Gjaldið fyrir kraftaverkamátt Guðs
A. A. Allen
Inngangur
Frá Omega
A. A. Allen (1911–1970) var bandarískur vakningaprédikari úr röðum hvítasunnumanna. Hann fæddist í Arkansas, frelsaðist 23 ára gamall og varð prestur. Upp úr 1950 fór hann um Bandaríkin með tjaldsamkomur, þar sem þúsundir komu til að heyra fagnaðarerindið og biðja um lækningu.
Gjaldið fyrir kraftaverkamátt Guðs kom út árið 1950. Þar segir Allen frá því þegar hann lokaði sig inni til að biðja og Guð sýndi honum hvað stæði á milli hans og máttar Guðs. Bókin er hvatning til helgunar, bænar og föstu, og til að leggja allt á altarið.
Ævi Allens lauk illa. Samkvæmt dánarvottorðinu lést hann árið 1970 af völdum áfengis. Við segjum það hreint út, því lesandinn á rétt á að vita það. Boðskapur bókarinnar stendur ekki og fellur með manninum, heldur með orði Guðs, og saga hans er líka áminning um að enginn er óhultur.
Í fjórða og fimmta kafla kennir Allen að kristinn maður geti lifað án þess að syndga og að það sé boð Guðs. Þetta er kenning helgunarhreyfingarinnar um algjöra helgun og ekki eru allir kristnir sammála henni. Biblían kallar okkur sannarlega til heilagleika: „Verið heilagir, því ég er heilagur“ (Fyrra Pétursbréf 1:16). En hún segir líka: „Ef vér segjum: ‚Vér höfum ekki synd,‘ þá svíkjum vér sjálfa oss og sannleikurinn er ekki í oss“ (Fyrsta Jóhannesarbréf 1:8).
Við birtum bók Allens óstytta. Formála vefsíðunnar sem textinn kemur frá, dánarvottorðinu og spádómi frá sjötta áratugnum, sem vefsíðan bætti aftan við, höfum við sleppt, því það er ekki hluti af bókinni.