Dagur 2 · Morgunn
Að hvíla í trausti
Wade E. Taylor · Íslensk þýðing
„Hver sem því heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, honum mun ég líkja við hygginn mann, sem byggði hús sitt á bjargi. Og regnið steyptist niður, flóðin komu og vindarnir blésu og skullu á því húsi, en það féll ekki, því að það var grundvallað á bjargi. En hver sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim, honum verður líkt við heimskan mann, sem byggði hús sitt á sandi. Og regnið steyptist niður, flóðin komu og vindarnir blésu og skullu á því húsi, og það féll, og fall þess var mikið.“ Matteusarguðspjall 7:24-27
Persónulegt samband okkar við Drottin verður að grundvallast og viðhaldast á traustum grunni og vera í samræmi við ritað orð Guðs. Drottinn svarar með dýpra sambandi þeim sem standa á bjargi þeirrar fullkomnu endurlausnar sem hann hefur afrekað fyrir þá og treysta á trúfesti hans eina.
Þetta krefst þess að við brjótumst út úr viðjum fyrra óöryggis (húss okkar sem byggt er á sandi) og göngum inn í þá öryggiskennd að sitja með Jesú í hásæti hans, til hægri handar öllu valdi og yfirráðum (hús okkar sem byggt er á bjargi).
Hér, þegar við hvílum í þeim sigri sem Jesús vann fyrir okkur á krossinum, mun himneskur faðir okkar, sem leiddi Jesú fram til upprisulífs úr gröf sem virtist algjör ósigur, einnig lyfta okkur úr vanmætti okkar og hviklyndi til yfirburðasigurs í nærveru sinni.
Innra með okkur öllum býr djúp þrá eftir því að vera elskuð, metin og skilin, því það er hluti af eðli okkar. Við vorum sköpuð í hans mynd og því er þessi þrá einnig í hjarta hans sem skóp okkur. Þannig þráir Drottinn að við komum til hans í trausti og þakklæti fyrir endurlausnina sem hann hefur fært okkur.
Ef þú hefur tekið eftir því að Drottinn notar aðra á einhvern sérstakan hátt, hefur þér þá einhvern tíma fundist að „þetta“ eigi við um alla, nema þig? Ef við berum þá möguleika sem í okkur búa fram fyrir Drottin í einföldu, barnalegu trausti og bíðum frammi fyrir honum full eftirvæntingar, verðum við leyst undan þeim takmörkunum sem við höfum sett okkur sjálfum svo við getum einnig gengið inn í allt það sem Drottinn hefur búið okkur. Nú getum við gengið fram í öryggi með honum.
„Megi augu skilnings ykkar verða upplýst, svo að þið fáið að vita hver von köllunar hans er og hversu dýrlegur og ríkulegur arfur hans er meðal hinna heilögu, og hver hin yfirgnæfandi miklu máttarverk hans eru við okkur sem trúum. En þetta er sami áhrifamikli og sterki mátturinn...“ Efesusbréfið 1:18-19
Stundum lyftir Drottinn okkur inn í nærveru sína og „augu skilnings okkar upplýsast.“ Á slíkum stundum, hversu stuttar sem þær kunna að vera, verður okkur ljóst að miklu meiri möguleikar búa í okkur en við höfðum gert okkur grein fyrir. Drottinn þráir heitt að opna þennan falda fjársjóð og fylla hann af sjálfum sér.
Þannig kallar „djúp á djúp“, því til er æðri vídd samfélags við Drottin okkar sem hann vill leiða okkur inn í.
„Djúp kallar á djúp í gný fossanna þinna, öll boðaföll þín og bylgjur ganga yfir mig.“ Sálmarnir 42:8
„Öll boðaföll þín og bylgjur ganga yfir mig.“ Drottinn tekur ekki aðeins á syndaeðli okkar, heldur einnig á tilhneigingu okkar til að sætta okkur við minna – hina að því er virðist „góðu hluti“ sem geta rænt okkur hinu hæsta sem hann kallar okkur til.
Á þremur sviðum eigum við að færast inn í andlegan stöðugleika.
„Já, vissulega met ég allt vera tjón sakir yfirburða þekkingarinnar á Kristi Jesú, Drottni mínum. Hans vegna hef ég beðið tjón á öllu og met það sem sorp, til þess að ég megi ávinna Krist og finnast í honum, ekki með mitt eigið réttlæti, sem er af lögmálinu, heldur það sem fæst fyrir trú á Krist, réttlætið sem er frá Guði fyrir trú, til þess að ég megi þekkja hann og kraft upprisu hans og samfélag þjáninga hans, og mótast eftir dauða hans.“ Filippíbréfið 3:8-10
Í fyrsta lagi: „Að ég megi þekkja hann.“
Hér er átt við vitneskju um Drottin, en þó fyrst og fremst um það að „þekkja“ Drottin náið sem persónu. Við megum ekki lengur láta okkur nægja vitneskju um Drottin, heldur verðum við að stíga inn í lifandi og persónulegt samband við hann.
Við eigum að reyna af eigin raun og átta okkur á, ekki aðeins nærveru hans og mætti, heldur einnig persónu hans og tilfinningum, og bregðast við honum í samræmi við það. Með endurfæðingunni erum við gerð að „sérstökum“ lim á líkama Krists, svo að við getum átt hlutdeild í og brugðist við öllu því sem býr í höfðinu (Drottni okkar Jesú Kristi).
Í öðru lagi: að við megum reyna „kraft upprisu hans“.
Við getum ekki reynt upprisuna nema við höfum fyrst dáið sjálfinu. Þetta kallar á ferli þar sem við erum prófuð og reynd. Þeir sem eiga sannaðan vitnisburð, þar sem líf og kraftur Drottins fá að birtast, hafa átt djúpa persónulega reynslu með honum. Þeir hafa gengið í gegnum harðar raunir og hafa af eigin raun reynt frelsun fyrir kraft Guðs. Þessir menn hafa greitt gjald fyrir það sem þeir eiga.
Guð fer ekki í manngreinarálit. Ef hann myndi bara úthluta þjónustu í krafti af handahófi, þá yrði hann óhjákvæmilega að gefa hana öllum sem kæmu og bæðu um hana. Þessi þjónusta er frátekin þeim sem hafa fórnað miklu til að verða eitt með honum.
Í þriðja lagi eru þeir sem ganga inn í „samfélag þjáninga hans“.
Þetta er ekki samfélag okkar eigin þjáninga, heldur samfélag okkar við Jesú í þjáningum hans. Drottinn þjáist vegna andlegs doða okkar eða skorts á andlegri þrá. Hann hefur svo mikið að gefa, og svo fáir eru nægilega fúsir og næmir til að taka við því.
Það er þrá í hjarta Drottins eftir þeim sem vilja tengjast honum á hverju þessara sviða. Það er „djúp“ í Drottni sem kallar á „djúp“ hið innra með okkur, svo hann megi finna þá fyllingu sem hann vænti þegar hann skapaði okkur.
Þegar við hvílum í nærveru Drottins og leyfum honum að leiða okkur inn í þessa dýpri einingu við sig, mun hann leiða okkur í gegnum reynslu sem áður hefði fyllt okkur ótta og ráðaleysi. Þegar við horfum á Jesú einan og göngum inn í þá reynslu að vera sameinuð honum, fáum við staðfestu á bjargi fullkominnar endurlausnar hans og getum gengið í trausti með honum í gegnum allt sem við mætum í lífinu.
Og hann mun mæla til okkar í trausti, vitandi að við munum bregðast við:
„Kom, unnusti minn, við skulum fara út á akur, gista í þorpunum. Við skulum fara snemma upp í víngarðana, gá hvort vínviðurinn sé brumaður, hvort blómin séu sprungin út og hvort granateplatrén standi í blóma. Þar mun ég gefa þér ást mína.“ Ljóðaljóðin 7:12-13
Hugleiðingin er opin öllum. Þú mátt deila henni með öðrum.