Þriðji kafli
Ný upplifun
Íslensk útgáfa frá 2016.
„Eftir þessa stórkostlegu reynslu, birtist hópur hinna heilögu frá himni. Þeir óskuðu mér til hamingju yfir þeim stórkostlegu forréttindum sem mér hefðu hlotnast, með því að fá að hitta Drottinn Jesú Krist. Þegar þeir komu, fylltist staðurinn af hreinni gleði. Andlit þeirra geisluðu af himneskri dásemd og djúpum friði. Hinir heilögu höfðu þegar lokið sínu jarðneska hlutverki og gengið inn í eilífa hvíld og frið.“
„Eftir að Drottinn Jesús heimsótti mig, komu mismunandi einstaklingar meðal hinna heilögu á himni hvað eftir annað í heimsókn til mín og hjálpuðu mér í þjónustunni. Nú er ég upptekinn á hverjum degi við að lofa Guð og stunda fyrirbæn. Ég geri þetta með gleði, því þetta er mitt líf.“
Ferðast í anda
„Ég byrja sérhvern dag, með nokkrum klukkustundum af lofgjörð og sökkvi mér inn í nærveru Guðs. Afganginn af tímanum, nota ég til að heimsækja mismunandi lönd í heiminum. Þetta er sérstök náðargjöf sem Drottinn hefur veitt mér. Meðan líkaminn er kyrr hér í hellinum, hef ég heimild frá Jesú til að ferðast í andanum.“
„Ef þessi ferðalög í andanum væru ekki möguleg, hvernig ætti ég þá að biðja fyrir baráttu kirkjunnar? Hverju ætti ég að biðja fyrir ef ég þekkti ekki þarfir samfélags heilagra á jörðinni?“
„Sundar“ sagði gamli maðurinn „allt þetta finnst þér ef til vill framandi, en hlustaðu á orð Páls þar sem hann útskýrir ýmislegt af því sem ég hef sagt þér: ‚Því að ég er hjá yður í andanum, þótt ég sé líkamlega fjarlægur, og ég horfi með fögnuði á góða skipan hjá yður og festu yðar í trúnni á Krist‘ (Kólossubréfið 2:5).“
Eftir að Sundar Singh hafði hlustað á þessa áhugaverðu ævisögu gamla mannsins við Kailashfjall, þá áttaði hann sig á því hvernig hans eigin ferðalag um þetta landsvæði í Himalayafjöllum hafði verið leitt af Guði. Í þessari heimsókn hafði hann fengið opinberun um suma af hinum djúpu leyndardómum Guðs. Sundar lýsti gleði sinni yfir að hitta gamla manninn. Hann játaði ákveðinn veikleika sinn, sem varð til þess að hinn aldraði sagði honum meira frá því sem hann hafði upplifað og fengið opinberun yfir.
Samfélag heilagra
„Það eru stórkostleg forréttindi fyrir mig að ferðast í andanum,“ sagði öldungurinn. „En það er mér líka mikið gleðiefni að fá að eiga samfélag við hina heilögu sem farnir eru héðan til þess að vera með Drottni. Með því að tala við þá, fæ ég styrk til þess að halda áfram því þunga verki sem fyrirbænin er.“
„Við getum átt samfélag við hina heilögu sem farnir eru héðan. Þess vegna er því sérstaklega lýst yfir í Postullegu trúarjátningunni: ‚Ég trúi á... samfélag heilagra...‘.“ Guðsmaðurinn hélt áfram: „Ég upplifi samfélag við hina heilögu og hitti þá daglega.“
„Fyrir mér, þá er þetta ekki lengur setning úr trúarjátningunni, heldur veruleiki. Ég upplifi nákvæmlega það sem Orð Guðs segir um ‚...samkomu... anda réttlátra sem fullkomnir eru orðnir‘.“
„Nei, þér eruð komnir til Síonfjalls og borgar Guðs lifanda, hinnar himnesku Jerúsalem, til tugþúsunda engla, til hátíðarsamkomu og safnaðar frumgetinna, sem á himnum eru skráðir, til Guðs, dómara allra, og til anda réttlátra, sem fullkomnir eru orðnir“ (Hebreabréfið 12:22-23).
„Stuttu áður en þú komst, fékk ég í heimsókn Frans frá Assisí, Polycarpus frá Smyrna og bróður sem heitir Linus. Bróðir Linus er höfundur bókarinnar ‚Breytni eftir Kristi‘, þótt hún sé ranglega eignuð Tómasi frá Kempis, en Linus fullvissaði mig um að breytti engu fyrir hann, þótt hann væri ekki viðurkenndur sem höfundur bókarinnar. Það eina sem skipti máli væri að nafn Jesú Krists væri gert vegsamlegt, sem óneitanlega ætti við um þessa bók.“
Líkami og sál
Gamli maðurinn sagði Sundar ennfremur: „Það kann að valda þér undrun, þegar ég segi þér að ég sé ekki aðeins fær um að ferðast í andanum til hvaða staðar sem er á jörðinni, heldur einnig ferðast um himnana og litast um þar. Það er ákveðin tenging milli líkama og sálar sem þarf að rjúfa nægilega til þess að líkaminn geti ekki lengur hindrað sálina í að fara til himna. Hlustaðu á það sem Páll postuli upplifði og segir frá:
‚Mér er kunnugt um mann, hann tilheyrir Kristi, sem fyrir fjórtán árum, - hvort það var í líkamanum eða utan líkamans, veit ég ekki, Guð veit það -, var hrifinn burt allt til þriðja himins. Og mér er kunnugt um þennan mann, - hvort það var í líkamanum eða án líkamans, veit ég ekki, Guð veit það -, að hann var hrifinn upp í Paradís og heyrði ósegjanleg orð, sem engum manni er leyft að mæla‘.“ (2. Korintubréf 12:2-4).
„Páll talar um ferðalög sín í andanum:
‚Ég fyrir mitt leyti, fjarlægur að líkamanum til, en nálægur að andanum, hef þegar, eins og ég væri nálægur, kveðið upp dóm í nafni Drottins vors Jesú yfir manni þeim, sem þetta hefur drýgt.‘ (1. Korintubréf 5:3).
‚Því að ég er hjá yður í andanum, þótt ég sé líkamlega fjarlægur, og ég horfi með fögnuði á góða skipan hjá yður og festu yðar í trúnni á Krist.‘ (Kólossubréfið 2:5).
Það er einnig sagt frá því í Gamla testamentinu, að sálin geti ferðast utan líkamans. Til dæmis þegar Elísa segir eftirfarandi við Gehasí:
‚Ég fylgdi þér í anda, þegar maðurinn sneri frá vagni sínum í móti þér. Nú hefir þú fengið silfur og munt fá klæði, olíutré, víngarða, sauði og naut, þræla og ambáttir.‘ (2. Konungabók 5:26).
Þú sérð á þessum ritningarversum, að það eru ekki sérstök forréttindi hjá mér, að ferðast utan líkamans um jörðina og himnana. Það er í samræmi við Orð Guðs, að þeir sem trúa á Jesú Krist geti upplifað þetta með hjálp heilags anda.“
„Verk Guðs eru miklu stórkostlegri en svo, að mannlegur hugur fái skilið þau til fullnustu. Hvort menn trúa orðum Hans eða ekki, er á ábyrgð hvers og eins. Það er ómótmælanlegt að Guð postulans Páls og spámannsins Elísa ‚er í gær og í dag hinn sami og um aldir.‘ Það sem hinir trúuðu gátu framkvæmt á þeim tíma, er einnig mögulegt fyrir hina trúuðu í dag.“
Gjöf þekkingar
Nú fór guðsmaðurinn að lýsa ákveðnum atburðum í einkalífi Sundar Singh. Hann lýsti þeim með ótrúlegri nákvæmni ― rétt eins og hann hefði verið nálægur þegar þetta átti sér stað.
Síðar þegar Sundar átti samtal við gamla manninn í Himalaya, bað hann guðsmanninn að biðja fyrir einum af vinum sínum. Þá svaraði guðsmaðurinn: „Þú þarft ekki að biðja mig um að biðja fyrir neinum. Ég fæ að vita um alla sem ég á að biðja fyrir. Þú getur sagt þessum kristna vini þínum, að hann verði að láta af þeirri synd, sem hann hefur fallið í. Svo lengi sem hann lifir í þessari synd, get ég ekki beðið fyrir honum. Syndin myndi hindra bænasvarið.“
Sundar varð nokkuð hissa á þessu svari. Þetta sýndi, að guðsmaðurinn vissi hvað átti sér stað í hjarta mannsins. Þegar Sundar kom aftur heim, þá færði hann vini sínum skilaboðin frá guðsmanninum við Kailashfjall. Þetta hitti vin hans eins og elding. Hann játaði synd sína strax og gerði iðrun. Fram að þessari stundu, lifði hann í þeirri blekkingu að enginn vissi um þetta leyndarmál nema Guð og hann sjálfur.
Sundar spurði einsetumanninn einnig af hverju hann hefði beðið um, að þegar þeir hittust framvegis, væri það á ákveðnum tíma dagsins? Öldungurinn svaraði „vegna þess að um eftirmiðdaginn, er ég venjulega utan líkamans.“ Guðsmaðurinn sagði einnig: „Ég sá þig koma hingað. Ég sá þegar þú hófst ferðalagið um Kailash-landsvæðið. Ég fylgdist með þér á þessari erfiðu ferð. Ég sá þegar þú rakst stórutána í stein, svo að það blæddi í marga klukkutíma. Sársaukinn angraði þig og þú varst úrvinda.“
„Já, það var nákvæmlega þannig“, svaraði Sundar. „Nú veit ég fyrir víst, að Guð hefur leitt mig til þín. Það eru stórkostleg forréttindi.“
Nafn guðsmannsins
Meðan á samtalinu stóð, spurði Sundar guðsmanninn hvað hann héti. Öldungurinn svaraði: „Meðan ég var eins og aðrir menn, þá bar ég að sjálfsögðu nafn, en nú er ég ekki lengur eins og venjulegir menn. Nú kallast ég Kristinn, vegna þess að Jesús lifir að fullu í mér. Jesús á hvorki upphaf né endi og er hinn sami um aldir. Fyrir náð Guðs, er ég dáinn syndinni. Þess vegna get ég sagt með postulanum Páli: ‚Ég er krossfestur með Kristi. Sjálfur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér.‘“ (Galatabréfið 2:20).
Tenging milli hins andlega og veraldlega heims
Varðandi tengslin milli hins andlega og veraldlega heims og samfélag hinna heilögu sagði öldungurinn þetta: „Flest fólk og jafnvel sumir hinna kristnu, halda að þegar enginn er nálægur, þá séu þeir aleinir. Þeir halda að enginn fylgist með, þegar þeir syndga á jörðinni. Þeir gera sér ekki grein fyrir því, að þeir eru umvafðir anda Guðs og englar eru alltaf í kringum þá, jafnvel þegar þeir syndga. Á sama hátt þá geta þeir menn sem ferðast í andanum eða vinir sem eru látnir, sem dóu í Kristi, verið með þeim án þess að viðkomandi verði þess var.“
„Andar helgra manna, fá yfirleitt ekki leyfi til að opinberast með sýnilegum hætti á jörðinni. En ef þeir sjá mann syndga gróflega, verða þeir reiðir eins og átti sér stað með anda Samúels, þegar hann var kallaður frá ríki hinna dauðu af særingakonunni í Endór. Þeir eru svo næmir fyrir synd, að þeir þola ekki kristið fólk sem syndgar. Þeir snúa sér frá þeim. Á dómsdegi, munu þeir vitna gegn syndaranum.“
„Syndin er kvöl og þjáning fyrir sannkristna menn og umhverfis þá eru alltaf andar hinna heilögu eða englar. Þessir aðilar þjóna stöðugt til þeirra og færa himneska blessun yfir þá. Jafnvel þótt þeir taki ekki eftir því, þá lifa þeir í stöðugu samfélagi við hina heilögu sem farnir eru héðan. Þessir andar réttlátra manna sem fullkomnir eru orðnir þjóna til hinna ófullkomnu heilögu einstaklinga á jörðinni, jafnvel á dauðastundinni. Ásamt englunum sjá þeir um að flytja sál hins látna með nærfærni og gleði til hins himneska bústaðar.“
Andar hinna látnu
„Langflestir andar hinna látnu (þó er einn hópur þar undanskilinn), hafa heimild til þess að ferðast eins og þeim sýnist í andrúmslofti jarðar. Góðir andar fara sjaldan til jarðar, vegna þess að andrúmsloft syndarinnar er andstyggilegt Guði gefinni sál þeirra. Á hinn bóginn sveima illir andar um alla jörðina og þrá að birtast í mannlegu formi. Vegna þess að eðli þeirra er syndugt og jarðtengt, myndu þeir kjósa að fá að lifa í sínum gamla líkama.“
„Ef góðir andar eru kallaðir til jarðar af mönnum, verða þeir afar áhyggjufullir. Sem dæmi má nefna, að þegar Sál lét sækja anda Samúels frá ríki hinna dauðu, þá spurði spámaðurinn konunginn: ‚Hví hefir þú ónáðað mig og látið kalla mig fram?‘ (1 Samúelsbók 28.15). Hins vegar þrá óguðlegir andar að kallað sé á þá, því þeim líkar vel að vera nálægt syndurum.“
„Illu andarnir hafa ferðafrelsi um ákveðið tímaskeið, en þeir vita að eftir lokadóminn verða þeir innilokaðir í logandi eldsdíki. Illu andarnir horfa fram á örlög sín og þeim líður illa og þeir eru örvæntingarfullir. Þeir vita að þeim hefur aðeins verið úthlutað takmörkuðum tíma á jörðinni. Þótt staða þeirra sé algerlega vonlaus, reyna þeir eins og mögulegt er að blekkja fólkið á jörðinni, svo það deili einnig sömu örlögum og þeir.“
„Ástæðan fyrir því að við getum ekki séð verndarengla okkar og anda hinna heilögu er sú, að það er of mikil synd sem fylgir okkur á göngunni með Guði. Djúpt bænalíf samkvæmt Orði Guðs og stöðugt samfélag við Jesú og Föðurinn veitir hinum kristna manni, andlega sjón að vissu marki. Það þarf hins vegar fullkomlega helgaða göngu með Guði, án syndar til þess að við getum séð hið ósýnilega samfélag heilagra.“