Dagur 1 · Morgunn
Að leita hærra
Wade E. Taylor · Íslensk þýðing
„Undir hans stjórn vinnur allur líkaminn fullkomlega saman og hver liður leggur sitt af mörkum. Þegar hver hluti sinnir sínu hlutverki rétt, vex líkaminn og byggist upp í kærleika.“ Efesusbréfið 4:16
Andlegt líf okkar er miklu meira en samsafn upplýsinga sem við söfnum að okkur, svo sem skilningur á kenningum og hinu ritaða orði. „Mælikvarði“ andlegs lífs okkar er öllu heldur afrakstur þeirra ákvarðana sem við tökum á lífsleiðinni. Þegar við stöndum frammi fyrir Drottni við dómstól Krists verður það andlega þroskastig sem við höfum náð (þrjátíu-, sextíu- eða hundraðfalt) borið saman (mælt) við hans sigursæla líf.
„Þangað til við verðum öll einhuga í trúnni og þekkingunni á syni Guðs, verðum fullþroska og náum vaxtarmarki Krists fyllingar.“ Efesusbréfið 4:13
Lífið er aldrei auðvelt. Það er barátta þar sem við verðum stöðugt að velja hvað við gerum eða hvaða leið við förum. Vegna þeirra mörgu langana sem við berum í brjósti, ásamt þeirri ábyrgð sem lögð hefur verið á herðar okkur, getur stundum reynst okkur erfitt að taka réttu ákvörðunina.
„Þeim er sigrar mun ég gefa að sitja með mér í hásæti mínu, eins og ég sjálfur sigraði og settist með föður mínum í hásæti hans.“ Opinberunarbókin 3:21
Með því að velja rétt verðum við ein þeirra sem sigra, og á tilsettum tíma mun Drottinn hefja okkur upp og láta okkur sitja með sér í hásæti sínu.
„Eitt sinn er mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð stóð hann við Genesaretvatn. Þá sá hann tvo báta við vatnið en fiskimennirnir voru farnir í land og þvoðu net sín. Hann fór út í þann bátinn…“ Lúkasarguðspjall 5:1-3
Það eru alltaf til tveir „bátar“ – hans leið og okkar leið. Við verðum að velja hvorn við stígum um borð í. Vonandi veljum við þann „bát“ (aðstæður okkar í lífinu) sem Jesús sté um borð í, þar sem vilji hans fær að ráða ferðinni.
Við erum öll fiskimenn; við „veiðum“ það sem mun færa okkur lífsfyllingu. Þessir fiskimenn voru að þvo net sín. „Netið“ er aðferðin sem við notum til að fá það sem við þráum. Við látum annaðhvort undan því að uppfylla langanir holdsins, eða við veljum að hefja okkur yfir þær til að næra anda okkar.
Samansafn þeirra ákvarðana sem við tökum er það eina sem við munum bera með okkur (það sem við erum orðin andlega) þegar við yfirgefum þetta líf. Ef ákvarðanir okkar fyrir Drottin vega þyngra en þær sem þjóna okkur sjálfum, þá verður það sá andlegi þroski sem við höfum náð, og mun ákvarða hvernig samfélagi okkar við Drottin verður háttað um alla eilífð.
Að vera sá sem sigrar þýðir að það er aðskilnaður milli þess sem lýtur að okkar eigin ánægju og lífsfyllingu, og þess sem er samkvæmt vilja og tilgangi Drottins fyrir okkur.
Eftir því sem við förum í gegnum lífið og tökum fleiri ákvarðanir sem eru andlega uppbyggilegar, þeim mun auðveldara verður að halda því áfram, og við losnum frekar undan því sem gæti dregið okkur niður. Í upphafi kann það að vera erfitt, en það verður auðveldara þegar við höldum áfram að velja rétt.
Líf okkar er á margan hátt líkt því að ganga eftir stórum spíral. Þegar við göngum hringinn og höldum áfram að velja það sem er andlega uppbyggilegt, vonumst við til að vera komin talsvert hærra upp en þegar við hófum gönguna, þegar við snúum aftur á upphafsreit. Ef við veljum að þóknast okkur sjálfum, munum við enda talsvert neðar en við vorum þegar við byrjuðum.
Lífið kann að virðast endurtekningasamt (eins og það er að mestu leyti), en samansafn þessara hversdagslegu ákvarðana sem við tökum mun hafa mikil áhrif á eilífa stöðu okkar frammi fyrir Drottni.
Hæfni okkar til að starfa í Þúsundáraríkinu, og einnig á himnum um eilífð, er að mótast hið innra með okkur á meðan við dveljum hér á jörðu.
Þannig erum við að gera miklu meira en bara að fara í hringi. Ef við tökum jákvæðar ákvarðanir fyrir Drottin mun löngun okkar til að þekkja Jesú persónulega aukast verulega og andi okkar verður næmari fyrir nærveru hans. En ef við látum undan holdlegum löngunum munum við forherðast og verða skeytingarlaus gagnvart Drottni og nærveru hans.
Við kunnum að eiga í baráttu og stundum virðumst við tapa fleiri orrustum en við vinnum. En þegar við verjum dýrmætum tíma í nærveru Drottins okkar, og biðjum hann um styrk til að taka réttar ákvarðanir, munum við fá kraft til þess og við byrjum að færast ofar.
Til eru þeir sem búa yfir andlegri dýpt sem aðrir skynja, því líf þeirra geislar af innri friði. Það er vegna þess að þeir hafa hafist yfir allt jarðneskt álag og freistingar og taka réttar ákvarðanir.
Jesús sagði að ríkið væri innra með okkur. Fyrsta vídd ríkisins er „réttlæti“. Þannig munu hinar réttlátu ákvarðanir sem við tökum draga okkur upp á við, að ríki hans. Þegar við veljum Drottin og setjum okkur undir stjórn ríkis hans, stígum við á þann grundvöll sem kallast „réttlæti“.
Þegar við síðan höldum áfram að taka réttlátar ákvarðanir, leiðir það til þess að við reynum stöðuga nærveru hans og öðlumst næmi fyrir öllu sem andlegt er. Af því að við tökum réttar ákvarðanir mun hylli og velþóknun Guðs hvílir yfir okkur. Fyrirmyndin að slíkum réttlátum ákvörðunum er dregin fram á fegursta máta í Fjallræðunni, í 5., 6. og 7. kafla Matteusarguðspjalls.
„Fjallræðan“ fjallar um hvötina að baki verkinu. Þetta er æðra lögmál andlegs lífs, sem nær út fyrir það hvort við höfum rétt eða rangt fyrir okkur, heldur snýst það um hlutdeild okkar í anda og lífi. Til eru þeir sem munu gjalda það verð sem þarf til að lifa á þessu æðra andlega sviði.
Megum við hvert og eitt helga Drottni allt sem við erum og allt sem við gerum. Þetta mun setja okkur á grundvöll ríkisins í fullri undirgefni við herradóm hans. Drottinn verður vegsamaður og mun gleðjast, og velþóknun hans mun hvíla yfir okkur. Þá verðum við tilbúin á þeim degi til að heyra Jesú segja við okkur:
„Herra hans sagði við hann: Gott, þú góði og trúi þjónn. Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn í fögnuð herra þíns.“ Matteusarguðspjall 25:23
Megum við í dag taka þá ákvörðun að setja Jesú í fyrsta sæti í öllum okkar daglegu athöfnum.
Þá mun Jesús taka þá ákvörðun að við munum sitja með honum í hásæti hans á „þeim degi“.