← BækurGuðsmaðurinn við Kailashfjall

Sjötti kafli

Öldungurinn heimsóttur öðru sinni

um 4 mín. lestur

Íslensk útgáfa frá 2016.

Þann 14. júlí árið 1916 og 27. júlí árið 1917, voru greinar í indverska tímaritinu „Nur Afshan“, þar sem Sadhu Sundar Singh, sagði frá annarri heimsókn til öldungsins við Kailashfjall:

„Þegar ég sagði frá því að ég hefði fyrir ‚slysni‘ hitt öldung við Kailashfjall árið 1912, voru margir sem neituðu að trúa mér. Þeir töldu að sagan væri uppspuni. Sumir sögðu hughreystandi, að ég hefði fengið draum eða sýn, en nú væri ég að segja frá þessum upplifunum sem raunveruleika. Þá bauð ég þeim að koma með mér í næstu ferð til að heimsækja öldunginn við Kailashfjall í Tíbet. En enginn þáði boðið nema faðir Williams, en því miður fór það svo að hann komst ekki með í ferðina.“

„Ég hef skrifað um þennan öldung, vegna þess að hann hefur fært mér mikla innsýn í hina andlegu veröld og því hef ég líka hvatt aðra til að heimsækja hann líka. Ég er tilbúinn að fylgja þeim, á ferðalaginu. Þá geta þeir spurt sjálfir þeirra spurninga er varða eilíft líf og dauða.“

„Guð gaf mér annað tækifæri til þess að heimsækja þennan aldna bænahermann. Það er miður að enginn gat komið með mér í þetta ferðalag. En vegir Guðs eru æðri okkar fyrirætlunum, svo að ég fór einn míns liðs, að hitta þennan stórkostlega bróður í Drottni.“

„Megnið af árinu er mjög kalt, þar sem öldungurinn býr, en þar eru einnig heitar uppsprettur í nágrenninu.“

Þegar ég hitti öldunginn öðru sinni, leit hann nákvæmlega eins út og áður. Í þetta sinn sagði hann mér ýmislegt sem áður hafði ekki verið opinberað nokkrum manni.

Hjálp frá hinum heilögu

Eftir að ég hafði spurt öldunginn um tengsl hans við anda þeirra sem dáið hafa í Jesú Kristi, sagði hann mér:

„Ég lærði fjölmargt af kynnum mínum á hinu andlega sviði af englum Guðs og öndum hinna heilögu sem okkur hinum Kristnu var ekki kunnugt um áður. Hjá hverjum einasta sanntrúuðum manni á jörðinni eru englar og yfirleitt einhverjir af hinum heilögu. Við getum fengið að sjá þá sem hjá okkur eru, fyrir bæn líkt og spámenn Biblíunnar forðum daga.“

„Ef við mætum í hinu andlega, öndum hinna heilögu sem við þekktum ekki persónulega í lifanda lífi, þá vitum við um leið hver sá einstaklingur er, sem staddur er fyrir framan okkur. Pétur, Jakob og Jóhannes höfðu aldrei séð Móse og Elía áður. En þegar þeir ræddu við Jesú á Ummyndunarfjallinu, þá vissu lærisveinarnir samt hverjir þeir voru (sbr. Matteusarguðspjall 17:3). Á sama hátt og Móse og Elía leituðu eftir Jesú og ræddu við hann um það sem framundan var, þá koma ættingjar og vinir sem dáið hafa í Kristi, stundum til okkar. En vegna þess að okkur skortir andlega sjón, þá sjáum við þá yfirleitt ekki. Stundum sendir Drottinn þá í staðinn fyrir engla, til þess að uppörva okkur. Eins og Jesús Kristur, sem fékk að upplifa aðstæður á jörðinni af eigin raun (sbr. Hebreabréfið 2:18), þá skilja þeir hinar jarðnesku aðstæður betur en englar. Guð sendir okkur slíka aðstoð, til hjálpar og leiðsagnar í erfiðum kringumstæðum.“

Hvað með sál mannsins

„Ég spurði öldunginn hvort sál mannsins væri eilíf eins og Guð, eða hvort hún myndaðist við fæðinguna. Og ef þær eru ekki til frá upphafi, hvernig geta þær verið eilífar? Allt sem hefur upphaf, tekur einnig enda.“ Öldungurinn svaraði:

‚Sál mannsins á sér ekki upphaf í eilífðinni. Ef hún væri óháð tíma eins og Guð, þá hefði hún líka ótakmarkaða þekkingu eins og Guð. En nú er sálin takmörkuð að þekkingu og krafti. Sálin verður því til með líkamanum. En einstaklingurinn er án upphafs, því hann hluti af ráðsályktun Guðs frá upphafi. Við sjáum þetta á því sem Guð segir við Jeremía spámann: ‚Áður en ég myndaði þig í móðurlífi, útvaldi ég þig, og áður en þú komst af móðurkviði, helgaði ég þig. Ég hefi ákvarðað þig til að vera spámann þjóðanna!‘ (Jeremía 1:5).

„Guð segir okkur í Ritningunni, að jafnvel þótt Jeremía væri ekki fæddur enn, þá var hann þegar til í huga og fyrirætlun Guðs. Guð er skapari og Hann tekur það sem ekki er til og gefur því tilveru og líf. Guð talaði í upphafi og það varð. Guð getur tekið það sem er í huga Hans frá eilífð og skapað því eilífa tilveru. Guð skapar sál mannsins með líkamanum og gefur honum lífsandann“ (sbr. Sakaría 12:1).

„Orð Drottins um Ísrael, guðmæli Drottins, sem útþandi himininn, grundvallaði jörðina og myndaði andann í brjósti mannsins.“ (Sakaría 12:1).

Um þessa útgáfu

Guðsmaðurinn við Kailashfjall. Sadhu Sundar Singh.

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

6. kafli af 7 · 4 mín. eftirÖldungurinn heimsóttur öðru sinni