Fimmti kafli
Dauðinn og lífið eftir dauðann
Íslensk útgáfa frá 2016.
Guðsmaðurinn við Kailashfjall opnaði augu Sundar Singh fyrir sumum af hinum dýpstu leyndardómum er varða dauðann og lífið eftir dauðann. Öldungurinn sagði: „Eins og ég hef áður sagt þér, þegar sálin yfirgefur líkamann við dauðann mæta henni andar sem eru áþekkir hennar eigin anda. Þegar sál sem hefur verið endurleyst er kölluð yfir í annan heim, þá munu englar Guðs mæta henni þar.
Þegar einstaklingar sem hafa frelsast fyrir blóð Jesú Krists eru að deyja og þeir sjá hina vængjuðu boðbera Guðs, fyllast þeir slíkri gleði, að þeir óttast ekki dauðann eftir það.
Á hinn bóginn þegar hinir óguðlegu deyja, mæta þeim englar Satans. Þegar menn sjá hinar óttalegu verur, þá fyllast þeir slíkum ótta að þeir vilja ekki deyja og yfirgefa líkamann nauðugir.“
Líkaminn yfirgefinn
„Sál sem þarf að yfirgefa líkamann vegna dauða kemur óhjákvæmilega yfir í hinn andlega heim. Þar þarf hún að fara í gegnum þrjá áfanga.
Fyrsti áfanginn er að hinn látni yfirgefur líkamann. Á þeirri stundu upplifir hann enga sérstaka breytingu á tilverunni. Englar munu útskýra fyrir viðkomandi það sem átt hefur sér stað. Þá uppgötvar sálin sér til mikillar undrunar, að hún hefur meðvitund en ekki áþreifanlegan líkama.“
Tveir vegir
„Síðan kemur að öðrum áfanga. Þá mun engill leiðbeina þeim að ákveðnum stað í hinum andlega heimi, þar sem framundan eru vegamót. Önnur leiðin liggur upp til hásætis Guðs og er hún mjög björt, en hin leiðin er dimm og liggur áleiðis niður í svartamyrkur.
Hinir endurleystu kjósa leið ljóssins og halda af stað í áttina að hásæti Guðs. En þeir sem ekki hafa eignast frelsi frá syndum í gegnum Jesú Krist, þola ekki ljósið og velja leiðina niður í myrkrið. Augu þeirra eru blinduð af birtunni á leið ljóssins.
Sérhver sál, fer þá leið sem eðli hennar segir til um. Þeir sem gert hafa hið illa, hata ljósið og vilja ekki koma inn í það af ótta við að verk þeirra verði afhjúpuð. En þeir sem hafa lifað í sannleikanum, vilja koma í ljósið, svo það megi sjást að verk þeirra hafa verið framkvæmd frammi fyrir augliti Guðs.“
Andaverur ljóss og myrkurs
„Þegar sálin kemur að þriðja áfanganum, opinberast verk hennar á jörðinni. Þá sér sálin ávöxtinn af hinu jarðneska lífi og einnig framtíð sína.
Hinir endurleystu sjá framundan eilífa gleði og eilífan frið. Þeir eru þvegnir hreinir í lífsvatninu af allri synd sem kann að loða við þá og leifum af holdlegu eðli. Þegar því er lokið, er þeim fylgt af englum til síns himneska bústaðar.
Hins vegar hafa hinar illu óendurleystu sálir, ekkert til að gleðjast yfir. Þær fyllast viðbjóði yfir hinu ógeðfellda útliti sínu, því sálin er þakin ógeðslegum sárum. Þær vita, að þessi sár eru afleiðing af syndum þeirra á jörðinni og þau eru ólæknandi. Í þessari örvæntingu, fá þær að vita að þeirra bíður eldsdíkið eftir dómsdag.
Þessi staða er svo vonlaus og ógæfuleg og framtíðin svo skelfileg að þessar sálir fara að leita tækifæris til að gera iðrun. Þær þrá hjálp, en fá hana ekki, það er orðið of seint. Það á við um þær sem ritað er í Biblíunni: ‚Því að ef vér syndgum af ásettu ráði, eftir að vér höfum öðlast þekkingu sannleikans, þá er úr því enga fórn að fá fyrir syndirnar, heldur er það óttaleg bið eftir dómi og grimmilegur eldur, sem eyða mun andstæðingum Guðs.‘ (Hebreabréfið 10:26-27).
Góðu andarnir, munu lofa Drottin Jesú og verða uppteknir af því, að hjálpa þeim á jörðu, sem eins og þeir sjálfir taka við frelsinu í Jesú Kristi. Á hinn bóginn, munu illu sálirnar reyna að fá mennina til þess að syndga enn meira og verða þannig einnig erfingjar Heljar.“
Myrkrið flýr fyrir ljósinu
Öldungurinn sagði mér aðra sögu.
„Eitt sinn var ég heimsóttur af órólegum anda. Andinn sagði mér að í jarðlífinu hefði hann verið guðleysingi og starfað sem lögregluþjónn. Þessi andi, hafði nú eins og flestir illir andar leyfi til þess að ferðast um alla jörðina. Samt sem áður þjáðist þessi andi af brennandi sársauka og var örvæntingarfullur. Ekkert gat slökkt þann eld, sem brann í hjarta hans. Vitneskjan um fyrirdæminguna hélt eldinum við. Þegar ég heyrði þessa sögu, var ég djúpt snortinn. Ég spurði, af hverju hann gerði ekki iðrun og bæði Guð um fyrirgefningu. Andi mannsins svaraði að það væri ekki mögulegt. ‚Ég hef misst af tíma náðarinnar‘.“
„Síðan bað ég fyrir þessu. Bænasvarið kom á þann hátt, að Guð sendi engil sem sagði mér að dómur yfir þessum órólega anda væri óhjákvæmilegur. En þar sem ég hélt fyrirbæninni áfram, þá flutti engillinn sálina fram fyrir Guð. Drottinn Jesús birtist þessum anda aðeins í daufri birtu, því hann þekkti ástand hans. En jafnvel þessi daufa birta, var óbærileg fyrir þessa syndugu sál. Hún flúði frá nærveru Guðs í miklum flýti til þess að forðast eyðingu.“
Öldungurinn sagði við Sundar Singh: „Ljósið sem skín gegnum allt á himni og fer þar inn í hvern krók og kima, skín frá andliti Guðs. Það kemur niður til jarðarinnar og fer inn í hjörtu hinna útvöldu og endurspeglar þar andlit Guðs.“
Á leið til himins
„Dag nokkurn fékk ég að slást í för með nokkrum englum. Þeir voru sendir til Parísar, að hitta 21 árs gamla stúlku sem hét Maggie. Hún var að deyja og ættingjar hennar höfðu safnast saman umhverfis hana. Um það bil 15 mínútum fyrir dauðann, þá snerti einn af englunum augu hennar. Samstundis gat hún séð að við rúmstokkin var sveit af englum og einnig látnir ættingjar sem höfðu dáið í Kristi. Hún sá einnig gullinn stiga sem náði upp að hliði himinsins þar sem Jesús var. Þessa deyjandi stúlku, langaði til að hugga móður sína með því að segja henni frá því sem hún sá. En móðirin og aðrir sem voru viðstaddir trúðu henni ekki. Þau töldu hana vera með óráði. Maggie dó með þessi orð á vörunum: ‚Í þínar hendur fel ég anda minn.‘ Móðirin kraup yfir líkið. Hin látna stúlka, reyndi að hugga móður sína, en móðirin tók ekki eftir því. Maggie var nú þegar fyrir utan líkamann og gat ekki snert við móður sinni. Hún var leidd af englum upp að hliði himinsins þar sem Jesú tók á móti henni.“
„Þegar hún lifði á jörðinni, hafði Maggie reynt að ganga á Guðs-vegi allan tímann. Einnig hafði hún gert mörg góð verk, sem hún var löngu búin að gleyma. Nú biðu launin hennar á himni. Á svæði þar sem voru stórkostlegir himneskir bústaðir beið hennar stórt hús. Þar að auki var kóróna með fjórum gimsteinum sett á höfuð hennar. Þetta voru launin fyrir þá fjóra einstaklinga sem hún hafði leitt til Jesú Krists.“
Himneskir bústaðir
„Á himni eru bústaðir fyrir hina sanntrúuðu, sem hafa yfirgefið jörðina. Í einum af þessum bústöðum sá ég einn af hinum heilögu, þakinn með skínandi stjörnum. Mér var sagt að hann hefði gengið í gegnum ofsóknir og liðið píslarvætti. Sérhvert ör sem hann fékk í hinu jarðneska lífi vegna trúar á Jesú Krist, skein nú líkt og stjarna.“
„Sumir af þessum bústöðum voru enn í byggingu. Þeir voru ætlaðir fyrir þá af lærisveinum Krists, sem enn voru á jörðinni og starfi þeirra var ekki lokið. Hinn himneski bústaður var byggður í samræmi við smekk og andlegan þroska tilvonandi íbúa. Páll postuli skrifar: ‚Vér vitum, að þótt vor jarðneska tjaldbúð verði rifin niður, þá höfum vér hús frá Guði, eilíft hús á himnum, sem eigi er með höndum gjört‘.“ (1 Korintubréf 5:1).
Sonur ekkjunnar í Nain
Dag nokkurn hitti öldungurinn son ekkjunnar í Nain í hinum andlega heimi. Sonur þessarar ekkju hafði dáið en Jesús reisti hann upp frá dauðum. Frásögnin er í 7 kafla Lúkasarguðspjalls:
„Þegar hann nálgaðist borgarhliðið, þá var verið að bera út látinn mann, einkason móður sinnar, sem var ekkja, og mikill fjöldi úr borginni var með henni. Og er Drottinn sá hana, kenndi hann í brjósti um hana og sagði við hana: ‚Grát þú eigi!‘ Og hann gekk að og snart líkbörurnar, en þeir, sem báru, námu staðar. Þá sagði hann: ‚Ungi maður, ég segi þér, rís þú upp!‘ Hinn látni settist þá upp og tók að mæla, og Jesús gaf hann móður hans.“ (Lúkasarguðspjall 7:12-15).
Sonur ekkjunnar sagði öldunginum eftirfarandi sögu:
‚Eftir að ég hafði dáið, var ég órólegur og leið illa. Ég hafði vissulega heyrt um Jesú, en hafði ekki veitt honum mikla athygli. Þegar ég var kominn yfir í annan heim, tók ég eftir því mér til skelfingar, að enginn getur frelsast, án þess að trúa á Jesú Krist. Þess vegna hrópaði ég til Guðs að gefa mér tækifæri til þess að snúa aftur til jarðarinnar svo ég gæti tekið við Jesú Kristi sem frelsara mínum. Þótt þetta væri ekki samkvæmt þeim reglum sem giltu í öðrum heimi, þá fékk ég þessa bæn uppfyllta, vegna þess að Guð vildi að nafn Jesú Krists yrði dýrlegt með því að reisa upp dauða. Ég snéri því aftur til jarðarinnar. Þegar ég kom aftur í líkamann, varð ég afar undrandi þegar ég sá við hlið mína Jesú Krist, sem ég var nýbúinn að yfirgefa í öðrum heimi.‘
‚Þegar Jesús leiddi mig til móður minnar, var ég himinlifandi. Samstundis fór ég að segja öllum viðstöddum frá því sem ég hafði upplifað og þeirri ógn sem ég hafði upplifað eftir dauðann. En viðstaddir gerðu aðeins grín að því sem ég sagði. Þau sögðu að mig hefði dreymt þetta allt saman. Eftir komu mína frá ríki hinna dauðu, þá gaf ég líf mitt til að þjóna Jesú Kristi. Ég var einn af sjötíu lærisveinum, sem Jesú sendi tvo og tvo saman til að predika, lækna og skíra.‘ (Sbr. Lúkasarguðspjall 10:1-12).
Tveir heimspekingar
Öldungurinn sagði mér eftirfarandi sögu:
„Dag nokkurn, kom frægur heimspekingur í heimsókn til mín í andanum. Hann hafði verið uppi á dögum Jesú Krists. Hann hafði rannsakað sál mannsins, en ekki fengið opinberun um gjöf Guðs. Þegar hann heyrði um upprisu unga mannsins í Nain, hafði hann farið að heimsækja hann. Ungi maðurinn sagði honum frá því sem hann hafði upplifað eftir dauðann. Þá tók heimspekingurinn við Jesú Kristi sem frelsara sínum og gladdist stórlega.“
„Í annan tíma, fékk ég heimsókn af öðrum heimspekingi, sem einnig var samtímamaður Jesú Krists. Hann sagði mér frá því, að honum hefði verið sagt frá lækningu lamaða mannsins við Betesda-laugina. ‚Þess vegna langaði mig til að sjá Jesú og fór að leita hans. Þegar ég nálgaðist staðinn þar sem hann var staddur, gat ég ekki séð hann fyrir mannþrönginni. Skyndilega stóð Jesú fyrir framan mig. Ég var orðlaus þegar Sonur Guðs horfði á mig. Frá augum hans streymdi svo mikill kærleikur, auðmýkt og friður að ég varð gagntekinn. Ég sá einnig hvernig hann horfði á mannfjöldann með mikilli samúð og innsæi sem mér fannst aðdáunarvert‘.“
„Ég heyrði Jesú segja við mann sem hafði visna hönd: ‚Syndir þínar eru fyrirgefnar.‘ Síðan sá ég hvernig maðurinn gat hreyft höndina samstundis. Maðurinn hafði verið starfsmaður í Musterinu og hann hafði stolið þaðan hárri fjárhæð. Visnaða höndin, var réttlát refsing fyrir þá synd.“
„Þegar Jesús sagði við hann: ‚Syndir þínar eru fyrirgefnar‘ gerði maðurinn sér grein fyrir að afbrot hans hafði verið orsök fötlunarinnar. Þegar hann losnaði við sektartilfinninguna, kom lækningin um leið. Síðan horfði Jesú á mig. Hann kallaði mig til sín. Ég féll að fótum hans og ég fékk einnig fyrirgefningu synda minna. Jesús lagði hönd sína á höfuð mitt, blessaði mig og leyfði mér að fara‘.“
Endir aldanna
Um endi aldanna, sagði öldungurinn við Sundar: „Endurkoma Drottins Jesú er fyrir dyrum. Engillinn sem á að blása í hinn síðasta lúður er tilbúinn. Hann mun blása í lúðurinn þegar Guð gefur honum merki.
Lýður Guðs hefur hins vegar undirbúið sig afar hægt, þótt Dagur Drottins hafi nálgast. Vegna þess að Drottinn Jesús er náðugur og miskunnsamur við sitt fólk, þá bíður hann þolinmóður eftir brúði sinni, að hún geri sig tilbúna. Hann vill ekki að nokkur af hans fólki farist. En brátt kemur að því, að hann bíður ekki lengur. ‚Vakið því, þér vitið ekki, nær húsbóndinn kemur, að kveldi, á miðnætti, í óttu eða dögun‘.“ (Markúsarguðspjall 13:35).