Guðsmaðurinn við Kailashfjall
Sadhu Sundar Singh
Inngangur
Hver var Sadhu Sundar Singh?
Íslensk útgáfa frá 2016.
Sadhu Sundar Singh, hitti meira en 300 ára gamlan kristinn fyrirbiðjanda við Kailashfjall í Tíbet
Sadhu Sundar Singh fæddist inn í auðuga fjölskyldu 3. september árið 1889 í bænum Rampur, sem var höfuðstaður Punjab fylkis á Indlandi. Faðir hans var síkatrúar, en móðir hans var Hindúi.
Trúarlegt uppeldi hans var í höndum móðurinnar og því var Hindúismi þau trúarbrögð sem hann kynntist fyrst. Síðar fór hann einnig að lesa Kóraninn, helga bók Múslima. Helgir menn Indverja kynntu hann einnig fyrir jóga. Síðar fékk hann fræðslu hjá kennara í hindúasið og öðrum sem kenndi honum fræði síkatrúar. Þessir tveir kennarar komu daglega heim til hans í þrjár klukkustundir, til að fræða hann. Móðir hans hvatti Sundar til að verða helgur maður á indverska vísu og lifa sem munkur.
Vegna þrábeiðni móður hans, tók hann það skref að gerast helgur maður (sadhu). Hann hélt í þetta heiti eftir að hann varð kristinn. Eftirnafn hans, „Singh“, merkir ljón og hefur trúarlega tilvísun í síkatrú. Allir karlmenn sem aðhyllast síkatrú, eiga að bera þetta eftirnafn sem sameiningartákn trúaðra.
Síðar var hann sendur í grunnskóla sem rekinn var af kristnum trúboðum. Þar kynntist hann fyrst Kristindómi, en snérist að lokum gegn þeirri trú. Hann brenndi Biblíuna og taldi sig með því hafa unnið góðverk.
En þrátt fyrir allt þetta, þá hafði hann ekki eignast þann innri frið, sem hann þráði af einlægni. Óróleikinn í hjarta hans fór stöðugt vaxandi. Hann þráði heitast af öllu að mæta Guði, ef Hann væri til.
Örvæntingin í huga hans fór vaxandi og vildi hann taka sitt eigið líf, ef hann gæti ekki fengið að upplifa Guð. Hann hafði fastákveðið tíma til að fremja sjálfsmorð, því guðir trúarbragðanna eins og Búdda og Allah, létu ekki sjá sig.
En nótt eina birtist ljós í herbergi hans. Hann fór og opnaði útihurðina til að athuga hvaðan ljósið kæmi, en fyrir utan var niðamyrkur. Sundar fór aftur inn í húsið. Þá sá hann ljósið aftur og það varð stöðugt bjartara. Eftir nokkra stund var það orðið að björtu skýi. Skyndilega birtist maður í skýinu og það var ekki einn af þeim guðum sem hann bjóst við að sjá, heldur var þar Jesús Kristur lifandi kominn, sem Sundar hélt að væri dáinn fyrir óralöngu síðan.
Sundar sagði síðar: „Ég mun ekki að eilífu gleyma dýrð Hans og kærleiksríku andlitinu, né þeim fáu orðum sem Jesús talaði: ‚Því ofsækir þú mig? Sjá, ég dó fyrir þig og allan heiminn á krossi.‘ Líkt og elding, þá hittu þessi orð hjarta mitt og brenndu sig þar inn. Ég féll á gólfið fyrir framan Hann. Hjarta mitt fylltist af ólýsanlegri gleði og djúpum friði. Líf mitt umbreyttist á augnabliki. Á þessu stefnumóti með Jesú, dó gamli Sundar Singh og nýr Sundar Singh fæddist. Þessi nýi Sundar Singh þjónar hinum lifandi Jesú Kristi.“
Þegar Sundar játaði trú sína á Jesú Krist opinberlega, hafnað fjölskyldan honum og rak hann að heiman. Eftir það, lifði hann sem einsetumaður.
Hvað eftir annað, gaf Heilagur andi honum sýnir, um að fara í þorp víðsvegar á Indlandi til að vitna um Jesú Krist. Þjónusta Sundar Singh, varð til þess að fjölmargir Indverjar tóku við Jesú Kristi. Predikanir hans heilluðu samlanda hans og einnig kristið fólk á Vesturlöndum. Persónuleiki hans og dæmisögur úr daglega lífinu gerðu ræður hans áhrifamiklar. Áheyrendur sögðu oft: „Hann lítur ekki aðeins út eins og Jesú, hann talar eins og Jesú í Nýja testamentinu.“ Það voru líka margir sem hötuðu hann. Hann lifði naumlega af nokkrar morðtilraunir.
Sundar Singh ferðaðist mikið um Himalaya-löndin og fór jafnvel til Tíbet, til að predika Fagnaðarerindið fyrir heimamönnum. Tíbet var á þeim tíma nánast lokað land fyrir útlendinga, en Guð lagði það sérstaklega á hjarta bróður Sundar, að predika þar Fagnaðarerindið. Á einni af þessum ferðum í Tíbet (árið 1912) kom hann í námunda við fjall sem heitir Kailashfjall. Þar hitti hann kristinn guðsmann, sem sagðist vera meira en 300 ára gamall.
Eftir að Sundar hitti þennan guðsmann, opinberaðist mun meira af dýrð Jesú Krists í lífi og þjónustu hans. Hjá hinum aldraða guðsmanni, lærði bróðir Sundar nýja hluti varðandi Jesú og himininn, sem opnaði fyrir honum nýja upplifun í hinu andlega. Þjónusta bróður Sundar breyttist með afgerandi hætti eftir þennan fund. Sundar heimsótti hinn aldraða guðsmann við Kailashfjall tvisvar eftir þetta.
Eftir að hafa farið víða um Suður-Indland og predikað, var honum boðið til útlanda. Hann lagði af stað og þjónaði þar sem hann ferðaðist. Frá Burma fór hann til Singapore. Þaðan var haldið til Kína. Í Kína predikaði hann í nokkrum stórborgum og en eftir það lá leiðin til Japan. Þegar hér var komið, höfðu frásagnir af þjónustu hans borist víða um Vesturlönd og var honum boðið að koma til Evrópu til að predika þar.
Hann fór í tvær heimsreisur og kynntist vestrænni menningu. Meðal þeirra landa sem hann heimsótti voru England, Bandaríkin, Ástralía, Svíþjóð, Danmörk, Noregur, Þýskaland og Sviss. Á Vesturlöndum, varð hann einkum var við efnishyggju, guðleysi, skynsemistrú og fátækt á andlega sviðinu. Þetta olli honum vonbrigðum.
Í heimsókn sinni til Berlínar árið 1922 sagði hann frá kynnum sínum af hinum kristna bænamanni við Kailashfjall, sem var meira en 300 ára gamall. Það sem hann fékk að heyra hjá þessum guðsmanni er efni þessa rits.
Árið 1929 ferðaðist Sadhu Sundar Singh til Himalayafjalla, en hann átti þaðan ekki afturkvæmt. Enn í dag, hátt í níu áratugum síðar, er hann talinn í hópi áhrifamestu þjóna Fagnaðarerindisins, sem komið hafa frá Indlandi. Sadhu Sundar sýndi fram á að sannkristinn lífsmáti, þarf ekki að vera fastbundinn við menningu og hefðir Vesturlanda.