Fjórði kafli
Jóhannes skírari
Íslensk útgáfa frá 2016.
„Dag nokkurn öðlaðist ég þau miklu forréttindi“ sagði öldungurinn „að hitta Jóhannes skírara í hinum andlega heimi. Það sem snerti mig mest, var frásögn hans af atviki með Drottni Jesú.“ Jóhannes skírari sagði: ‚Mér var fullkomlega ljóst að heilagur andi, hafði sent mig á undan syni Guðs. Það er ástæðan fyrir því að ég hafði styrk til að gera það sem ég var kallaður til. Ég predikaði fyrir öllum sem komu til mín, að snúa sér frá synd. Síðan kom sá tími að Jesús kom til mín og vildi að ég skírði hann. Þá hugsaði ég með mér að minn tími og mitt starf væri þar með búið.‘
‚Hann sem ég predikaði um og með því hafði ég undirbúið komu hans, var kominn mitt á meðal manna. Þar sem ég vissi ekki hvort það væri nokkuð verkefni eftir fyrir mig, einsetti ég mér að spyrja hann, hvort hann hefði einhver sérstök not fyrir mig áfram.‘
Fundur í eyðimörkinni
‚Eftir nokkurra daga árangurslausa leit að Jesú, fór ég út í eyðimörkina. Þar fann ég Jesú, eftir að hans hafði nýlega verið freistað af Satan. Jesús sat þarna á stórum steini. Fyrir ofan hann, sá ég hóp af dýrðlegum englum. Ég faldi mig bak við tré, þar sem ég vildi ekki trufla samtalið hjá Jesú og einnig bíða eftir því sem myndi gerast næst.‘
‚Ég litaðist um og heyrði hvernig kerúbar og serafar svifu niður til jarðar og sungu sálma fyrir Guð í holdi. Nú höfðu enn fleiri englar safnast umhverfis Jesú, sem spiluðu tónlist á hljóðfæri og hækkuðu rödd sína himinlifandi. Þeir voru fullir af lofgjörð og þakklæti. Ég fann mikinn fögnuð og himneska gleði yfir dýrð Guðs. Umhverfis þá var birta af dýrð Jesú Krists. Þarna var einnig kominn annar hópur anda, spámenn Gamla testamentisins eins og Móse, Elía og Samúel ― Adam var sömuleiðis kominn þarna með þeim. Hópurinn stóð í auðmýkt og lotningu í nærveru Jesú. Þeir geisluðu af djúpu dálæti og aðdáun, þegar þeir tilbáðu Jesú, með viðmóti sínu.‘
‚Þarna var líka annar hópur sem samanstóð af villtum dýrum og alls konar fuglum. Dýrin vildu vera nálægt Drottni Jesú. Dýrin hópuðust að fótum Jesú, en hann virtist ekki veita því athygli. Hugur hans var upptekinn af einhverju öðru. Hann var spenntur yfir verkefni sínu á jörðinni og útlistaði áætlun Guðs fyrir þeim voru þar samankomnir. Þegar englarnir og spámennirnir höfðu skilið hvað það var sem Drottinn hafði fyrirhugað, þá urðu þeir miður sín. Þeir fylltust af sorg.‘
Englarnir
‚Eftir dálítinn tíma, stóðst einn af englunum í englakórnum ekki mátið og talaði til Drottins Jesú. ‚Ó almáttugur Guð, við erum ávallt reiðubúnir til að þjóna þér. Líf okkar snýst um að þjóna þér. Veldu einn af okkur, svo að hann geti lagt niður líf sitt í þinn stað. Ó þú sem ríkir yfir öllu, er það nauðsynlegt að þú sjálfur þjáist með þessum hætti og verðir krossfestur?‘
‚Þegar Drottinn Jesú heyrði þetta, brosti hann og sagði. ‚Þið skiljið þetta ekki og það er ykkur ekki gefið, að skilja það verkefni sem Faðir minn hefur treyst mér fyrir. Dauði ykkar gæti ekki leyst neinn frá synd og af þeirri ástæðu er nauðsynlegt að ég sjálfur þjáist og verði tekinn af lífi svo að allir menn og sköpunin öll eigi þess kost að losna úr fjötrum Satans.‘
‚Þetta svar var fullnægjandi fyrir englana. Þeir sögðu hver við annan, fullir af aðdáun á Jesú: ‚Við vissum að Guð er kærleikur, sem er ofar öllum skilningi. En við vissum ekki, að sá kærleikur gengi svo langt að gefa hinn eingetna Son í dauðann, sakir mannsins.‘
Adam
‚Meðan englarnir voru enn að tala hver við annan, þá beygði Adam, sem stóð mitt í hópnum, sig djúpt niður að jörð og sagði: ‚Ó kæri Drottinn, það var synd mín, sem gerði mannkynið að þrælum Satans. Af þeirri ástæðu ætti ég að bera synd alls heimsins. Sendu mig, að ég mætti taka út þá refsingu sem ég verðskulda.‘
Jesús svaraði: ‚Sonur, þú myndir aðeins deyja fyrir sjálfan þig, ekki sakir annarra. Dauði þinn hefði ekki í för með sér það sem þarf til að frelsa eina einustu sál. Það er óhjákvæmilegt að ég verði sú fórn sem er friðþæging fyrir allan heiminn.‘
Spámennirnir
Eftir að Jesús hafði talað með þessum hætti, spurðu spámennirnir Móse, Elía og fleiri: ‚Drottinn, væri það einhver lausn á málinu, að við myndum deyja í þinn stað?‘ En Jesú svaraði þeim einnig: ‚Nei, allir ykkar hafa lokið sínu jarðneska hlutverki. Enginn ykkar er fær um að framkvæma endurlausnarverkið. Það er aðeins Sonur Guðs, sem getur frelsað mannkynið. Frelsun heimsins fæst aðeins með því að úthella mínu blóði.‘
Dýrin
Þegar Jesú hafði lokið ræðu sinni, hurfu spámennirnir, englarnir og andar hinna heilögu frá himni. Þá voru dýrin ein eftir. Þau töluðu eins og asna Bíleams gerði áður fyrr og reyndu að sannfæra Drottin Jesú um að vegna þess að Adam hefði orsakað þjáninguna í heiminum, þá ætti Adam einnig að taka refsinguna á sig. Ennfremur spurðu þau Jesú: Af hverju þau þyrftu að þjást og deyja, þótt þau væru ekki í mannslíkama? Þau væru saklaus í þessu máli.
Jesús svaraði þeim: ‚Guð gaf Adam vald yfir jörðinni og þar með einnig yfir dýrunum. Þegar Adam afhenti Satan þetta vald, þá hefði hinn illi einnig fengið vald yfir dýrunum. Undir stjórn Satans, hefði dauðinn komið inn í þennan heim. Dýrin þyrftu því að deyja eins og mannkynið.‘
Greiða veg Drottins
Eftir að dýrin höfðu heiðrað og dáð Son Guðs, þá vildi ég sjálfur sýna honum virðingu, en ég var hræddur við villtu dýrin sem voru enn nálægt honum. En Jesús, sem virtist ekki óttast neitt, kallaði á mig með nafni. Hann vissi að ég hafði orðið vitni að því sem fram fór. Ég var glaður yfir því að Hann skyldi kalla á mig. Ég gekk yfir til Hans og það merkilega gerðist, að dýrin fóru til hliðar svo ég fengi pláss nálægt Jesú. Þegar ég var kominn til Hans, féll ég að fótum hans og lofaði hann. Eftir að ég hafði veitt honum lotningu sagði ég: ‚Ég hef uppfyllt köllun mína. Er eitthvað meira sem ég get gert fyrir þig?‘
Drottinn Jesús svaraði mér: ‚Jóhannes, tími þinn er ekki kominn enn. Fyrst þarft þú að eignast hina ómetanlegu kórónu píslarvottsins. Þangað til, þarft þú að leggja niður líf þitt, sakir réttlætisins, starfa áfram og greiða veginn fyrir mér á jörðinni. Til þessa hefur þú verið kallaður. Þú munt síðar fara inn í heim andanna, þar sem búa andar þeirra sem hafa yfirgefið jörðina á undan mér. Einnig þar, verður verkefni þitt að boða öndunum komu mína.‘
Þegar Drottinn Jesús hafði dáið, var hann lifandi í anda og fór niður í ‚Sheol‘. Eins og Pétur postuli greinir frá, þá predikaði hann fagnaðarerindið fyrir öndum hinna látnu sem þar voru.‘ (Sbr. 1 Pétursbréf 3:18-19).
„Því að til þess var og dauðum boðað fagnaðarerindið, að þeir, þótt dæmdir væru líkamlega með mönnum, mættu lifa í andanum með Guði.“ (1 Pétursbréf 4:6).
Jóhannes skírari hélt áfram. ‚Það sem Jesús hafði sagt, rættist nákvæmlega. Nokkru eftir þetta samtal, var ég hálshöggvinn og dó sem píslarvottur. Eftir dauðann, var ég fluttur þangað sem andar hinna dauðu voru og þar predikaði ég fyrir þeim að koma Jesú væri á næsta leyti. Ég sagði þeim einnig, hversu frábærir hlutir biðu þeirra ef þeir tækju við Jesú Kristi sem frelsara sínum. Þannig undirbjó ég komu Drottins Jesú í ríki hinna dauðu.‘
Þegar sá dagur kom að Jesús Kristur gaf líf sitt á krossi, þá komu margir af öndum hinna heilögu til jarðar til að hitta Jesú, fagna með honum, gefast honum, tilbiðja hann og margir í Jerúsalem fengu náð til að sjá þá eftir upprisuna.‘ Við lesum um þennan atburð í Matteusarguðspjalli:
‚En Jesús hrópaði aftur hárri röddu og gaf upp andann. Þá rifnaði fortjald musterisins í tvennt, ofan frá og niður úr, jörðin skalf og björgin klofnuðu, grafir opnuðust og margir líkamir helgra látinna manna risu upp. Eftir upprisu Jesú gengu þeir úr gröfum sínum og komu í borgina helgu og birtust mörgum.‘ (Matteusarguðspjall 27:50-53).
‚Eftir að Jesús hafði gefið mér þessi fyrirmæli, var hjarta mitt fullt af gleði. Ég þakkaði honum fyrir þann heiður að fá að greiða veg hans á jörðinni og nú þessi forréttindi að fá að gera þetta öðru sinni í ríki hinna dauðu í hinum andlega heimi. Þá féll ég fram og lofaði Hann.‘
Hásæti á himni
‚Þegar ég reis upp aftur, sá ég Jesú hátt upp hafinn þar sem hann sat í miklu hásæti á himni og umhverfis hann voru milljónir af björtum skínandi englum.‘ (Sbr. Jóhannesarguðspjall 3:13).
‚Þar sá ég einnig að það voru mörg hásæti umhverfis hásæti Drottins Jesú. Í þeim sátu helgir menn, með geislandi kórónur á höfði.‘
‚Síðan sá ég autt hásæti. Ég undraðist það og velti því fyrir mér, en þá kom engill og sagði mér að þetta hásæti hefði eitt sinn tilheyrt máttugum engli. Fyrir löngu síðan hefði hann staðið fyrir uppreisn gegn Konungi himinsins og viljað verða voldugri en hann. Vegna þessarar óhlýðni fékk hann nafnið Satan, sem þýðir andstæðingur. Þessi engill sagði mér að við endi aldanna, myndi þetta hásæti verða gefið þeim guðsmanni sem starfað hefði í mestri auðmýkt á jörðinni. Ég virti fyrir mér um stund stjórnarsetur Guðs og hásætissalinn. Því lengur sem ég horfði á sæmd hans og dýrð, fylltist ég af meiri fögnuði og gleði.‘
Davíð konungur segir um nærveru Guðs: „Gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu.“ (Sálmur 16:11).