← BækurGuðsmaðurinn við Kailashfjall

Fyrsti kafli

Himalayafjöll

um 4 mín. lestur

Íslensk útgáfa frá 2016.

Himalayasvæðið er stærsta háslétta í veröldinni. Hæstu fjöll heimsins er þar að finna. Hæst í þessum mikla fjallgarði gnæfir Everestfjall, 8.848 metra yfir sjávarmáli.

Himalayasvæðið nær frá hitabeltinu í suðri og endar í feiknarlegum fjallgörðum í norðri. Af þessum sökum er gróðurfar og dýralíf á svæðinu afar fjölbreytt.

Íbúarnir, eiga flestir uppruna sinn á hásléttum Tíbet. Tíbet var áður fyrr þjóð Búddista, sem stjórnað var af prestum og landið var nánast lokað frá umheiminum. Tíbet, tilheyrir í dag Kína, en Kínverjar réðust inn í Tíbet, eftir daga Sundar Singh.

Landsvæðið í kringum Kailashfjall, er ein af mörgum hásléttum í vesturhluta landsins. Í upphafi 20. aldar var þetta svæði afar strjálbyggt. Þarna voru örfá búddamusteri, fáein klaustur búddamunka og nokkrir hellar sem notaðir voru sem íhugunar og íverustaðir. Sadhu Sundar, sagði frá því að í einum af þessum hellum hefði hann rekist á beinagrind af manni, sem trúlega hafði dáið við íhugun.

Toppurinn á Kailashfjalli er ávallt þakinn af snjó. Fjallið er oft kallað Ólympusfjall Asíu. Hindúar hafa tengt þetta fjall í gegnum aldirnar við einsetumenn, sem hafa valið þennan stað til íhugunar. Í helli við rætur þessa fjalls, hitti Sadhu Sundar kristinn einsetumann árið 1912.

Landið og náttúrufar umhverfis Kailashfjall er tilkomumikið. Snævi þaktir fjallatindar og heitar uppsprettur í frosinni jörðinni. Í þriggja dagsferða fjarlægð frá fjallinu, er stöðuvatn sem heitir Manasarovar, en þar er mikið um svani. Á klettabrúnum umhverfis vatnið eru allmörg munkaklaustur og musteri Búddista, með frábæru útsýni. Sundar lýsti þessu landsvæði sem einu því fegursta sem hann hefði séð. Á svæðinu voru einnig herskáir hirðingjaflokkar, sem ferðuðust um og drápu ferðamenn sér til skemmtunar.

Sundar hittir guðsmanninn

Árið 1912, var grein í dagblaði á Norður-Indlandi og í henni var að finna eftirfarandi setningar:

„Hinn helgaði, óeigingjarni og sanntrúaði bróðir Sundar Singh hefur fundið kristinn einsetumann, ‚guðsmanninn við Kailashfjall‘, sem árum saman hefur lifað og lifir enn uppi í snævi þöktum Himalayafjöllum, í fyrirbæn fyrir heiminum.... Þar með hefur opinberast einn af meðlimum trúboðshreyfingar okkar, guðsmaðurinn við Kailashfjall.“

Á trúboðsferðum sínum í vesturhluta Tíbet, hafði Sundar Singh, leitað að einsetumönnum sem voru Hindúar eða Búddistar. Hann hafði fengið upplýsingar um að þessir einsetumenn hefðust þar við í hellum til þess að nota síðasta hluta ævinnar fyrir íhugun. Þeir völdu fjalllendið við Kailashfjall, vegna þess að svæðið er fjarri mannabyggðum. Þarna er snjór árið um kring og auk þess er Kailashfjall talið heilagt fjall af innfæddum. Hið mikla Indus-fljót á þarna upptök sín ásamt fljóti sem heitir Sutlej, en það rennur í gegnum Punjab.

Árið 1912 hafði Sundar Singh sem oftar ferðast til Tíbet og farið á Kailash-svæðið, til þess að leita uppi einsetumenn, sem stunduðu íhugun í hellunum. Hann gekk beint af augum í fullkominni einveru til að finna þetta fólk. Þarna voru engir vegir. Eftir að hafa gengið í nokkra daga í um 4 þúsund metra hæð, var sjón hans farin að daprast vegna snjóblindu. Þá fór Sundar að íhuga að snúa til baka. Á þessu svæði var gamalt yfirgefið búddamusteri, sem pílagrímar heimsóttu af og til. Skyndilega missti hann jafnvægið og rann niður brattan snjóskafl allmarga metra, þar til hann stöðvaðist.

Sundar missti meðvitund um stundarsakir. Þegar hann rankaði við sér og leit upp sá hann risastórt op á helli. Hann varð skelfingu lostinn yfir því sem hann sá við opið á hellinum. Þar sat óvenjulega loðin mannvera. Þegar Sundar skoðaði manninn nánar, sá hann að hann hafði fundið mjög gamlan mann sem sat með lokuð augu í djúpri íhugun. Maðurinn hafði þétt hár á líkamanum sem skýldi honum fyrir kulda og sítt skegg sem náði til jarðar. Augabrúnirnar voru eins og brúskar sem skýldu augunum.

Sundar tók á öllu því hugrekki sem hann hafði og ávarpaði manninn. Maðurinn opnaði rólega augun. Sundar sagði: „Augu hans horfðu á mig og frá þeim var einhver útgeislun, sem mér fannst að gæti skoðað hjarta mitt og lesið huga minn. Augu mannsins voru full af kærleika.“

Sundar hélt að hann hefði fundið helgan mann Hindúa (rishi), sem hann gæti fært góðu fréttirnar um Jesú Krist. Sundar varð því steinhissa, þegar maðurinn leit á hann og rauf þögnina með því að segja: „Við skulum krjúpa niður og biðja.“

Einsetumaðurinn bað afar smurða bæn, sem hann lauk lotningarfullur með nafni Jesú. Síðan náði hann í bókfell með Nýja testamentinu, opnaði það og las nokkur vers úr Fjallræðunni í Matteusarguðspjalli.

Um þessa útgáfu

Guðsmaðurinn við Kailashfjall. Sadhu Sundar Singh.

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

1. kafli af 7 · 4 mín. eftirHimalayafjöll