þér að vinna verður óunnið. Sjúkir munu ekki læknast og bandingjar ekki verða leystir. Ef þú skyldir reyna að reka út illa anda munu þeir hlæja upp í opið geðið á þér og segja: „Þú leyfir okkur að dvelja í þínu eigin lífi og ætlar svo að reka okkur út úr öðrum!“ Illir andar þekkja kraft Krists og þeir þekkja og óttast kraft hins kristna manns sem er fylltur Kristi. En þeir bera engan ótta fyrir þeim sem ekki er heilagur.Efesusbréfið 4:27 · Biblían 1981
Sjö synir Skeva nokkurs, Gyðings og æðsta prests, ákváðu að þeir gætu farið með sömu orð og Páll notaði og sært illu andana í Jesú nafni að fara út af þeim sem voru haldnir, án þess að gæta þess að búa yfir þeim grunni heilagleika og helgunar sem Páll hafði. (Sjá Postulasagan 19:13-15). Illi andinn svaraði og sagði: „Jesú þekki ég, og Pál kannast ég við, en HVERJIR ERUÐ ÞÉR?!“ Síðan réðst maðurinn, sem illi andinn var í, á þá og varð þeim yfirsterkari, svo að þeir flúðu naktir og sárir. Þeir héldu ekki að heilagleiki væri nauðsynlegur, en komust að raun um það sér til sorgar að EKKI ER HÆGT AÐ LÍTA FRAM HJÁ HONUM ef maður á að nýta kraftaverkamátt Guðs! Viðbrögðin eru ekki jafn tafarlaus og ofsafengin í öllum tilvikum, því að þessir „farandgyðingar“ höfðu reynt þetta áður og aðeins í þetta eina sinn fór svona. En aldrei nokkru sinni tókst þeim að reka út illan anda. Illir andar flýja aðeins undan krafti Krists, eða lífi sem er fyllt Kristi. Það er engin leið að eiga kraft hjá Guði án heilagleika – því að Jesús sjálfur sagði: „Hver sem er FULLKOMINN verður EINS OG MEISTARI HANS.“ Lúkasarguðspjall 6:40, KJV.
Margt mætti segja um fullkomnun. Auðveldlega væri hægt að skrifa heila bók til varnar þeim möguleika að hlýða boðorði Guðs: „Verið heilagir, því ég er heilagur.“ Fyrra Pétursbréf 1:16. Hins vegar hefur nóg verið sagt til að opna augu þeirrar manneskju sem hungrar eftir sannleikanum og þráir í einlægni að öðlast þann kraft sem Jesús lofaði fylgjendum Sínum, KRAFTAVERKAMÁTT GUÐS.Fyrra Pétursbréf 1:16 · Biblían 1981
En það þarf meira til en aðeins að vita að heilagleiki sé mögulegur. Þú vilt fá að vita hvernig þú getur öðlast hann.
Ekki hafa allir kristnir menn náð markmiðinu. Ekki hafa allir fylgjendur Krists þann kraft sem Hann lofaði. Hinir tólf útvöldu lærisveinar hittu einn daginn fyrir illan anda sem neitaði að fara burt við skipun þeirra, jafnvel eftir að þeir höfðu læknað marga sjúka og rekið út marga illa anda í Jesú nafni. Matteusarguðspjall 17:15. Þegar Jesús hafði rekið illa andann út spurðu lærisveinarnir Hann hvers vegna þeir hefðu ekki getað gert það. Hann nefndi sem ástæðu VANTRÚ þeirra og skort á föstu og bæn. Þessum tólf útvöldu mönnum reyndist stundum áfátt í því að sýna ávexti andans og hjá þeim sáust merki um verk holdsins á borð við hroka (Markúsarguðspjall 10:37), öfund (Markúsarguðspjall 10:41) og reiði (Matteusarguðspjall 26:51). Þeir sváfu þegar þeir hefðu átt að vaka og biðja (Matteusarguðspjall 26:40) og yfirgáfu Hann á reynslustundinni (56. vers). Þeir skynjuðu ekki áætlun Guðs og átöldu Jesú fyrir að Hann skyldi segja þeim að Hann yrði líflátinn, svo að Jesús sagði við einn þeirra: „Vík frá mér, Satan – þú hugsar ekki um það, sem Guðs er, heldur það, sem manna er.“ Matteusarguðspjall 16:23. Þessir menn höfðu ekki náð fullkomnun, en þeir þráðu í einlægni að verða fullkomnir og lögðu sig kappsamlega fram um að öðlast fyrirheit Guðs, og Guð heiðraði þá og blygðaðist sín ekki fyrir að láta kallast Guð þeirra.Matteus 16:23 · Biblían 1981 · Matteus 17:15 · Markús 10:37 · Markús 10:41
Láttu ekki hugfallast þótt þú hafir ekki náð fullkomnun. Til er endanleg fullkomnun sem næst ekki fyrr en við sjáum Jesú augliti til auglitis við komu Hans. Til er vöxtur í náðinni, vöxtur í átt til fullkomnunar, sem verður að halda áfram svo lengi sem við dveljum í holdinu. Fullkomnun okkar má líkja við ávöxt á tré. Allt frá því að blómknappurinn birtist getur eplið inni í honum verið fullkomið, þótt agnarsmátt sé. Það hefur hvorki öðlast þá stærð, þann lit né það bragð sem það mun að lokum fá, en engu að síður er það fullkomið á sínu núverandi stigi. Þegar það fær næringu og vökva og nýtur verndar gegn næturfrosti og sjúkdómum – þegar sólin og regnið leika um það, í hita jafnt sem kulda, vex það og verður að fullkomnu litlu grænu epli, og að lokum að stórum, fögrum, safaríkum og fullþroska ávexti.
Til þessarar fullkomnunar hins „óþroskaða ávaxtar“ vísaði Páll í Filippíbréfinu 3:15 – „VÉR (þar á meðal hann sjálfur) skulum því hafa þetta hugarfar, svo margir sem FULLKOMNIR erum.“ Þremur versum áður hafði hann sagt: „Ekki er svo, að ég hafi þegar náð því eða sé ÞEGAR FULLKOMINN.“ (12. vers.) Hér var hann að tala um hina endanlegu fullkomnun hins fullþroska ávaxtar, þá fullkomnun sem verður ekki fullnuð fyrr en við upprisu dauðra. Páli duldist ekki sú fullkomnun sem þegar hafði náðst, en í sönnum kristnum anda lét hann sér ekki nægja að staðnæmast á því stigi, heldur lýsti hann yfir, þótt hann segðist ekki vera fullkominn: „Ég keppi eftir því.“ „En eitt gjöri ég: Ég gleymi því, sem að baki er, en seilist eftir því, sem framundan er, og KEPPI ÞANNIG AÐ MARKINU.“ (12., 13. og 14. vers.)Filippíbréfið 3:15
Enginn áningarstaður er til áður en hinni endanlegu fullkomnun er náð. Þótt hinn óþroskaði kristni maður geti verið fullkominn í augum Guðs, MUN HANN HÆTTA AÐ VERA FULLKOMINN ÞEGAR HANN ER FÚS TIL AÐ HÆTTA AÐ VAXA! Þegar litla græna eplið hættir að vaxa visnar það brátt og fellur af trénu. Fullkomnun verður að öðlast og keppa stöðugt eftir henni.
Viðhalda verður vextinum með FÆÐU. „Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ósviknu mjólk (Biblíunni), til þess að þér af henni getið dafnað til hjálpræðis.“ Fyrra Pétursbréf 2:2. Góð matarlyst á orði Guðs er afar nauðsynleg ef við eigum að „vaxa í náð og þekkingu Drottins vors og frelsara.“ Síðara Pétursbréf 2:2. Sannur kærleikur til orðs Guðs er hluti af fullkomnun okkar NÚNA og vegur þungt í átt að endanlegri fullkomnun okkar þegar Jesús kemur. „Sérhver ritning er innblásin af Guði og nytsöm til fræðslu, til umvöndunar, til leiðréttingar, til menntunar í réttlæti, til þess að sá, sem tilheyrir Guði, sé albúinn og hæfur gjör til sérhvers góðs verks.“ Síðara Tímóteusarbréf 3:16, 17.Fyrra Pétursbréf 2:2 · Biblían 1981 · Seinna Tímóteusarbréf 3:16, 17 · Biblían 1981 · Seinna Pétursbréf 2:2
Margir hafa nægan tíma til að lesa myndasögur, tímarit, skáldsögur – allt annað en orð Guðs. En þeir eru bara of uppteknir til að rannsaka Biblíuna sína! Engin furða að þeir vaxi ekki! Engin furða að þeir hafi engan kraft til að lækna sjúka og reka út illa anda. Engin furða að þeir séu ekki fullkomnir og búist ekki við að verða það. Þeir næra ekki sálir sínar á réttri fæðu. „Vaxið í náð og ÞEKKINGU Drottins vors og frelsara.“ Síðara Pétursbréf 2:3. Þessi þekking fæst með því að rannsaka orð Guðs. Lestu það mikið. Og lestu það sem opinberun Guðs til þín. Trúðu því þegar þú lest það. Það er orð Hans sem getur ekki logið. Hann meinar NÁKVÆMLEGA ÞAÐ SEM HANN SEGIR!Seinna Pétursbréf 2:3
Ríkuleg vernd stendur þeim til boða sem eru stöðugir í Kristi. Hverjar sem freistingar okkar kunna að vera þurfum við ekki að syndga, því að „Guð er trúr og lætur ekki freista yðar um megn fram, heldur mun hann, þegar hann reynir yður, einnig sjá um, að þér fáið staðist.“ Fyrra Korintubréf 10:13.Fyrra Korintubréf 10:13 · Biblían 1981
„Og ég fulltreysti einmitt því, að hann, sem byrjaði í yður góða verkið, muni fullkomna það allt til dags Jesú Krists.“ Filippíbréfið 1:6.
Filippíbréfið 1:6 · Biblían 1981
„En trúr er Drottinn, sem mun styrkja yður og VERNDA FYRIR HINUM VONDA.“ Síðara Þessaloníkubréf 3:3.
Seinna Þessaloníkubréf 3:3
„En honum, sem megnar að varðveita yður frá hrösun og láta yður koma fram fyrir dýrð sína, lýtalausa í fögnuði.“ Júdasarbréf 24.Júdasarbréfið 24 · Biblían 1981
Hallelúja! Það er mögulegt að vera varðveittur af Guði og lifa á æðra sviði en syndin.
Okkur er ekki ókunnugt um vélráð Satans. Hann getur líka vitnað í Ritninguna. Hversu fljótur er hann ekki að koma til að hugga hinn ófullkomna kristna mann með því að vitna í síðari hlutann í Matteusarguðspjalli 26:41 – „Andinn er reiðubúinn, en holdið veikt.“ Aldrei ætti að vitna í þennan hluta án fyrri hluta versins – „Vakið og biðjið, að þér FALLIÐ EKKI Í FREISTNI!“ Þannig getum við sigrast á veikleika holdsins.
„Lifið í andanum, og þá fullnægið þér alls ekki girnd holdsins.“ Galatabréfið 5:16. (Þú getur verið viss um að Satan mun ekki bæta þessum ritningarstað við tilvitnun sína.) „En verk holdsins eru augljós – um þetta segi ég yður – að þeir, sem slíkt gjöra, MUNU EKKI ERFA GUÐS RÍKI.“ Galatabréfið 5:19-21.
Galatabréfið 5:16 · Galatabréfið 5:19–21
„HYGGJA HOLDSINS (það að vera holdlega sinnaður) er dauði.“ Rómverjabréfið 8:6.
Rómverjabréfið 8:6
Feldu þig á bak við veikleika sem tilheyrir holdinu ef þú vilt, en líttu ekki fram hjá því sem Guð segir að verði afleiðingin! Taktu ekki við tillögu Satans, jafnvel þótt hann vitni í Ritninguna. „Gefið yður því Guði á vald, standið gegn djöflinum, og þá mun hann flýja yður!“ Jakobsbréfið 4:7.Jakobsbréfið 4:7 · Biblían 1981
Þú getur verið fullkominn! Guð segir að þú getir það. Aðeins Satan segir að þú getir það ekki.
Guð hefur séð þér fyrir fæðu í orði sínu, vernd fyrir anda sinn og máttugu tæki til fullkomnunar þinnar í kirkju sinni. Til þess að kirkjan mætti þjóna þessu markmiði segir ritningin: „Og frá honum er sú gjöf komin, að sumir eru postular, sumir spámenn, sumir trúboðar, sumir hirðar og kennarar. Þeir eiga að fullkomna hina heilögu og láta þeim þjónustu í té, líkama Krists til uppbyggingar –.“ Efesusbréfið 4:11, 12.Efesusbréfið 4:11, 12 · Biblían 1981
Haltu ekki að þú náir þeirri fullkomnun sem Guð þráir handa þér ef þú sinnir ekki viðvörun Hans: „Ekki skulum vér vanrækja safnaðarsamkomur vorar, eins og sumra er siður.“ Hebreabréfið 10:25. Finndu þér gott andlegt heimili í söfnuði þar sem orð Guðs er kennt og ÞVÍ TRÚAÐ, þar sem kraftur Guðs er til staðar og velkominn, þar sem Guð staðfestir orð sitt og táknin sem fylgja eru sjáanleg og þar sem fólk Guðs fylgir orðunum: „En tala þú það, sem sæmir hinni heilnæmu kenningu.“ Títusarbréfið 2:1. Hafðu það síðan fyrir reglu að vera viðstaddur hvenær sem Guð og fólk Hans koma saman. Aðeins þannig getur þú orðið fullkomnaður fyrir þær þjónustugjafir sem Guð hefur sett í kirkjunni. Hver einasta samkoma í hinni andafylltu kirkju þinni er skipulögð af Guði til að leggja eitthvað af mörkum til fullkomnunar þinnar.Títusarbréfið 2:1 · Biblían 1981 · Hebreabréfið 10:25
Þolgæðið á líka sinn þátt. „En þolgæðið á að birtast í fullkomnu verki, til þess að þér séuð fullkomnir og algjörir og yður sé í engu ábótavant.“ Jakobsbréfið 1:4.Jakobsbréfið 1:4 · Biblían 1981
Tungan gegnir einnig mikilvægu hlutverki, því að: „Allir hrösum vér margvíslega. Hrasi einhver ekki í orði, þá er hann maður fullkominn, fær um að hafa stjórn á öllum líkama sínum.“ Jakobsbréfið 3:2.Jakobsbréfið 3:2 · Biblían 1981
„En íklæðist yfir allt þetta kærleikanum, sem er band fullkomleikans.“ Kólossubréfið 3:14, KJV.
Kólossubréfið 3:14 · Biblían 1981
Kristi er nógu umhugað um að vísa veginn til þess að ef þú þráir að finna veg fullkomnunarinnar, þá mun Hann setja fingurinn á eftirlætissyndir þínar og sýna þér hvað heldur þér frá markinu. Ungur maður féll eitt sinn fram við fætur Jesú og spurði: „Hvað á ég að gera?“ Þótt þessi ungi maður væri að spyrja um veg hjálpræðisins, benti Jesús honum á veginn til fullkomnunar. „Ef þú vilt vera FULLKOMINN, þá far þú –.“ Matteusarguðspjall 19:21. Hann lagði fingurinn á eftirlætissynd unga mannsins. Líkt og svo margir aðrir taldi ungi maðurinn þetta vera of mikið. Samt hefði það verið lítið gjald fyrir fullkomnun hér og eilíft líf í hinum komandi heimi. Jesús er alveg hinn sami í dag. Þegar þú kemur og spyrð hvernig þú getir orðið fullkominn, mun Hann ekki senda þig burt án svars.Matteus 19:21
Fullkomnun og enn meiri fullkomnun er ætíð markmið hins kristna manns. „En eitt gjöri ég. Ég gleymi því, sem að baki er, en seilist eftir því, sem framundan er, og keppi þannig að markinu, til verðlaunanna á himnum, sem Guð hefur kallað oss til fyrir Krist Jesú. Þetta hugarfar skulum vér því allir hafa, sem fullkomnir erum. Og ef þér hugsið í nokkru öðruvísi, þá mun Guð einnig opinbera yður þetta.“ Filippíbréfið 3:14, 15.Filippíbréfið 3:14, 15 · Biblían 1981
Meðan þú lest þessa bók mun Satan líklega hvísla að þér mörgum sinnum, líkt og faraó sagði við Móse (Önnur Mósebók 8:25): „Færið fórnir hér í landi.“ Með öðrum orðum, það er óþarfi að ganga svo langt að aðskilja þig frá því sem heimsins er til þess að öðlast kraft hjá Guði. Ef þú þrjóskast við mun hann segja: „Allt í lagi þá, gakktu bara ekki of langt.“ Hann gefur í skyn að hætta sé fólgin í því að ganga of langt.Önnur Mósebók 8:25
Þú getur ekki gengið of langt með Guði. Þú getur gengið of langt í syndinni. Þú getur gengið of langt í sjálfsréttlæti. En ef þú gengur með Jesú, í andanum, þarftu ekki að óttast að ganga of langt. Enginn trúaður maður hefur gengið eins langt og Guð vill að hann gangi fyrr en táknin fylgja þjónustu hans. Við höfum ekki gengið eins langt og við ættum að ganga fyrr en við getum lagt hendur yfir sjúka og séð þá verða heila! Engin kirkja hefur gengið eins langt og Drottinn ætlaði henni að ganga fyrr en allar níu náðargjafir andans eru virkar á samkomum hennar. LÁTTU EKKI FARAÓ (SATAN) HALDA AFTUR AF ÞÉR! Haltu áfram! Farðu alla leið. Náð Guðs nægir þér. Láttu ekkert aftra þér frá því að tileinka þér fyrirheit Guðs í eigin lífi, hvort sem þú ert leikmaður eða prédikari.
„Sækjum fram til FULLKOMNUNAR!“ Hebreabréfið 6:1.
Hebreabréfið 6:1