Dagur 2 · Kvöld
Orðið í reynd
Wade E. Taylor · Íslensk þýðing
„Og Orðið varð hold og bjó meðal okkar ...“ Jóhannesarguðspjall 1:14
Hið eilífa, lifandi Orð varð æðsta opinberun sem Guð gat nokkru sinni veitt manninum – Drottinn Jesús Kristur, sem fæddist af mey og dvaldi meðal okkar í lítillæti sem „Jesús frá Nasaret“, en á þeim tíma þótti það smánarlegur staður. Þegar hann gekk um rykuga vegi síns tíma, sá heimurinn sýnilega sönnun um mátt og sannleika hins eilífa Orðs.
„Það sem var frá upphafi, það sem við höfum heyrt, það sem við höfum séð með augum okkar, það sem við horfðum á og hendur okkar þreifuðu á, þetta er orð lífsins ... það sem við höfum séð og heyrt, það boðum við ykkur einnig, til þess að þið getið haft samfélag við okkur ...“ 1. Jóhannesarbréf 1:1; 3
Hver þáttur í lífi okkar ætti að vera af slíkum hreinleika og gæðum að „Orðið“, sem við tökum á móti í anda okkar, geti fundið fulla tjáningu og uppfyllingu í gegnum okkur. Hið „ritaða“ Orð á að verða hið „upplifaða“ Orð – persónulegur veruleiki í lífsreynslu okkar, svo að þeir sem í kringum okkur eru geti „séð“ það og „þreifað“ á því.
Þessi „vitnisburður“ nær yfir það hvernig við helgum okkur Drottni, göngu okkar með honum, samfélag okkar við þann söfnuð trúaðra sem við erum hluti af, og samband okkar við heiminn sem við búum í. Á hverju þessara sviða ætti það sem Drottinn hefur áorkað hið innra með okkur að vera öðrum augljóst sem vitnisburður sem mun sannfæra þá og draga til Drottins. Við erum eina Biblían sem margir munu nokkurn tíma lesa.
Í Postulasögunni 1:8 sagði Jesús: „Þið munuð verða vottar mínir.“ Með því átti hann við að við sjálf erum þessi vitnisburður; sýnileg mynd þess sem við erum að verða. Við vöxum og þroskumst andlega þegar við lifum eftir andlegum lögmálum og sannleika í daglegu lífi. Ísraelsmenn sáu verk Guðs, en Móse lifði og gekk á vegum Guðs þannig að það varð hluti af honum sjálfum. Í gegnum líf Móse fengu Ísraelsmenn að reyna áhrifin af því hvernig Drottinn opinberaði sig honum. Það var fyrst þá sem þeir gátu farið að skilja hvernig nærvera og máttur Guðs birtist.
Sá „hlutlægi“ sannleikur sem er að finna í rituðu orði Guðs, eða í því sem skrifað er um það, þarf að verða að lifandi reynslu innra með okkur í samskiptum okkar við heiminn. Aðeins þá mun fólk sjá Jesú, undrast á ný og segja: „Aldrei hefur maður talað þannig“ (Jóhannesarguðspjall 7:46).
Þegar við höfum helgað líf okkar Drottni að fullu býr æðri tilgangur að baki hverri ákvörðun eða vali sem við tökum, sem nær út yfir núverandi áhrif hennar. Þegar við byrjum að skilja þetta mun það ekki einungis leiða okkur í átt til andlegs þroska, heldur verðum við betur í stakk búin til að hjálpa öðrum eftir því sem við upplifum þessa hluti.
„Því að við erum smíð hans, skapaðir í Kristi Jesú til góðra verka, sem Guð hefur fyrirfram tilbúið, til þess að við skyldum ganga í þeim.“ Efesusbréfið 2:10
Við munum flestar okkar andlegu helganir því þær fara fram á sérstökum stundum og hafa augljósan tilgang. Við metum þær mikils og lítum á þær sem mikilvægar andlegar vörður. Samhliða þessu er fjöldinn allur af að því er virðist ótengdum ákvörðunum sem við neyðumst til að taka á hverjum degi lífs okkar, sem virðast ekki hafa neinn varanlegan tilgang eða gildi í okkar augum. Við umberum þetta en hugsum með okkur: „Ef ég bara kæmist í gegnum allt þetta hversdagslega gæti ég farið að leita þess sem hefur andlegt gildi og tilgang.“
Drottinn lítur þó á þessar hversdagslegu ákvarðanir allt öðrum augum en við, því þetta eru ekki einungis handahófskenndar ákvarðanir sem við verðum að taka á lífsleiðinni. Frá hans sjónarhóli eru þessar fjölbreyttu aðstæður af ásettu ráði lagðar á veg okkar til að knýja okkur til ákvarðana sem munu hafa áhrif á hina æðri köllun og tilgang Drottins með líf okkar. Það er mikilvægt fyrir okkur að skilja þetta ferli svo að við missum ekki móðinn eða snúum baki við þessari reynslu eða leiðsögn þegar hún virðist okkur hvorki sanngjörn né skynsamleg.
Afleiðing þessara ákvarðana verður þá að byggingarefni í sjálfu fræinu (því sem við erum að verða), sem Drottinn mótar í okkar jarðneska hylki – okkar lífi sem „ný sköpun“.
„Og hann talaði margt til þeirra í dæmisögum og sagði: Sjá, sáðmaður (Drottinn) gekk út að sá.“ (aðstæðurnar sem krefjast þess að við tökum ákvörðun eða veljum) Matteusarguðspjall 13:3
Ritningin segir okkur að við séum fyrirfram ákveðin til að „mótast eftir mynd sonar hans“ (Rómverjabréfið 8:29). Við getum hugsað okkur þessa mótun eins og fræ sem er að verða til hið innra með okkur og þroskast jafnt og þétt á lífsleiðinni. Þetta fræ inniheldur allt það sem nauðsynlegt er til að gera okkur kleift að starfa á komandi öld.
Það eina sem þarf til þess að sýna til fulls hvað við erum orðin, er rétti „jarðvegurinn“ – sjálft andrúmsloft himinsins. Þegar við stígum þangað inn mun líf okkar í honum brjótast út úr hýði þessa undirbúningstíma. Þá munum við starfa á því stigi sem við höfum áunnið okkur hér á jörð, með því að standast og yfirstíga allar þrautir lífsins.
Þessu má líkja við eplafræ. Allt sem til þarf – allt sem nauðsynlegt er til þess að úr verði tré sem gefur af sér eplauppskeru – er að finna í fræinu sjálfu. Engu þarf að bæta við það, því hið eina sem fræið þarfnast til að verða að fullvaxta tré er rétt umhverfi og tími.
Við getum orðið ráðvillt þegar andleg helgun okkar eða ákvarðanir, sem þóttu svo stórfenglegar á sínum tíma, virðast dvína án varanlegra afleiðinga. Það er vegna þess að við sjáum aðeins þau áhrif sem þær höfðu í augnablikinu. Við gerum okkur ekki grein fyrir því að þessi helgun eða ákvarðanir urðu hluti af mótun þess fræs sem við erum að verða. Ekki getum við heldur séð hið fullvaxta tré (okkur sjálf) sem mun spretta af þessu fræi þegar það er hafið upp í umhverfi hans eilífu nærveru.
Jesús sagði um þetta sáðkorn að sumt „féll í góða jörð og bar ávöxt, sumt hundraðfaldan, sumt sextíufaldan og sumt þrítugfaldan“ (Matteusarguðspjall 13:8). Það sem hlýst af því hvernig við helgum okkur Guði og þeim ákvörðunum sem við tökum í lífinu, ræður því hvaða ávöxt við munum bera í eilífðinni – þrítugfaldan, sextíufaldan eða hundraðfaldan.
Það mikilvægasta sem ég get gert í dag er að lifa þannig að aðeins það allra besta móti það fræ sem ég er að verða. Flest af því sem ég helga Guði mun ekki ná tilætluðum tilgangi sínum til fulls á meðan ég lifi, einfaldlega vegna þess að tíminn er of naumur.
Þessar andlegu ákvarðanir og helgun okkar hér og nú skipta samt gríðarlega miklu máli. Þær eiga stóran þátt í að móta gerðina, eða „kjarnann“, í þessu fræi, sem mun síðan leiða í ljós í eilífðinni hversu mikið við höfum mótast eftir mynd Drottins Jesú Krists.
Á himnum munu áhrifin af þessum ákvörðunum og því að við helguðum okkur Guði ná fullum þroska. Þá munum við hafa nægan tíma til að vinna úr þessari reynslu, sem tíminn okkar hér á jörðinni leyfði ekki. Það er margt sem þarf að gerast í reynslu okkar hvers og eins til að við verðum tilbúin fyrir himininn – fær um að starfa í því samstarfi við Drottin sem hann bæði þráir og ætlast til.
Í sýn sem Esekíel var gefin birtist maður með fjögur andlit (Esekíel 1:6-10). Frá einni hlið leit hann út sem ljón, frá annarri sem maður, frá hinni þriðju sem naut og frá þeirri fjórðu sem örn. Hver þessara ásýnda opinberaði sama manninn en sýndi þó mismunandi eiginleika í eðli hans. Þessi sýn var endurtekin fyrir Jóhannesi í Opinberunarbókinni 4:6-7 í líki fjögurra lifandi vera sem tákna þann sem sigrar í Nýja testamentinu.
Þessar fjórþættu himnesku ásýndir voru ávöxtur fullþroska fræs. Þessi skilningur á tilgangi Drottins, að móta „fræ“ úr uppsöfnuðum ákvörðunum, vali og reynslu okkar í þessu lífi, er ákaflega mikilvægur. Hann mun bæði hafa áhrif á gæði þeirra ákvarðana sem við tökum dagsdaglega og hjálpa okkur að túlka lífið á réttan hátt.
Frá sjónarhóli Drottins mun hann setja allar þær aðstæður í lífsmunstur okkar sem nauðsynlegar eru til að gera okkur kleift að taka þær ákvarðanir sem skapa þetta fullþroska „fræ“, sem Drottinn þráir að við verðum.
„En án trúar er ómögulegt að þóknast honum, því að sá sem gengur fram fyrir Guð verður að trúa því að hann sé til og að hann umbuni þeim sem hans leita.“ Hebreabréfið 11:6
Skýrari skilningur á þessu mun aðeins fást í komandi tíð, þegar þetta „fræ“ mun opinberast sem líf sem er orðið eins og „lífsins tré“ og ber alls kyns ávöxt til lækningar þjóðunum (Opinberunarbókin 22:2).
Þeir sem sigra munu ríkja með Drottni í Þúsundáraríkinu.
Hugleiðingin er opin öllum. Þú mátt deila henni með öðrum.