← BækurGuðsmaðurinn við Kailashfjall

Annar kafli

Meira en 300 ára löng ævisaga

um 7 mín. lestur

Íslensk útgáfa frá 2016.

Eftir að hafa lesið úr Orði Guðs sat gamli maðurinn án þess að segja orð. Þá spurði Sundar hann, hver hann væri og hvað hefði valdið því að hann væri hér á þessum stað. Einsetumaðurinn sagði honum ævisögu sína í stórum dráttum. Hann hóf frásögnina á versi úr Jóhannesarguðspjalli, þar sem segir: „Ég gef þeim eilíft líf, og þeir skulu aldrei að eilífu glatast, og enginn skal slíta þá úr hendi minni“ (Jóhannes 10:28).

Maðurinn hélt áfram: „Það eru um það bil 318 ár, frá því að ég fæddist inn í fjölskyldu Múslima í borginni Alexandríu í Egyptalandi. Sem ungur maður, var ég líkt og foreldrar mínir trúfastur Múhameðstrúarmaður. Ég fékk trúarlega uppfræðslu og eyddi mörgum klukkustundum á dag við að þylja upp bænir og vers úr Kóraninum. En það var enginn friður í hjarta mínu. Andlegt hungur mitt fór sívaxandi. Ég ákvað því, að taka upp lífsmáta, þar sem ég væri knúinn til meiri sjálfsaga.“

Þrá eftir endurlausn

„Þegar ég varð þrítugur, aðskildi ég mig frá heiminum, gekk í klaustur Múslima og gerðist einsetumaður. Með næturvökum, bænum og íhugun leitaði ég eftir sálarfriði. En það var sama hvað ég reyndi, ég sökk alltaf lengra niður í þunglyndi. Tilveran án þess að þekkja Guð varð stöðugt þungbærari. Því meira sem ég las Kóraninn og bað, því óhamingjusamari varð ég.

Lífið var þung byrði, því að hugur minn var fullur af vonleysi, óreiðu og ég gat ekki lengur hugsað skýrt. Svefnlausar nætur og andleg þjáning að deginum hafði dregið úr mér allan þrótt. Þetta ástand þjakaði taugar mínar og hrelldi sálina. Ég þráði lausn!

Svo gerðist það dag einn, að ég fékk nýja von. Mér var sagt frá kristnum manni, sem hafði komið frá Indlandi til þess að predika í Alexandríu um frelsara sem gæti frelsað sálina og leyst menn frá synd. Ég ákvað samstundis að leita þennan mann uppi. En áður en ég gat látið verða af því, var guðsmaðurinn kominn til mín og hann spurði mig um ástand sálar minnar.

Eftir að ég hafði sagt honum allt um aðstæður mínar, þá leit hann íhugull á mig og sagði: ‚Ég veit hvað sál þína vantar‘. Síðan opnaði hann litla bók og las fyrir mig: ‚Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld‘ og einnig ‚því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf‘.

Guðsmaðurinn útskýrði fyrir mér það sem hann hafði lesið og smám saman fór ég að skilja. Hann predikaði til mín lifandi orð, sem fyllti hjarta mitt af gleði. Ég þráði að heyra meira af því sem þessi lærisveinn Krists hafði að segja, svo ég eyddi með honum mörgum klukkustundum. Af honum lærði ég leyndardóminn um andlega gleði.“

Leystur og frelsaður

„Það leið ekki langur tími, þar til ég hafði gert mér grein fyrir frelsandi krafti Jesú Krists. Eftir að ég hafði eignast sannfæringu fyrir því að blóð Jesú Krists gæti leyst mig frá syndum, bað ég Son Guðs um að koma inn í mitt líf. Fljótlega eftir þetta var ég skírður og kynntist þá hinum kristnu. Ný gleði og ferskur ákafi flæddi inn í sál mína. Hinn langþráði friður fyllti nú hjarta mitt. Ég hafði eignast sátt við Guð. Innra með mér kom óslökkvandi þrá eftir að færa þennan dýrmæta leyndardóm um frelsið í Kristi til annarra. Ég bað kristinn guðsmann sem var leiðbeinandi minn, um leyfi til þess að fá að fylgja honum á trúboðsferðum hans. Þessa bón veitti hann mér, svo að ég yfirgaf Múslimaklaustrið.“

Predikari fagnaðarerindisins

„Eftir tímabil lærdóms hjá hinum kristna læriföður mínum, talaði hann dag einn um að hann langaði til að yfirgefa Egyptaland. Þegar við skildum gaf hann mér þau fyrirmæli að fara um heiminn og predika Orð Guðs, um frelsi frá syndum. Ég tók fyrirmæli kennara míns mjög alvarlega. Það leið ekki langur tími, þar til ég fór að ferðast víðsvegar og predika leyndardóminn um frelsið í Jesú Kristi.“

„Ég skal bæta við nokkrum orðum um kennara minn. Hann hét Jernaus og var frændi hins fræga kaþólska trúboða Francis Xavier, sem var uppi á árunum 1506 - 1552. Xavier var einn afkastamesti trúboði Jesúíta og starfaði aðallega í Austurlöndum fjær. Hann var einn af samstarfsmönnum Ignatíusar Loyola, sem stofnaði reglu Jesúíta.“

„Og þetta bókfell, sem ég las fyrir þig úr, kemur úr dánarbúi Xavier. Bókfellið var ritað á valdatíma Konstantínusar keisara.“ Þegar Sundar leit á bókfellið, sá hann að það var ritað með Grísku hástafaletri og það væri því mjög dýrmætt fyrir þá sem rannsaka frumtexta Nýja testamentisins.“

Settist í helgan stein

„Ég ferðaðist sem trúboði í rúmlega 75 ár“, hélt öldungurinn áfram „þar til ég var orðinn 105 ára gamall. Aldurinn var þá farinn að segja til sín, einkum varðandi ferðalög. En Guð hélt mér gangandi og sá bæði fyrir líkama og sál. Á ferðum mínum um heiminn, lærði ég að tala 21 tungumál eða mállýskur og Hindi þar með talið. Þegar ég fann fyrir því að þróttur minn fór þverrandi jafnt og þétt og minnið fór að gefa sig, þá dró ég mig út úr öllu trúboði. Ég fór þá að leita að stað, þar sem ég gæti eytt þeim fáu árum sem eftir væru, í friði og stöðugu samfélagi við Guð. Með það í huga, þá kom ég á þennan stað, en ég hafði komið hingað á ferðalagi fyrir löngu síðan sem trúboði.“

„Þessi staður, sem ég valdi til að eyða síðustu árunum var upplagður fyrir mig. Jafnvel í dag eru hér engin hús. Það eru aðeins fáeinir einstaklingar sem treysta sér að ferðast um þetta landsvæði á hverju ári vegna kuldans. Þrátt fyrir kuldann vaxa hér jurtir og sem virka vel gegn ákveðnum sjúkdómum og endurnæra líkamann. Þar til viðbótar hefur Guð gefið hér stórkostlegt útsýni allt um kring.“

„Ég fæ næringu með því að borða jurtir. Að vetri til gref ég upp ákveðna rót sem fæðu, vegna þess að hún gefur yl í líkamann. Ég er ekki hræddur við villt dýr og dýrin eru ekki hrædd við mig. Á kaldasta tímanum að vetri til, er ég í hellinum ásamt bjarndýrum sem leggjast þar í hýði. Það kemur ylur frá dýrunum.“

Sundar minnist þess, að hann var skjálfandi af kulda þegar hann hitti sjáandann við Kailashfjall. Gamli maðurinn gaf honum lauf af ákveðinni jurt. Fljótlega leið honum betur. Honum fannst þægilegur ylur flæða um líkamann og gefa honum nýjan styrk.

Hittir Jesú

„Árin liðu“ hélt gamli maðurinn áfram. „Ég þráði meira og meira að losna úr þessum dauðlega líkama, þótt ég ætti frábæran tíma með Drottni í bæn og íhugun. Ég þráði að fara heim til Drottins. Þetta gekk svo langt að ég eyddi daglega klukkustundum á hnjánum í að biðja Jesú um að taka mig til himins.“

„Dag nokkurn þegar ég var á bæn, heyrði ég skyndilega hávaða í hellinum. Það var eins og það væru komnir margir fuglar sem flögruðu fram og aftur. Ég bað Guð um að sýna mér orsökina fyrir hávaðanum. Þá fann ég hvernig hönd snerti augu mín. Þessi snerting opnaði andleg augu mín og ég sá hóp af björtum englum í hellinum. Þeim fjölgaði stöðugt, þar til þarna var komin heil herdeild frá himni. Þeir sungu sálma til dýrðar konunginum Jesú, sem var í för með þeim. Þegar ég sá konung dýrðarinnar, kraup ég niður í lotningu. Jesús tók í hönd mína reisti mig upp og sagði: ‚Þú trúi þjónn, nú verður þér gefin náð til að lifa miklu lengur. Þú munt ekki deyja eða tapa þessum jarðneska líkama, þar til ég kem aftur, sem er ekki mjög langt undan. Þegar ég kem aftur á skýjum himins með mikilli dýrð þá munt þú verða á jörðinni.

Þangað til, verður verkefni þitt að biðja fyrir trúföstum þjónum mínum, sem eiga í hættulegri baráttu við djöfulinn og fylgjendur hans.‘

Eftir að Jesús sagði þetta, þá hreinsaði hann hjarta mitt fullkomlega af synd. Síðan hélt hann aftur til himins og englakórinn fylgdi honum eftir.“

Um þessa útgáfu

Guðsmaðurinn við Kailashfjall. Sadhu Sundar Singh.

Íslensk útgáfa frá 2016.

Ókeypis til lestrar.

Kaflar

Letur

Svona lítur textinn út.

Leturstærð

Leturstærð: 20

2. kafli af 7 · 7 mín. eftirMeira en 300 ára löng ævisaga